Erlent „
287 288 289 290 291 292 293 294 295 … 334 ›
„Að vera leiðtogi heimsins þýðir að vera leiðtogi friðar“ „Úkraínska fólkið er ekki eingöngu að verja Úkraínu. Við erum að verja gildi Evrópu og gildi heimsins.“ Erlent 16.3.2022 14:40
Zaghari-Ratcliffe á leið heim eftir að hafa verið haldið í Íran í sex ár Nazanin Zaghari-Ratcliffe, bresk-írönsk kona sem hefur verið haldið fanginni í Íran í nærri sex ár, er á leið heim. Þingmaður Zaghari-Ratcliffe greindi frá þessu á Twitter í morgun og sagði hana á flugvellinum í Tehran. Erlent 16.3.2022 11:46
Breyting klukkunnar gæti heyrt sögunni til á næsta ári Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti einróma að festa sumartímann (e. daylight saving time) varanlega í sessi. Verði lagafrumvarpið samþykkt af fulltrúadeild þingsins og Bandaríkjaforseta gæti breytingin tekið gildi í nóvember 2023, að því er kemur fram í frétt New York Times. Erlent 16.3.2022 10:50
Ný eldflaug sögð hafa sprungið í loft upp yfir Norður-Kóreu Nýtt eldflaugaskot frá Norður-Kóreu virðist hafa misheppnast í morgun og er eldflaugin sögð hafa sprungið í loft upp. Talið er að um sé að ræða eldflaug sem geti borið kjarnorkuvopn en þetta er í tíunda sinn á þessu ári sem eldflaug er skotið á loft frá einræðisríkinu einangraða. Erlent 16.3.2022 09:41
Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16.3.2022 09:01
Selenskí segir samningamenn eygja möguleika á málamiðlun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir nú möguleika á málamiðlun eftir viðræður fulltrúa Úkraínu og Rússlands í gær. Ekkert lát er hins vegar á árásum Rússa og þá hafa fregnir borist af grimmilegum aftökum almennra borgara. Erlent 16.3.2022 06:21
Loddaranum Önnu Sorokin vísað frá Bandaríkjunum Bandarísk stjórnvöld hyggjast vísa Önnu Sorokin, einnig þekkt sem Anna Delvey, úr landi og senda hana aftur til Þýskalands. Anna gerði garðinn frægan þegar hún þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York sem féll kylliflatt fyrir blekkingum hennar. Erlent 15.3.2022 23:50
Vill að fólk fætt 2010 og seinna fái aldrei að kaupa nikótín Heilbrigðisráðherra Danmerkur kynnti í dag áætlun sem ætlað er að koma í veg fyrir að einstaklingar fæddir árið 2010 og seinna nái nokkurn tímann tilskildum aldri til kaupa á vörum sem innihalda nikótín. Erlent 15.3.2022 22:31
Hver Pólverji reiðubúinn að taka Úkraínumenn inn á heimili sitt Flóttamannastraumurinn frá Úkraínu undanfarnar tæpar þrjár vikur hefur mætt mest á Pólverjum. Sendiherra þeirra á Íslandi segir pólsku þjóðina ætla að standa með Úkraínumönnum gegn ofbeldi Putins allt þar til Úkraínumenn vinni stríðið. Erlent 15.3.2022 21:48
Segja Rússa halda mörg hundruð manns í gíslingu á spítala í Mariupol Rússneskir hermenn eru sagðir halda um fjögur hundruð manns í gíslingu á sjúkrahúsi í Mariupol. Sergei Orlov aðstoðarborgarstjóri segir hermennina hafa rutt sér leið inn í sjúkrahúsið og tekið fólk þar og íbúa í nærliggjandi húsum í gíslingu. Erlent 15.3.2022 21:27
Þúsundir Úkraínumanna snúa til baka í stríðið Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðast liðna nótt. Erlent 15.3.2022 19:21
Rússar skutu almennan borgara sem hafði hendur á lofti til bana Þann 7. mars síðastliðinn skutu rússneskir hermenn almennan úkraínskan borgara til bana þrátt fyrir að hann hafi reitt hendur á loft. Erlent 15.3.2022 18:01
Vaktin: „Með svona bandamenn munum við vinna þetta stríð“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur hvatt rússneska hermenn til að gefast upp. Sagði hann í ávarpi seint í gærkvöldi að komið yrði fram við þá eins og manneskjur, ólíkt því hvernig rússneski herinn hefði komið fram við Úkraínumenn. Erlent 15.3.2022 16:25
Eiffelturninn orðinn sex metrum hærri Eiffelturninn í frönsku höfuðborginni París varð í morgun sex metrum hærri eftir að nýju loftneti var komið fyrir á toppi turnsins. Erlent 15.3.2022 12:59
Telja sig hafa handtekið morðingjann í New York og Washington Lögreglan í Washington DC hefur handtekið mann sem grunaður er um hafa myrt minnst tvo heimilislausa menn og sært þrjá til viðbótar í New York og Washington DC. Verið er að yfirheyra hann í Washington. Erlent 15.3.2022 12:30
Kristinn kallar eftir skýrri afstöðu þingmanna í máli Assange Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks hefur rætt við þingmenn ýmissa ríkja og kallar eftir víðtækri pólitískri samstöðu sem feli í sér fordæmingu á meðferðinni á Julian Assange. „Nú er lag,“ segir hann í samtali við Vísi. Erlent 15.3.2022 11:55
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar í basli með birgðir og liðsauka Hersveitir Rússlands hafa lítið sótt fram í Úkraínu á undanförnum dögum. Bæði í norðri, í sókn Rússa að Kænugarði, og í suðri, þar sem Rússar hafa setið um Maríupól og reynt að sækja að Odessa, hefur lítið gengið og er það að miklu leyti rekið til birgða- og samskiptavandræða. Erlent 15.3.2022 11:13
Sonur túrmenska einvaldsins vann yfirburðasigur í forsetakosningum Serdar Berdymukhamedov, sonur túrkmenska einvaldsins Gurbanguly Berdymukhamedov, vann stórsigur í forsetakosningum í landinu um helgina. Hann mun því taka við embættinu af föður sínum sem stýrt hefur landinu frá árinu 2006. Erlent 15.3.2022 10:25
Bandaríkjamenn telja Kínverja nú þegar hafa ákveðið að koma Pútín til aðstoðar Bandaríkjamenn óttast að Kínverjar séu nú þegar búnir að ákveða að koma Rússum til bjargar efnahags- og fjárhagslega og séu að íhuga að sjá þeim fyrir vopnum, meðal annars vopnuðum drónum. Erlent 15.3.2022 06:31
Starfsmaður rússneska ríkissjónvarpsins mótmælti stríðinu í beinni útsendingu Kona truflaði fréttaútsendingu rússnesku ríkisstöðvarinnar Channel One Russia um klukkan 21:30 að staðartíma í kvöld til að mótmæla stríðinu í Úkraínu. Konan starfar hjá sjónvarpsstöðinni að sögn mannréttindalögfræðingsins Pavels Chikov og OVD-Info, sjálfstæðs mannréttindahóps sem vaktar mótmæli í Rússlandi. Erlent 14.3.2022 22:16
Gríðarlega stór tölvuárás gerð á ísraelsk stjórnvöld Fjölmargar tölvuárásir hafa verið gerðar á vefsíður ísraelskra stjórnvalda í dag. Vefsíður innanríkis-, heilbrigðis-, dóms- og velferðarráðuneyta voru óaðgengilegar um stund, auk vefsíðu forsætisráðuneytisins, vegna árásanna. Erlent 14.3.2022 19:55
Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2022 14:42
Blóðugt ofbeldi í mexíkóskum fótbolta Fjölmiðlar í Mexíkó fullyrða að allt að 17 manns hafi látist í blóðugum átökum sem brutust út á fótboltaleik þar í landi um síðustu helgi. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Erlent 14.3.2022 14:30
Þíða í samskiptum Armena og Tyrkja Utanríkisráðherrar Armeníu og Tyrklands funduðu í Tyrklandi á laugardaginn og voru viðræðurnar, sem miða að því að bæta samskipti ríkjanna, sagðar hafa verið bæði „árangursríkar“ og „uppbyggilegar“. Um er að ræða fyrsta eiginlega fund utanríkisráðherra nágrannaríkjanna frá árinu 2009. Erlent 14.3.2022 14:01
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47
Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. Erlent 14.3.2022 10:38
Skaut þrjá heimilislausa menn í New York um helgina Lögregla í New York í Bandaríkjunum leitar nú manns sem skaut þrjá heimilislausa einstaklinga, og þar af tvo til bana, þar sem þeir lágu sofandi á götum borgarinnar um helgina. Lögregla hefur boðið 10 þúsund dali fyrir þann sem veitir upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins. Erlent 14.3.2022 08:14
Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14.3.2022 06:54
Viðræður Úkraínumann og Rússa halda áfram og Bandaríkjamenn biðla til Kínverja Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu ræða saman í dag í gegnum fjarfundabúnað, segir Mykhailo Podoliak, ráðgjafi Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Talsmenn beggja þjóða hafa sagt eitthvað orðið ágengt, jafnvel þótt engar vísbendingar séu uppi um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé reiðubúinn til að slá af kröfum sínum. Erlent 14.3.2022 06:32
Birgir fann vel fyrir sprengingunni við Lviv Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var við hjálparstörf í borginni Lviv í Úkraínu í dag. Stór eldflaugaárás var gerð á herstöð nærri borginni í morgun og kveðst Birgir vel hafa fundið fyrir henni. Hann er nú kominn til Póllands og segir ástandið átakanlegt. Erlent 13.3.2022 22:46