Fréttir

Á­tján ára sótti áfengissendingu

Aldurseftirlit hjá netverslunum sem selja áfengi er oft ábótavant að mati embættis landlæknis. Í aðeins sjö prósent tilvika var beðið um skilríki við afhendingu áfengis í úttekt þeirra.

Innlent

Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum

Aukin kjörsókn umfram meðalaukningu í Grafarvogi og í Úlfarsárdal skilaði Sjálfstæðisflokki níunda manninum inn í borgarstjórn. Þetta segir Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vísi. Kjörsókn jókst um 3,7% í Reykjavík milli borgarstjórnarkosninga 2022 og 2026. En breytingin var afar misjöfn milli hverfa borgarinnar.

Innlent

Hildur Björns undir hnaus­þykkum feldi

Sá á kvölina sem á völina hefur sjaldan átt eins vel við og um þá stöðu sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, er í nú um stundir. Fulltrúar annarra flokka bíða þess sem verða vill, misrólegir.

Innlent

„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“

Hildur Dís og Hjalti eru bæði með meltingarsjúkdóm sem getur valdið því að þau þurfa að fara á salernið með stuttum fyrirvara. Bæði greindust þau nokkuð ung en afleiðingar sjúkdómanna eru ólíkar. Hjalti er til dæmis bestur á einföldu mataræði en bæði segja þau streitu og álag verulegan áhrifavald. 

Innlent

Venstre vill minni­hluta­stjórn í Dan­mörku

Troels Lund Poulsen formaður danska hægriflokksins Venstre vill mynda minnihlutastjórn með Íhaldsflokknum og Frjálslynda bandalaginu. Hann segir það besta valmöguleikann í núverandi stöðu enn sögulegt þrátefli hefur verið í stjórnarmyndunarviðræðum eftir þingkosningarnar sem fóru fram í mars.

Erlent

Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego

Tveir táningar hófu skothríð á fólk við mosku í San Diego í Bandaríkjunum nú undir kvöld. Báðir eru látnir en lögreglan er með mikinn viðbúnað á svæðinu og segist lögreglan hafa náð tökum á ástandinu. Að minnsta kosti þrír fullorðnir voru skotnir til bana fyrir utan moskuna.

Erlent

„Aðal­lega að meta þessa tvo kosti“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin.

Innlent