Fótbolti

Mourinho hjálpaði lærisveinum Damiens Duff að verða Írlandsmeistarar
Damien Duff stýrði liði Shelbourne til fyrsta deildarmeistaratitilsins á Írlandi í 18 ár. Hann sótti innblástur til tíma síns sem leikmanns undir José Mourinho, sem sendi liðinu myndskilaboð fyrir leik og hvatti þá til sigurs.

Emilía Kiær komst ekki á blað í toppslagnum
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir spilaði níutíu mínútur í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar þar sem lið hennar Nordsjælland tapaði 2-1 á útivelli gegn Fortuna.

Cecilía Rán varði mark Inter í svekkjandi tapi gegn Fiorentina
Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði mark Inter í 2-1 tapi gegn Fiorentina í áttundu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Hún átti fjórar vörslur í dag, þar af tvær úr skotum inni í vítateig, en gat ekki komið í veg fyrir endurkomu Fiorentina.

Tottenham skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik eftir að hafa lent undir
Tottenham lenti undir gegn Aston Villa en skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik og fór með 4-1 sigur í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Samningi Marcelo rift eftir rifrildi á hliðarlínunni
Marcelo og brasilíska félagið Fluminese hafa komist að samkomulagi um samningslok leikmannsins, eftir rifrildi við þjálfarann Mano Menezes á hliðarlínunni þegar Marcelo undirbjó sig fyrir að koma inn á gegn Gremio í deildarleik á dögunum.

Tuchel fær að vera í fjarvinnu og mun búa langt frá æfingasvæðinu
Thomas Tuchel hefur fengið leyfi frá enska knattspyrnusambandinu fyrir því að vera að hluta til í fjarvinnu. Hann mun lifa og starfa í bæði Lundúnum og München, þegar hann tekur við starfi landsliðsþjálfara í janúar.

Um þrjú hundruð vörubílsfarmar af efni: „Engu keyrt í burtu“
Fyrsta skref í uppbyggingu Laugardalsvallar gengur vel og er á áætlun. Formaður KSÍ segir stefnuna svo að byggja völlinn enn frekar upp og enda með mannvirki sem við getum verið stolt af.

Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni
Theodór Elmar Bjarnason batt enda á 20 ára leikmannaferil sinn í fótboltanum síðustu helgi. Hans síðasti leikur var 7-0 sigur KR á HK í Bestu deild karla. Ferill Elmars dró hann víða um heim og óhætt að segja að hann hafi verið viðburðarríkur.

„Ég held að við getum orðið enn betri“
Nuno Espirito Santo, þjálfari Nottingham Forest sem situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, segir sína menn eiga meira inni. Liðið hefur ekki verið eins ofarlega í töflunni í 26 ár.

Jafnt eftir markaveislu í mikilvægum slag á fallsvæðinu
Wolverhampton Wanderers og Crystal Palace skildu jöfn, 2-2, í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Wolves er því enn sigurlaust og í neðsta sæti, Palace situr í því sautjánda með sjö stig.

Juventus ekki enn tapað deildarleik á tímabilinu
Juventus hefur enn ekki tapað leik og er eina lið ítölsku úrvalsdeildarinnar sem getur státað sig af því. Taplausa hrinan hélt áfram með 2-0 sigri gegn Udinese í dag.

Kolbeinn skoraði í síðasta heimaleik tímabilsins
Kolbeinn Þórðarson skoraði mark Göteborg í 1-1 jafntefli gegn Kalmar í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.

Guðlaugur Victor horfði þrisvar á eftir boltanum í netið gegn Leeds
Guðlaugar Victor Pálsson var í byrjunarliði Plymouth Argyle annan leikinn í röð en liðið mátti þola slæmt 3-0 tap gegn Leeds.

Nottingham Forest í þriðja sæti og Southampton með fyrsta sigurinn
Nottingham Forest fór upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 3-0 sigri gegn West Ham. Southampton tók á móti Everton og vann sinn fyrsta leik á tímabilinu, líkt og Ipswich vonaðist til gegn Leicester en þeir skoruðu jöfnunarmark í uppbótartíma.

Bournemouth slapp með sigur eftir stangarskot í uppbótartíma
Bournemouth tók á móti Manchester City og vann 2-1 sigur. Heimamenn komust tveimur mörkum yfir gegn Englandsmeisturunum sem áttu erfitt með að skapa sér góð færi. Tapið þýðir að Liverpool situr í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig, City er þar á eftir með 23 stig.

Toppsætið tryggt með tveimur mörkum á tveimur mínútum
Liverpool tryggði sér efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri gegn Brighton á Anfield. Heimamenn lentu undir en tvö mörk á tveimur mínútum í seinni hálfleik tryggðu sigurinn. Manchester City tapaði samtímis gegn Bournemouth og Liverpool er því með tveggja stiga forystu á toppnum.

Kane allt í öllu í sigri Bayern
Harry Kane var aðalmaðurinn í 3-0 sigri Bayern München gegn Union Berlín í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Diljá skoraði í bikar og Daníel lék fyrir meistarana
Hinn 18 ára gamli Daníel Tristan Guðjohnsen lék í dag sínar fyrstu mínútur á þessari leiktíð fyrir nýkrýnda meistara Malmö, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide
Åge Hareide, klandsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segir að nýr stjóri Manchester United, Ruben Amorim, sé einfaldlega of ungur fyrir starfið.

Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla
Sænski landsliðsmaðurinn Alexander Isak skoraði sigurmarkið þegar Newcastle vann Arsenal 1-0 í fyrsta leik dagsins, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sjáðu frábært mark Hlínar sem berst um gullskó
Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir hefur raðað inn mörkum fyrir Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í ár og hún skoraði frábært mark gegn Djurgården í dag.

Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra
Vestramenn léku í fyrsta sinn í Bestu deildinni í fótbolta í sumar og náðu að halda sér uppi. Ljóst er að þeir mæta með mikið breytt lið á næstu leiktíð.

Sky segir Liverpool með tvo í sigtinu sem arftaka Salah
Liverpool fylgist grannt með tveimur leikmönnum sem eru afar áberandi hjá sínum liðum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl
Líkt og við sögðum ykkur frá í gær ganga framkvæmdir við Laugardalsvöll vel og stefnt er að því að leika fyrsta leik á honum í júní á næsta ári. Grasvallatæknifræðingur sem er KSÍ innan handar segir það aðeins munu taka um sex vikur frá sáningu vallarins, sem ráðgert er að fari fram í mars, þar til að hann verður leikhæfur.

Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum
Miðvörðurinn sterkbyggði Axel Óskar Andrésson og KR hafa komist að sameiginlegri ákvörðun um að hann yfirgefi félagið.

Lið Dags tapaði í vító og þarf oddaleik
Dagur Dan Þórhallsson og félagar í Orlando City þurfa að mæta Charlotte í þriðja sinn til að skera úr um sigurvegara, í einvígi liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni bandarísku MLS-deildarinnar í fótbolta.

Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“
Birkir Már Sævarsson lauk knattspyrnuferli sínum um síðustu helgi þegar hans menn í Val unnu 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla. Birkir Már í atvinnumennsku í rúman áratug og er á meðal leikjahærri manna í sögu landsliðsins.

Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið
Eftir að hafa flutt aftur heim til Englands er fótboltamaðurinn Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið.

Öruggt hjá Bröndby og Karólína og Leverkusen upp í annað sætið
Íslendingaliðin Bröndby og Bayer Leverkusen unnu sína leiki í sínum deildum í kvöld. Bröndby vann 0-3 útisigur á B93 í dönsku úrvalsdeildinni og í þýsku úrvalsdeildinni sigraði Bayer Leverkusen Köln, 1-2.

Þriðja tap Düsseldorf í síðustu fjórum leikjum
Düsseldorf tapaði fyrir Preussen Münster, 1-0, í þýsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var þriðja tap Düsseldorf í síðustu fjórum leikjum.