Menning
191 192 193 194 195 196 197 198 199 … 334 ›
Bláminn indigo Þjóð sem klæðir sig árið um kring í bláar gallabuxur ætti ekki að kippa sér upp við að myndlistarmenn setji saman sýningu með yfirskriftinni Indigo. Á hverju ári er baðmullin í gallabuxunum lituð blá með tilbúnum indigo-lit sem hefur um langt árabil tekið við af hinum forna dimmbláa lit. Menning 13.1.2007 09:30
Steinunn í Florida Steinunn Þórarinsdóttir á verk á listaverkamessunni í Palm Beach 3 Contemporary Art Fair í Flórida.Það eru um níutíu gallerí sem þar sýna og er Samuel Osborne galleríið í Mayfair sem höndalr alla jafna með verk Steinunnar sem sýnir þar syðra. Menning 12.1.2007 08:15
Byggingalist í ráðhúsinu Það er ekki á hverjum degi sem almenningi gefst kostur á að sjá sæmilegt yfirlit um íslenska byggingarlist en nú gefst slíkt tækifæri: Sýning um byggingarlist á Íslandi á síðustu árum verður uppi í Tjarnarsal, Ráðhússins í Reykjavík frá föstudeginum 12. til 28. janúar. Menning 12.1.2007 02:00
Sólarljóð í myndum Listmálarinn, blaðamaðurinn, ritstjórinn og ferðabókahöfundurinn Gísli Sigurðsson hefur gefið Garðabæ, þar sem hann býr, myndröð eftir sjálfan sig sem gerð er eftir Sólarljóðum. Menning 11.1.2007 14:30
Færeysk list í Hafnarborg Á sýningunni „Einsýna List“ eru verk eftir sex færeyska listamenn og verður hún opnuð í Hafnarborg kl. 17 í dag. Einn þeirra, Astri Luihn, segir að þjóðirnar tvær geti lært margt hver af annarri. Menning 11.1.2007 11:45
Von á góðu Ian McEwan er með nýja skáldsögu í undirbúningi sem kemur út í Bretlandi á vormánuðum; On Chesle Beach. Laugardagur hans kom út í frábærri þýðingu Árna Óskarssonar fyrir hátíðir og hefur víðast hvar fengið góða dóma. Nýja skáldsaga McEwan gerist árið 1962 og lýsir sambandi hjóna. Menning 10.1.2007 16:30
Býr til klakastyttur í bílskúrnum Ottó Magnússon, matreiðslumaður á Humarhúsinu, á sér sérstaka aukabúgrein; á kvöldin og um helgar býr hann til ísstyttur eftir pöntunum. „Ég fór á námskeið í Kanada fyrir áratug og hef verið að gera þetta síðan,“ segir Ottó. „Mér fannst þetta bara smart og ákvað að prófa. Svo kom þetta bara með æfingunni.“ Menning 9.1.2007 10:30
Jón fékk pening Árleg úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins var á gamlársdag og fékk Jón Kalman Stefánsson hana að þessu sinni. Jón hlaut sem kunnugt er íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á árinu enda er hann margra verðlauna maklegur: Jón hóf feril sinn sem ljóðskáld en hefur um langt árabil stundað sagnabúskap og sent frá sér fjölda eftirminnilegra sagna. Menning 3.1.2007 11:00
Hlotnast heiður Njörður P. Njarðvík prófessor hlaut á dögunum menningarverðlaun Sænsk-íslenska menningarsjóðsins. Sjóður þessi var stofnaður árið 1995 í kjölfar gjafar sænsku ríkisstjórnarinnar til Íslendinga á fimmtíu ára lýðveldisári. Menning 2.1.2007 11:45
Átthagafræði samkvæmt bók KK Önnur sýning Söguloftsins í Landnámssetrinu í Borgarnesi leit dagsins ljós á föstudag. Önnur sýning var á laugardagskvöld: Einar Kárason og KK flytja þar Menn eru svona sem byggir að miklu leyti á minningum KK sem Einar skráði eftir honum sjálfum og fleirum og gaf út á bók 2002 og svo söngvum KK, bæði frumsömdum og sóttum í sjóði söngvaskáldsins. Þetta er dagskrá sem teygir sig í tvo klukkutíma, þægileg áheyrnar og skemmtileg kvöldstund sem líður hratt. Menning 2.1.2007 10:00
Víða sýningarlok Í dag og á morgun er víða komið að sýningarlokum í mörgum sýningarsala landsins. Það er því enn tækifæri til að sjá ýmislegt af því sem kom upp á fyrstu vikum vetrarins og nú þegar dauður tími er í lífi margra er fínt að líta til þess sem er að gerast í myndlistinni. Menning 29.12.2006 16:30
Myndlistin fer á vefinn Breski safnarinn og auðkýfingurinn Charles Saatchi rekur vef fyrir unga myndlistarmenn í tengslum við safn sitt í London: www.saatchi-gallery.co.uk/stuart. Þangað koma nú þrjár milljónir innlita á degi hverjum. Á vef safnsins er slóð fyrir listamenn, Your Gallery, og eru ríflega 25 þúsund listamenn með verk sín skráð þar og til sölu. Menning 29.12.2006 15:00
Menn eru svona og svona Í kvöld verður fyrsti flutningur á Landnámssetrinu í Borgarnesi á dagskrá – söngatriði með spjalli eða eintali með innskotum og tónlist – þar sem KK og Einar Kárason rifja upp feril þess fyrrnefnda. Þar byggja þeir á samstarfi sínu fyrir nokkrum misserum þegar Einar skráði sögu KK, Þangað sem vindurinn blæs. Menning 29.12.2006 14:00
Harry Potter feigur Líkurnar á að skáldsagnapersónan Harry Potter lifi af í nýjustu bókinni eru hverfandi að mati veð-mangara. Talið er nær öruggt að Potter láti lífið í Dauðaköllunum og er illmennið Voldemort talinn líklegasti morðinginn. Margir hafa einnig veðjað á að Harry verði sjálfum sér að bana í því skyni að tortíma Voldemort. Menning 29.12.2006 11:00
Endurrómur upphafsins - Tvær stjörnur Metnaðarfull ljóðabók en mjög óþroskaður skáldskapur. Skáldið leitar hinstu raka og þráspyr sjálft sig um eðli veruleikans. Menning 28.12.2006 14:30
Dætur hússins - Tvær stjörnur Thérése og Léonie hittast aftur eftir tuttugu ára aðskilnað. Mæður þeirra voru systur sem bjuggu undir sama þaki eftir að móðir Thérése veiktist af sjúkdómi sem dró hana á endanum til dauða. Þá var móðir Léonie þegar orðin ekkja. Ytri rammi sögunnar fjallar um þann tíma, einkum unglingsárin, áður en Thérése gengur í klaustur. Ekki þó þannig að þær rifji upp þann tíma, heldur gerir sögumaður það. Menning 28.12.2006 10:30
Alvarlega hipp í Safni Haldið er áfram á þeirri braut sem Safn á Laugaveginum í Reykjavík lagði inn á fyrir nokkru að halda gerninga/sýningar í gluggum gamla Faco á Laugaveginum. Á morgun verður fluttur metnaðarfullur dansgjörningur Safns þar og verður aðeins fluttur einu sinni, kl. 18. Menning 28.12.2006 08:30
Rowling afhjúpar titilinn Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter mun heita Harry Potter and the Deathly Hallows. Þykir titillinn vísa í myrkt umfjöllunarefni lokabókarinnar. Enn á eftir að finna íslenskan titil á bókina. Menning 23.12.2006 11:45
Úr ólíkum áttum Rithöfundar og fjármálaspekúlantar ætla að lesa upp úr bókmenntaverkum sínum í Anima galleríi í kvöld og annað kvöld og sætir það vissum tíðindum því ekki er algengt að slíkir leiði saman hesta sína. Menning 21.12.2006 15:45
Árita bækur sínar Eiríkur Guðmundsson og Steinar Bragi árita bækur sínar í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan sex miðvikudaginn 20. desember. Menning 19.12.2006 11:23
Nostrað við hlustir Hljóðlistamaðurinn Þóranna Dögg Björnsdóttir býður gestum til sætis í Gel galleríi við Hverfisgötu þar sem hún flytur persónulegt lifandi tónverk fyrir hvern og einn. Hún vill þannig beina athygli fólks á nýstárlegan máta að hljóðheiminum umhverfis okkur. Menning 18.12.2006 14:30
Steinar um Stein Steinar Rithöfundurinn Steinar Bragi mun lesa upp úr bók sinni, Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins, í tóbaksversluninni Björk í Bankastræti kl. 20.30 í kvöld. Menning 16.12.2006 16:15
Síðkaþólskt gæðapopp Lofsvert framtak að gefa út kveðskap Jóns Arasonar biskups. Kemur nú fyrsta sinni á bók í heild sinni – með vönduðum skýringum Kára Bjarnasonar og greinargóðum inngangi Ásgeirs Jónssonar. Menning 16.12.2006 16:00
Mættir Max og Mórits Um kaffileytið geta göngumenn af Laugaveginum skotist inn í Súfistann og ornað sér við veitingar, söng og lestur úr sígildum kvæðabálki Vilhelm Busch af hrekkjusvínunum Max og Mórits og þeirra grimmilegu örlögum. Menning 16.12.2006 14:00
Listamenn heimsóttir Í húsi listamanns er safn viðtala sem birtust í Morgunblaðinu á árunum 1980 til 1982 og 1998. Í viðtölunum heimsækir höfundur íslenska listamenn sem flestir eru gengnir og bregður upp svipmyndum af þeim. Í flestum tilfellum setur höfundur sig í stellingar áhorfandans, fylgist með viðkomandi listamanni á heimilinu eða á vinnustofunni og ritar athugasemdir sem frá þeim falla um lífið, listina, samfélagið. Menning 16.12.2006 12:45
Víða opin hús í dag Myndlistarfólk er tekið að stunda það helgar fyrir hátíðir að opna vinnstofur sínar almenningi og bjóða verk til sölu, stór og smá, Stöllurnar Ólöf Björg, Svava K. Egilson og Alice Olivia Clarke reka sameiginlega vinnustofu í Hafnarfirðinum í húsinu Dverg sem er á Brekkugötu 2 við Lækjargötu í hjarta bæjarins. Menning 16.12.2006 11:00
Samtal við listasöguna Sýningin Frelsun litarins verður opnuð í Listasafni Íslands í dag. Um er að ræða tímamótasýningu á verkum frönsku expressjónistanna, eða fauvistanna, og geta gestir nú í fyrsta sinn barið augum verk málara á borð við Renoir og Matisse hér á landi. Menning 15.12.2006 14:15
Jólalegur kokteill Nemendur Kramhússins efna til Jólagleði í Borgarleikhúsinu á morgun og sýna margslungnar listir sínar. Leyndir hæfileikar fá þar að njóta sín og munu stíga á svið hversdagsstjörnur úr hinum íslenska veruleika. Menning 15.12.2006 12:30
Enginn dregur stein í efa Þjóðskáld á tímamótum, degi hallar. Skáld sem fylgt hefur ljóðvinum á heillandi ferðalagi hálfrar aldar um innland íslenskrar náttúru og sögu - þar sem stórhuga maðurinn leitar átta í skjálfandi smæð (29). Menning 15.12.2006 11:15
Ljósmóðurfræði frá fyrri tíð Nýlega kom út bókin Sá nýi yfirsetukvennaskóli hjá Söguspekingastifti, en bókin kom fyrst út á Hólum í Hjaltadal árið 1749. Bragi Þorgrímur Ólafsson, sagnfræðingur á handritadeild Landsbókasafns, bjó til prentunar og ritaði inngang. Bókin er fyrsta ritið um ljósmóðurfræði sem kom út á íslensku og var notuð við kennslu yfirsetukvenna þegar landlæknisembættið var stofnað árið 1760. Menning 14.12.2006 13:30