Erlent
168 169 170 171 172 173 174 175 176 … 334 ›
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. Erlent 15.3.2023 10:29
5.600 tonn af rusli hlaðborð fyrir rottur Parísarborgar Borgaryfirvöld í París segja 5.600 tonn af rusli hafa safnast upp í borginni eftir að sorphirðustarfsmenn lögðu niður störf til að mótmæla fyrirætlunum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldurinn úr 62 árum í 64 ár. Erlent 15.3.2023 09:00
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. Erlent 15.3.2023 07:49
Enn fækkar þeim ríkjum sem styðja Taívan Forseti Hondúras, Xiomara Castro segist hafa fyrirskipað utanríkisráðuneyti landsins að koma á formlegum tengslum við stjórnvöld í Kína. Erlent 15.3.2023 07:40
Fellibylurinn Freddy orðinn sá langlífasti í sögunni Fellibylurinn Freddy hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Afríkuríkjunum Malaví og Mósambík en tala látinna á svæðinu fór yfir 200 í gær. Erlent 15.3.2023 07:35
Kjósendur styðja forseta sem ætlar að brjóta gegn stjórnarskrá Hátt í sjötíu prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun styðja Nayib Bukele, forseta El Salvador, til endurkjörs þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins kveði á um að forseti geti ekki setið fleiri en eitt kjörtímabil í einu. Bukele ætlar að bjóða sig fram engu að síður. Erlent 15.3.2023 07:01
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15.3.2023 06:40
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. Erlent 14.3.2023 23:33
Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 23:32
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. Erlent 14.3.2023 21:55
Konungur Serengeti er dauður Ljónið Bob yngri, oft þekktur sem Konungur Serengeti-þjóðgarðsins í Tansaníu, er dautt. Talið er að nokkur yngri ljón hafi drepið hann. Erlent 14.3.2023 20:46
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14.3.2023 19:58
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2023 17:33
Játa að hafa orðið tólf ára stúlkunni að bana Tvær stúlkur, tólf og þrettán ára gamlar, játuðu að hafa orðið annarri tólf ára stúlku að bana í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Tilkynnt var um hvarf stúlkunnar síðastliðinn laugardag og fannst hún svo látin síðdegis daginn eftir. Erlent 14.3.2023 17:14
Dæmd í átta ára fangelsi fyrir að ljúga ítrekað um nauðganir Bresk kona hefur verið dæmd til átta og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að ljúga því að henni hefði verið nauðgað og gerð að kynlífsþræl af asískum mönnum. Hún laug því einnig að aðrir menn hefðu brotið á sér kynferðislega. Hin 22 ára gamla Eleanor Williams er sögð hafa barið sjálfa sig með hamri og veitt sér þannig sár sem hún sakaði mennina um að hafa valdið. Erlent 14.3.2023 14:13
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. Erlent 14.3.2023 14:01
Tólf og þrettán ára grunaðar um að hafa myrt jafnöldru sína Síðastliðinn laugardag hvarf tólf ára gömul stúlka í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Stúlkan fannst látin daginn eftir en talið er að hún hafi verið myrt. Tvær jafnöldrur stúlkunnar eru grunaðar um morðið. Erlent 14.3.2023 13:17
Að minnsta kosti fimm börn getin með stolnu sæði Læknir á sjúkrahúsinu í Halmstad í Svíþjóð tók sæði frá mönnum sem höfðu skilað inn sýnum vegna frjósemisrannsókna og notaði til að gera konur þeim ókunnugar þungaðar. Frá þessu var greint í Uppdrag granskning fyrir helgi. Erlent 14.3.2023 13:15
Sérfræðingar uggandi og Kínverjar æfir vegna AUKUS Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í gær formlega um samkomulag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu um þróun og framleiðslu kjarnorkuknúinna herkafbáta. Erlent 14.3.2023 10:21
Kirkjugarður í Wales varð að vígvelli Nýlega opinberað myndband sýnir hvernig hópur manna barðist með hömrum, kylfum, hnífum, öxum og sveðjum í Morriston kirkjugarðinum í Swansea í Wales í fyrra. Þrettán hafa verið dæmdir vegna átakanna en þau leiddu til þess að nokkrir særðust alvarlega, jarðarfarir voru truflaðar og legsteinar skemmdir. Erlent 14.3.2023 09:54
Kínverjar opna fyrir erlendum gestum Kínverjar hafa ákveðið að opna landamæri sín fyrir erlendum ferðamönnum á ný eftir kórónuveirufaraldurinn og taka breytingarnar gildi strax á morgun miðvikudag. Erlent 14.3.2023 07:38
Tveir látnir í Kanada eftir að ekið var á gangandi vegfarendur Tveir menn eru látnir og níu særðir eftir að pallbíl var ekið á gangandi vegfarendur í bænum Amqui, norður af borginni Quebec, í Kanada. Lögregla hefur handtekið 38 ára ökumann bifreiðarinnar og verið er að rannsaka hvort hann ók viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 07:22
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. Erlent 13.3.2023 23:39
Glitter sendur aftur í fangelsi Barnaníðingurinn Gary Glitter var kallaður aftur til afplánunar í fangelsi rétt rúmum mánuði eftir að hann var látinn laus til reynslu. Bresk fangelsisyfirvöld segja að hann hafi rofið skilmála lausnarinnar. Erlent 13.3.2023 20:46
Tæplega hundrað látnir eftir fellibyl í Malaví Fellibylurinn Freddy skall á suðurhluta Malaví í dag og létu 99 manns lífið. Að minnsta kosti 134 dvelja nú á spítala eftir fellibylinn. Erlent 13.3.2023 20:43
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. Erlent 13.3.2023 15:23
Ísland efst á meðal þjóða sem geta tekist á við offituvandann Ísland er í fjórða efsta sæti á lista yfir lönd sem eru best sett til að takast á við offituvandann. Erlent 13.3.2023 14:57
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. Erlent 13.3.2023 14:30
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13.3.2023 13:44
Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“. Erlent 13.3.2023 11:09