Neytendur
1 2 3 4 5 6 7 … 31 ›
Áhyggjuefni að fasteignaeigendum fjölgi hjá umboðsmanni skuldara Fasteignaeigendum hefur fjölgað undanfarið hjá umboðsmanni skuldara. Ásta Sigrún Helgadóttir umboðsmaður skuldara segir það mikið áhyggjuefni. Málin séu oft flóknari en hjá þeim sem eigi lítið. Hún segir heildarfjölda ekki hafa fjölgað hjá þeim en umsóknir á árinu eru um 500. Neytendur 16.10.2025 11:26
Bæta meðgönguvernd við hefðbundna sjúkdómatryggingu Vörður tryggingar hefur bætt meðgöngu-, fæðingar- og foreldravernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar án þess að hækka kostnað vegna tryggingarinnar. Í tilkynningu kemur fram að þessi nýja trygging hafi það markmið að styðja við foreldra. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni milljón. Verndin gildir á meðan meðgöngu stendur, í fæðingu og þar til barn nær eins árs aldri. Neytendur 16.10.2025 08:55
Segjast taka ábendingum alvarlega og hafa verðlagningu til skoðunar Rekstraraðili fríhafnarverslana í Keflavík, Ísland Duty Free, hafa verðlangingu á áfengi í verslunum félagsins í Keflavík til skoðunar í framhaldi af umfjöllun um verðlag. Ábendingunum sé tekið alvarlega og hyggst fyrirtækið skoða sérstaklega verðlagningu þeirra vara sem reynast dýrari í fríhöfninni en í verslunum innanlands. Vísir greindi í morgun frá úttekt Félags atvinnurekenda sem meðal annars leiddi í ljós að áfengi í fríhöfninni í Keflavík sé allt að 81% dýrara en í fríhafnarverslunum á vegum sama fyrirtækis annars staðar í Evrópu. Neytendur 15.10.2025 13:43
Vara við sósum sem geta sprungið Mjólkursamlag KS hefur ákveðið að innkalla fjórar tilteknar framleiðslulotur af pitsasósu, sem seldar eru undir merkjum IKEA, Bónus og E. Finnsson. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á seinni gerjun eftir framleiðslu, sem getur valdið því að flöskur bólgni og jafnvel springi. Neytendur 15.10.2025 11:45
Áfengi umtalsvert dýrara í íslensku fríhöfninni en öðrum og jafnvel dýrara en í Ríkinu Verðsamanburður Félags atvinnurekenda á nokkrum áfengistegundum sem seldar eru í fríhafnarverslunum Heinemann leiðir í ljós að mörg dæmi eru um að vörurnar séu umtalsvert dýrari á Keflavíkurflugvelli en í öðrum fríhafnarverslunum sem fyrirtækið rekur í Evrópu. Verðmunurinn nemur allt að 81% á ákveðnum tegundum en minnsti munur 22%. Í öllum tilfellum er áfengið dýrast í íslensku fríhöfninni. Dæmi eru einnig um að áfengi í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli sé dýrara en hjá ÁTVR. Neytendur 15.10.2025 10:23
„Þeir sem stunda innbrot í tölvukerfi leita alltaf veikustu hlekkjanna“ Í dag hættir Microsoft formlega að veita stuðning við Windows 10 stýrikerfið. Í tilkynningu frá tæknifyrirtækinu OK segir að samkvæmt mælingum í september á þessu ári séu allt að 40 prósent tölva með Windows stýrikerfið enn að keyra á Windows 10. Mælingar á Íslandi bendi til þess að um 37 prósent tölva séu með Windows 10 en var um 47 prósent í júní Neytendur 14.10.2025 14:02
Fær taugaveiklaðan hund endurgreiddan Hundaræktendum hefur verið gert að endurgreiða konu 380 þúsund krónur vegna kaupa hennar á árs gömlum hundi, sem var sagður húsvanur. Konan skilaði hundinum þar sem hún taldi hann haldinn taugaveiklun. Neytendur 13.10.2025 14:54
Greiði við nýlega einhleypa konu sprakk í andlit flutningsþjónustu Flutningsþjónusta sem par nokkuð rekur þarf að punga út nokkur hundruð þúsund krónum eftir að hafa stefnt nýlega einhleypri konu vegna vangreiðslu. Konan sagði eiganda og bílstjóra þjónustunnar hafa boðið aðstoð endurgjaldslaust og blöskraði svo þegar reikningur upp á tæplega hundrað þúsund krónur barst. Neytendur 13.10.2025 11:46
Situr uppi með sófann með „slaka stífleikann“ Viðskiptavinur sem kvartaði yfir slökum stífleika í sætispúðum eftir kaup á sófa situr uppi með sófann eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hafnaði kröfu hans um endurgreiðslu. Hann sendi kvörtunarpósta á verslunina tvo nýársdaga í röð. Neytendur 13.10.2025 08:12
Gagnrýna steinefni fyrir börn og vilja að framleiðendur vandi sig Hópur næringarfræðinga gagnrýnir markaðssetningu steinefnadrykkja sem ætlaðir eru börnum. Hann segir frá rangfærslum um sætuefni og næringargildi í markaðssetningu slíks drykkjar og hvetur foreldra til að láta markaðsöfl ekki afvegaleiða sig. Neytendur 12.10.2025 13:51
Sjá rukkun og „sirka tilboð“ gjörólíku ljósi Bílaeigandi sem lét skipta um rúðu í bíl sínum segir verkstæðið hafa okrað á sér og hækkað verð að tilefnislausu. Framkvæmdastjóri segir það af og frá, farið sé eftir föstum verðlista sem ákveðinn sé í samráði við tryggingafyrirtæki. Formaður Neytendasamtakanna segir um skrítnar eftiráskýringar að ræða, fyrirtækið eigi að bera hallann af því ef um mistök sé að ræða. Neytendur 11.10.2025 14:00
Mjög leiðinlegt mál en tilboðið hafi aldrei verið samþykkt Helgi Gíslason hjá Byggingafélaginu Landsbyggð segir að upplýsingagjöf til ekkju í Hafnarfirði í fasteignaviðskiptum hefði mátt vera betri. Eftir standi að seljandi hafi ekki verið búinn að samþykkja tilboð. Neytendur 10.10.2025 15:01
Ekki ósanngjarnt af flugfélagi að láta viðskiptavin greiða eigin mistök Kærunefnd hafnaði kröfu viðskiptavinar flugfélags um endurgreiðslu eftir að hann bókaði sjálfur ranga ferð fyrir mistök. Viðskiptavinurinn taldi það ósanngjarnt að fá ekki að lagfæra bókunina. Neytendur 10.10.2025 14:21
Ekkja í Hafnarfirði missti af íbúð þrátt fyrir samþykki Atli Þór Albertsson, fasteignasali og skemmtikraftur, segir fasteignasölu í Hafnarfirði og byggingaverktaka hafa svikið tengdamóður sína við fasteignakaup. Hún hafi samþykkt uppsett verð, selt íbúðina sína en síðan fengið þau svör að íbúðin hefði verið seld öðrum í millitíðinni. Fasteignasalan og verktakinn bendi hvor á annan en Atli vekur athygli á því að enginn hafi svo mikið sem beðið tengdamóður sína afsökunar. Neytendur 10.10.2025 13:39
Ferðamaður sem sá Þingvelli í myrkri fær endurgreitt að hluta Ferðaþjónustufyrirtæki þarf að endurgreiða erlendum ferðamanni rúmlega 53 þúsund krónur vegna ferðar um Suðurland sem var ekki í samræmi við auglýsta dagskrá. Ferðamaðurinn þurfti að skoða Þingvelli og Reynisfjöru í myrkri og missti af Jökulsárlóni og Fellsfjöru. Neytendur 10.10.2025 13:36
Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Bílastæðamál eru meðal fyrirferðarmestu málaflokkanna sem rata inn á borð Neytendastofu. Forstjóri stofnunarinnar teldi það til bóta ef skýrar reglur væru til um gjaldskyld stæði. Neytendur 9.10.2025 17:54
Innkalla eitrað te Matvælastofnun varar við framleiðslulotu af tei frá vörumerkinu Herbapol vegna náttúrulegra eiturefna í því. Varan hefur verið innkölluð. Neytendur 6.10.2025 15:22
Eftirlitsstofnanir vara við sýndareignum Þrjár evrópskar stofnanir sem hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum hafa gefið út viðvörun til neytenda um að sýndareignir geti verið áhættusamar og að vernd, ef einhver er, geti verið takmörkuð eftir því í hvaða sýndareignum þeir fjárfesta. Neytendur 6.10.2025 10:46
Segir lítinn sóma af verðhækkunum Icelandair Formaður Neytendasamtakanna segir engan brag af verðhækkunum hjá Icelandair í kjölfar gjaldþrots Play. Þrátt fyrir mikið framboð af flugferðum til og frá Íslands hafa ferðaskrifstofur lent í vandræðum með endurskipulagningu ferða. Neytendur 4.10.2025 21:31
ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Breytingar á fiskbúðingnum frá ORA hafa vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum. Framkvæmdastjóri segir aðdáendur þessara sögufræga réttar ekki þurfa að örvænta, menn hjá ORA hafi gert tímabundnar tilraunir við eldun búðingsins sem nú hefur verið hætt. Neytendur 2.10.2025 07:03
Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Það skiptir máli fyrir þá sem hyggjast fá endurgreitt frá Play vegna flugferðar sem ekki var farið í eftir gjaldþrot félagsins, hvernig greitt var fyrir ferðina. Gjafabréf enda sem kröfur í þrotabú. Neytendur 29.9.2025 10:30
Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Airpods Pro 3 kosta 28 til 65 prósent meira á Íslandi en í átta samanburðarlöndum. Verðmunurinn er mun meiri en á nýjum iPhone símum. Neytendur 22.9.2025 14:14
U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Eftir svarta skýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í sumar hafa forsvarsmenn skyndibitastaðarins Metro tekið veitingastaðinn í gegn. Í sumar var slæmum aðbúnaði og almennum óþrifnaði staðarins lýst en mánuði seinna kom staðurinn út úr eftirliti án athugasemda. Neytendur 19.9.2025 11:04
Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað Sparisjóðurinn indó hefur lækkað vexti og býður nú útlánsvexti sem eru með því allra lægsta sem í boði er og án bullgjalda, eins og segir í tilkynningu. Samhliða lækka vextir á veltureikningum og sparibaukum. Með lækkuninni boðar indó enn frekari innreið á lánamarkað sem fylgt verður eftir á næstunni með nýjum lánavörum. Neytendur 17.9.2025 11:13
„Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Wolt harmar atvik þar sem sendill á sínum vegum virðist hafa fengið sér bita af mat viðskiptavinar. Slík hegðun gæti leitt til þess að sendill missi vinnuna. Umræddur sendill hafi reyndar ekki verið látinn fara enda hafi fyrirtækinu aldrei borist formleg kvörtun vegna málsins. Neytendur 16.9.2025 22:32
Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Eigendur Parka-appsins þurfa að lækka greiðslukröfu karlmanns sem greiddi fyrir rangt stæði um 3.500 krónur eða sem nemur vangreiðslugjaldi fyrirtækisins. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa þótti Parka ekki upplýsa með skýrum og áberandi hætti um innheimtu vangreiðslugjalds og fjárhæð þess. Neytendur 16.9.2025 06:32
Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Ferðamaður sem bókaði pakkaferð á fjarlægar slóðir með íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina endurgreidda þótt hann hafi ekki óskað eftir afbókun fyrr en þremur dögum fyrir brottför. Verulegar breytingar sem ferðaskrifstofan gerði á hinni bókuðu ferð veittu ferðamanninum rétt til þess að mati kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Neytendur 15.9.2025 07:02
Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Lögmaður í Reykjavík hefur nýtt sér heimsendingarþjónustu Wolt í síðasta skipti. Mælirinn fylltist þegar stóran hluta af pöntun vantaði í vikunni. Í fyrri pöntun hafði vantaði pítsusneið í pítsukassa. Wolt biðst afsökunar á þessum misbrestum. Neytendur 12.9.2025 19:02
Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Bílaleigu á Íslandi hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum tæpa hálfa milljón króna í kjölfar þess að hafa rukkað hann um ýmsan kostnað í kjölfar þess að hann hafði fyrir dælt dísil á bílaleigubílinn sem knúinn var bensíni. Ástæðan er að upplýsingar og merkingar hafi ekki verið nægilega skýrar um að bensínbíl væri að ræða. Neytendur 12.9.2025 14:05
Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Hótel á Íslandi þarf að endurgreiða viðskiptavini 22 evrur, eða rúmar þrjú þúsund krónur, þar sem sjónvarpið á hótelherberginu virkaði ekki. Neytendur 12.9.2025 06:32