
Formúla 1

Leclerc fyrstur í mark í Texas
Það var góður dagur fyrir Ferrari í Texas kappakstrinum í Formúlu 1 í kvöld en þeir Charles Leclerc og Carlos Sainz tóku efstu tvö sætin í kappakstrinum.

Hamilton úr leik á þriðja hring
Hinn sjöfaldi heimsmeistari Lewis Hamilton er úr leik í bandaríska Formúla 1 kappakstrinum en hann endaði út af brautinn og pikkfastur í sandi eftir aðeins þrjá hringi.

Annað Schumacher-brúðkaup gæti verið í vændum
Dóttir Michaels Schumacher gekk í það heilaga um helgina og áður en langt um líður gæti sonur hans líka verið á leið í hnapphelduna.

Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár
Fyrrverandi Formúlu 1 ökuþórinn Michael Schumacher var viðstaddur brúðkaup dóttur sinnar á Mallorca á Spáni um helgina og sást þar meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár.

Hamilton opnar sig um þunglyndi og einelti: „Hafði engan til að tala við“
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur frá unga aldri glímt við þunglyndi samhliða því að reyna skapa sér nafn og skara fram úr í mótorsportheiminum. Í opinskáu viðtali við The Times talar Hamilton um baráttu sína við þunglyndi og opnar sig um einelti sem hann varð fyrir í skóla.

Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB
Liam Lawson hefur leyst Daniel Ricciardo af hólmi hjá RB það sem eftir lifir tímabils í Formúlu 1.

Þrír ákærðir fyrir að reyna að fjárkúga fjölskyldu Schumacher
Saksóknari í Wuppertal hefur ákært þrjá menn fyrir að reyna að kúga fé út úr fjölskyldu Michaels Schumacher, fyrrverandi heimsmeistara í Formúlu 1.

Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið
Singapúr kappaksturinn í gær er að öllum líkindum sá síðasti á Formúlu 1 ferli Ástralans Daniel Ricciardo, ökuþórs RB liðsins. Hann mætti tárvotur í viðtal eftir að hafa lent í 18.sæti í gær.

Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti
Max Verstappen, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, segir að það að honum hafi verið refsað fyrir að blóta á blaðamannafundi gæti flýtt fyrir því að hann hætti í íþróttinni og snúi sér að öðrum akstursíþróttum.

Norris nálgast Verstappen eftir sigur í Singapúr
Lando Norris á McLaren vann öruggan sigur í kappakstrinum í Singapúr, átjándu keppni ársins í Formúlu 1.

Norris á ráspól í Singapúr
Lando Norris hafði betur gegn sínum helsta keppinaut í baráttunni um heimsmeistaratitil Formúlu 1 og hefur leik í kappakstur helgarinnar á ráspól. Max Verstappen, margfaldur heimsmeistari, kemur þar á eftir.

Eðla rölti inn á brautina á æfingu
Óboðinn gestur setti strik í reikning ökumanna á æfingu fyrir kappaksturinn í Singapúr í Formúlu 1.

Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis
Ríkjandi heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, Hollendingurinn Max Verstappen hjá Red Bull Racing, mun þurfa að sinna samfélagsþjónustu eftir að hafa blótað á blaðamannafundi mótaraðarinnar fyrir keppnishelgi Formúlu 1 í Singapúr sem er nú hafin.

FIA tók fyrir kvörtun Red Bull og hefur kveðið upp dóm sinn
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur úrskurðað afturvænginn, sem bíll McLaren skartaði um síðastliðnu helgi í Azerbaijan, löglegan eftir að keppinautar breska liðsins í Formúlu 1 kröfðust þess að vængurinn yrði skoðaður nánar.

Piastri vann í Aserbaísjan og McLaren fór fram úr Red Bull
Ástralinn Oscar Piastri hjá McLaren vann í dag Aserbaísjan kappaksturinn í formúlu 1. Þetta er annar kappaksturinn sem Piastri vinnur á tímabilinu (og ferlinum) en hann vann líka í Ungverjalandi.

Lando Norris enn vongóður þrátt fyrir gulu flöggin
Lando Norris í liði McLaren er enn vongóður um árangur í Aserbaísjan kappakstrinum þrátt fyrir að leggja af stað í sextánda sæti, vegna erfiðleika í undanrásunum í gær.

Leclerc á ráspól á morgun
Mónakómaðurinn Charles Leclerc hjá Ferrari verður á ráspólnum í Aserbaísjan kappakstrinum í formúlu 1 á morgun en þetta var ljóst eftir að tímatökunni lauk í dag.

Vill vinna titilinn á eigin forsendum
Lando Norris, ökumaður McLaren í Formúlu 1, segist vilja vinna heimsmeistaratitilinn með því að keyra hraðar og betur en Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari og ökumaður Red Bull.

Biðja Piastri um að styðja Norris í baráttunni um titilinn
Andrea Stella, liðsstjóri Formúlu 1 liðs McLaren hefur staðfest að liðið muni setja hagsmuni Lando Norris, annars af aðalökumönnum liðsins, fram yfir hagsmuni liðsfélaga hans Oscar Piastri út yfirstandandi tímabil. Er þetta gert til þess að gefa Norris sem mesta möguleika á því að skáka Hollendingnum Max Verstappen í baráttu ökuþóranna um heimsmeistaratitilinn.

Hvalreki fyrir Aston Martin í Formúlu 1
Risafréttir bárust úr heimi Formúlu 1 núna í morgun því Bretinn Adrian Newey hefur verið ráðinn til Aston Martin.

Leclerc vann Monza kappaksturinn
Heimamenn fögnuðu vel á Monza í dag þegar Charles Leclerc vann Ítalíukappaksturinn fyrir Ferrari.

Táningurinn sem tekur við af Hamilton klessti bílinn í frumrauninni
Mercedes liðið í formúlu 1 veðjar á hinn átján ára gamla Andrea Kimi Antonelli sem tekur við sæti Lewis Hamiltn þegar sjöfaldi heimsmeistarinn gengur til liðs við Ferrari eftir þetta tímabil.

Norris á ráspól á Monza en Verstappen í brasi
Gott gengi Lando Norris í Formúlu 1 heldur áfram en hann hefur kappaksturinn á Ítalíu fremstur eftir að hafa unnið sigur í tímatökunni í dag. Heimsmeistarinn Max Verstappen er hins vegar í vandræðum.

Átján ára strákur tekur við af Lewis Hamilton
Mercedes hefur fundið eftirmann Lewis Hamilton í formúlu 1 en sjöfaldi heimsmeistarinn er á leiðinni til Ferrari eftir þetta tímabil.

Norris sá fyrsti til að vinna Verstappen í hollensku tímatökunum
Lando Norris, ökumaður McLaren, verður á ráspól þegar hollenski kappaksturinn fer af stað á morgun.

Nýliðarnir sanka að sér dýrmætri reynslu
Hið nýja Formúlu 1 lið Audi er farið að taka á sig mynd og hefur þýski bílaframleiðandinn sankað að sér reynsluboltum úr mótaröðinni upp á síðkastið fyrir frumraun sína í Formúlu 1

Eftirsóttur Sainz fer til Williams eftir tímabilið
Koma Lewis Hamilton til Ferrari þýðir að ekki var ljóst hvar Carlos Sainz myndi sinna atvinnu sinni á komandi á tímabili. Það hefur loks fengist svar við því en hann mun keyra fyrir annars slakt lið Williams á komandi tímabili í Formúlu 1.

Russell dæmdur úr leik og Hamilton fagnar sigri í Belgíu
Mercedes-mennirnir George Russell og Lewis Hamilton komu fyrstir í mark í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag.

Yuki Tsunoda færður aftur um 60 sæti í ræsingu
Yuki Tsunoda, ökumaður Honda, mun ræsa aftastur í belgíska kappakstrinum í dag eftir að hafa verið færður aftur um 60 sæti í refsingarskyni.

Verstappen fljótastur en ræsir ellefti
Heimsmeistarinn Max Verstappen var langfljótastur í dag þegar tímatökur fóru fram fyrir Belgíukappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Hann ræsir þó úr ellefta sæti þar sem hann tekur út refsingu.