Fótbolti

Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu

Rúnar Alex Rúnarsson stóð í marki FC Kaupmannahafnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli, 0-0, gegn Inter Turku í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í Finnlandi í kvöld.

Fótbolti

Eiður gaf Liverpool al­gjöra fall­ein­kunn

Eftir mikil fjárútlát í fyrrasumar hefur Liverpool haft mun hægara um sig á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar gefa félaginu falleinkunn eftir viðskipti sumarsins en enn er tími til að breyta þeirri einkunn.

Enski boltinn

Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosa­lega hrifinn“

Sér­fræðingar Messunnar á Sýn Sport voru ekki sammála um það hversu góð kaup Arsenal hafi gert með því að fá Bruno Guimara­es til liðs við sig frá New­cast­le United á 75 milljónir punda. Eiður Smári Guðjohn­sen hefði viljað sjá Arsenal taka annan miðju­mann frá New­cast­le.

Enski boltinn

„Versta ár ævi minnar“

Belgíski framherjinn Romelu Lukaku segist hafa gengið í gegnum erfiðasta ár ævi sinnar á síðustu leiktíð. Hann missti föður sinn og var beittur fjárkúgun fyrir jarðarförina, glímdi mikið við meiðsli og átti í stormasömu sambandi við þáverandi vinnuveitendur sína í Napoli.

Fótbolti

Mætti með seðla­búntin inn í klefa í sigur­vímu

Formaður albanska knattspyrnufélagsins Dinamo City mætti með seðlabúnt í tösku beint inn í búningsklefa leikmanna og gladdist með þeim eftir að liðið komst í umspil Sambandsdeildar Evrópu. Hann lofaði leikmönnum enn meiri peningum komist liðið í gegnum umspilið.

Fótbolti

Tijjani Reijnders farinn

Hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders hefur gengið frá félagaskiptum frá Manchester City til sádi-arabíska félagsins Al-Qadsiah. Kaupverðið er sagt vera 52 milljónir punda, eða því sem samsvarar 8,6 milljörðum íslenskra króna.

Enski boltinn

Lík fannst á leik­vangi Charlton

Maður á fertugsaldri fannst látinn á leikvangi Charlton Athletic, nokkrum dögum eftir fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku Championship deildinni. Lögreglurannsókn er hafin.

Enski boltinn