Innlent

Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla

Nýr leikskóli með pláss fyrir yfir hundrað börn hefur sprottið upp með undraverðum hraða í Elliðaárdal. Verktaki afhendir borginni hann á næstu vikum. Vonast er til að hægt sé að hefja starfsemi þar sem allra fyrst.

Innlent

Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu

Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði.

Innlent

Pall­bíll sem var illa lagt upp­hafið að nágranna­erjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er kölluð út oft á dag og eru útköllin eins fjölbreytt og þau eru mörg en í dag barst lögreglu á stöð 1 tilkynning um nágrannaerjur í hverfi 104. Í kerfum er skráð að þær hafi brotist út vegna pallbíls sem var illa lagt. Ekki liggur fyrir hvar honum var lagt né hvernig málið var afgreitt.

Innlent

Fjöl­miðla­nefnd sektar Þórarin um hálfa milljón

Fjölmiðlanefnd hefur sektað Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, um 500 þúsund krónur fyrir að skrá hlaðvarpið ekki sem fjölmiðil. Ákvörðunin kemur rúmum tveimur mánuðum eftir að ráðuneyti Loga Einarssonar greindi frá því að fyrirhugað væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld.

Innlent

Hvað gerist ef það verður jafnt?

Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei.

Innlent

Eins og að hafa fimm­tán menn inni á vellinum

„Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið.

Innlent

Svona verður at­kvæða­greiðslan á laugar­daginn

Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar.

Innlent

Starfs­fólki hafi verið boðin lægri laun

Þrjátíu og tveimur starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem fengu boð um ný eða breytt störf við hópuppsögn í gær var boðið lakari kjör að sögn formanns Sameykis sem segir starfsmennina hafa fengið afar skamman tíma til að ákveða næstu skref.

Innlent

Starfs­fólkinu boðin lakari kjör

Hádegisfréttir á Bylgjunni eru á sínum stað og eru sagðar klukkan tólf. Þar ber hæst að búist er við því að fyrstu tölur í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði birtar í Suðurkjördæmi um klukkan hálf ellefu á laugardagskvöld. Rætt verður við formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, sem segir forvinnu fyrir talningu þegar hafna.

Innlent

Grinda­vík á varaafli

Varaaflsvélum hefur verið komið fyrir í Grindavík vegna bilunar í Svartengislínu milli Svartengis og Rauðmels. Skerðanlegur flutningur á Vestfjörðum, Vesturlandi og Suðurlandi hefur verið skertur vegna bilunarinnar. 

Innlent

Fyrstu tölur sýna lík­lega fleiri nei en já

Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já.

Innlent

Stútur „með allt í skrúfunni“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og nótt, en verkefnin voru einkum tengd eftirliti með ökumönnum á bílum og bifhjólum sem ýmist óku of hratt, voru í símanum undir stýri, voru án ökuréttinda, fóru yfir á rauðu, eða voru undir áhrifum löglegra eða ólöglegra vímuefna.

Innlent

Þyrluútköllum fjölgað veru­lega milli ára

Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. 

Innlent

Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Innlent

Erfiðast að horfa upp á mann­eskju deyja og geta ekkert gert

Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána.

Innlent

„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. 

Innlent

„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá meiri umræðu í borgarstjórn um ákvörðun dagsins um að segja upp tugum starfsmanna borgarinnar og að með skipulagsbreytingum sé þjónusta á leið út úr hverfum borgarinnar. Borgarstjóri segir að við breytingarnar verði ekki þjónusturof og að börn muni fá þjónustu óháð því hvar þau búa.

Innlent

„Það er ekkert við þetta mann­úð­legt“

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp stöfum í dag í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Formaður Sameykis segir að um starfsmenn í framlínustörfum sé að ræða og gagnrýnir uppsagnarferlið harðlega.

Innlent

Kvöld­fréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um upp­sagnir

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag. Í kvöldfréttum verður rætt við formann Sameykis sem segir uppsagnirnar fordæmalausar og gagnrýnir fyrirkomulagið. Þá mætast þau Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar í beinni og ræða aðgerðirnar.

Innlent

Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa

Fyrsta háskólasamstæða landsins tók til starfa undir nafni Háskóla Íslands 1. júlí 2026 en það var í kjölfar þess að mánuði fyrr voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fólu í sér heimild Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum til að stofna háskólasamstæðu.

Innlent

Ís­lendingar voru al­ræmdir og lítið traust á milli

„Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum.

Innlent