Innlent
90 91 92 93 94 95 96 97 98 … 334 ›
Bílaröð ísþyrstra Löng bílaröð hefur myndast á þjóðveginum vestan Hveragerðis. Þangað hafa fjölmargir gert sér ferð á Blómstrandi daga sem fara fram núna um helgina í Hveragerði. Innlent 17.8.2024 14:28
Bændur opna bú sín á „Beint frá býli deginum“ Bændur í hverjum landshluta munu opna bú sín fyrir gestum og gangandi á morgun, sunnudag á „Beint frá býli deginum” þar sem boðið verður upp á allskonar smakk og kynningu á vörum bænda og búaliðs. Innlent 17.8.2024 14:04
Rekstraraðilar misvel undirbúnir Rekstraraðilar eru misvel búnir undir reglugerðarbreytingu sem gerir þeim skylt að bjóða upp á kynhlutlaus salerni. Varaforseti Trans Ísland segir of mikið gert úr málinu. Innlent 17.8.2024 13:28
Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn. Innlent 17.8.2024 13:09
Rauðu örvarnar koma síðdegis til Keflavíkur Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örvarnar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar síðdegis. Utanríkisráðuneytið segir núna að vegna flugskilyrða frá Bretlandi sé mjög ólíklegt að um verði að ræða eiginlega flugsýningu við komu sveitarinnar til Íslands. Innlent 17.8.2024 12:52
Óvíst með formannsframboð en frjálshyggjan megi ekki sigra Formaður Vinstri grænna hefur ekki ákveðið hvort hann gefi kost á sér til áframhaldandi formennsku á landsfundi flokksins í október, en það hefur innviðaráðherra ekki heldur gert. Á flokksráðsfundi í dag sagði formaðurinn að frjálshyggjan fengi ekki að sigra. Innlent 17.8.2024 12:11
Óvissa um formennsku VG og óþefur í kirkjugörðum Formaður Vinstri grænna hefur ekki ákveðið hvort hann gefi kost á sér til áframhaldandi formennsku á landsfundi flokksins í október, en það hefur innviðaráðherra ekki heldur gert. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 17.8.2024 11:49
Kúkalykt í kirkjugarði gerir út af við Grafavogsbúa „Ferleg skítalykt“, „er ég sú eina sem er gjörsalega að kafna?“ og „algjör viðbjóður“ er á meðal þess sem íbúar í Grafarvogi hafa að segja um ólykt sem virðist berast frá Gufuneskirkjugarði. Forsvarsmenn kirkjugarða segja erfitt að eiga við vætutíðina. Innlent 17.8.2024 11:48
Áframhaldandi norðankaldi en bjart sunnan heiða Í dag og á morgun verður áframhaldandi norðan kaldi eða strekkingur á landinu með rigningu norðan heiða en yfirleitt bjart sunnantil með líkum á síðdegisskúrum. Innlent 17.8.2024 08:10
Sérsveitin aðstoðaði vegna hnífaburðar í Vesturbæ Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til í verkefnum sem lögregla sinnti í Vesturbæ í gærkvöldi. Var það vegna þriggja aðskildra mála þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi með hníf. Innlent 17.8.2024 07:51
Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Klukkan 4:39 í nótt reið skjálfti að stærð 3.1 yfir í norðaustanverðri Bárðarbunguösju. Nokkrir minni skjálftar hafa mælst síðan. Innlent 17.8.2024 07:24
„Ég hef aldrei séð annan eins viðbjóð“ Sæbjörg Snædal Logadóttir situr eftir með tjón upp á 530.000 krónur eftir að tíu strákar og vinir þeirra gengu berserksgang í húsi hennar á Þjóðhátíð. Öll garðhúsgögn hennar voru brotin, gólfið á baðherberginu bólgnað upp vegna bleytu, og óhreinar nærbuxur og sokkar voru úti um allt. Innlent 16.8.2024 23:41
„Ég veit ekki hvort að ég sé sammála um að rokið sé auðlind“ Ríkisstjórnin afgreiddi í morgun þingsályktunartillögu og frumvarp umhverfisráðherra um uppbyggingu vindorku hér á landi. Formaður Vinstri grænna vill að vindorkuver verði í þjóðareign. Innlent 16.8.2024 21:58
Neitaði að borga heita vatnið og slapp með skrekkinn Kona í Árborg komst upp með að borga ekki heitavatnsreikninga frá Selfossveitum vegna þess að vatnið var ekki nógu heitt. Reikningar konunnar vegna húshitunar voru meira en tvöfalt hærri en í sambærilegum fasteignum í sveitarfélaginu, af því vatnið var gallað og inntakshiti þess ekki nógu mikill. Innlent 16.8.2024 21:56
Skotvopnaleyfi afturkallað og byssa gerð upptæk Karlmaður á miðjum aldri brást illa við afturköllun á skotvopnaleyfi hans, og kalla þurfti til sérsveitarinnar og samningamanna að heimili hans í Hafnarfirðinum. Málið endaði vel að sögn lögreglu og maðurinn var handtekinn. Innlent 16.8.2024 21:13
Sérsveitin í útkalli í Hafnarfirði Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur verið kölluð til aðstoðar í verkefni á vegum lögreglunnar í Hafnarfirði. Innlent 16.8.2024 20:21
Kerlingadráttur í 120 ára afmælisveislu í Borgarnesi „Það fæst allt í kaupfélaginu nema kannski falskar tennur og líkkistur“, segja bændur í Borgarfirði ánægðir með kaupfélagið sitt, sem fagnar 120 ára afmæli sínu á morgun með miklum hátíðarhöldum. Kerlingadráttur verður eitt af atriðum dagsins. Innlent 16.8.2024 20:05
Láglaunakonur neiti sér um mat svo að börn þeirra fái að borða Rúm fjörutíu prósent kvenna í láglaunastörfum hafa minna en 150 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Margar geta ekki keypt nauðsynjavörur, eins og kuldaskó og úlpur fyrir börn sín, og hafa neitað sér um mat svo börn þeirra fái að borða. Innlent 16.8.2024 19:30
Bjarni skilar jafnréttis- og mannréttindamálunum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Jafnréttis- og mannréttindamál verða flutt frá forsætisráðuneytinu yfir á málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Innlent 16.8.2024 19:23
„Þetta var bara okkar líf og nú er það farið“ Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum. Innlent 16.8.2024 19:01
„Stórt skref í átt að kolefnislausum flota“ Í síðustu viku voru samningar undirritaðir milli Strætó og fyrirtækjanna Hagvagna og Kynnisferða um akstur strætisvagna. Í tilkynningu segir að með þessu sé stórt skref stigið í átt að kolefnishlutlausum akstri Strætó. Innlent 16.8.2024 18:58
Á 110 á gangstétt og ók á lögreglubifhjól Lögregla veitti manni á bifhjóli sem ekið var án skráningarmerkis og hliðarspegla eftirför í dag. Hjólinu var ekið á u.þ.b. 150 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. Þá ók hann einnig á gangstétt á yfir 110 km/klst. För hans tók enda þegar hann ók á lögreglubifhjól. Innlent 16.8.2024 18:22
Sagði Pétri Jökli að skipta um síma í snarheitum Verjandi Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu telur lögreglu hafa farið fram úr sér þegar hún dró þá ályktun að huldumaður sem skipulagði innflutninginn héti Pétur. Í framhaldi hefði allt verið gert til að tengja Pétur Jökul við málið. Hann hafi ráðlagt Pétri Jökli að losa sig við símann sinn í Taílandi svo yfirvöld þar gætu ekki haft uppi á honum. Innlent 16.8.2024 17:56
Starfsfólk í áfalli og kynhlutlaus salerni á barnum Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til þess að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum og að henni sé því lokið í núverandi mynd. Innlent 16.8.2024 17:53
Skjálfti af stærðinni 3,0 í Mýrdalsjökli en enginn órói Í dag klukkan 16:55 var skjálfti af stærðinni 3,0 í Mýrdalsjökli. Enginn órói mældist í kjölfarið en skjálftar af þessari stærð eru algengir í Mýrdalsjökli. Innlent 16.8.2024 17:39
Alma Mjöll ráðin til þingflokks VG Alma Mjöll Ólafsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hún starfaði til margra ára sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni. Innlent 16.8.2024 17:31
Flugfélagið Ernir svipt flugrekstrarleyfi Samgöngustofa hefur svipt Flugfélagið Erni flugrekstrarleyfi sínu. Stjórnarformaður segir að það hafi staðið til í nokkurn tíma að leggja niður flugstarfsemi félagsins og færa hana inn í Mýflug. Síðarnefnda flugfélagið á meirihluta í Erni ásamt Jóhannesi Kristinssyni fjárfesti. Innlent 16.8.2024 16:22
„Það er komið að skuldadögum“ Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra telur of mikið hafa verið gert úr „meintum ágreiningi“ hans og formanns Vinstri grænna í vindorkumálum. Innlent 16.8.2024 15:52
Kvikusöfnun og landris enn á sama hraða Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi. Skjálftavirkni er sömuleiðis stöðug, þar sem 60-90 skjálftar mælast á sólarhring. Innlent 16.8.2024 14:57
Pétur Jökull hljóti að vera einstaklega óheppinn Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að Pétur Jökull Jónasson sé býsna óheppinn einstaklingur sé það algjör tilviljun hve margt bendi til þess að hann hafi verið viðriðinn innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni. Horfa verði til þess að lykilvitni í málinu sé stöðu sinnar vegna ekki stætt að staðfesta að hann hafi verið í samskiptum við Pétur Jökul. Innlent 16.8.2024 14:20