Fréttir
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Krefjast þess að fá að bjóða sig fram til forseta Ungir Framsóknarmenn vilja að aldursviðmið um kjörgengi til forseta séu felld úr stjórnarskrá. Engum undir 35 ára aldri er heimilt að bjóða sig fram til embættisins. Forsetakosningar fara fram í vor. Innlent 12.1.2024 13:27
Verður formaður stjórnar Þjóðarhallar Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal. Innlent 12.1.2024 13:12
Aldrei oftar verið stigið inn í Strætó Aldrei hafa fleiri innstig mælst yfir árið í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu en á síðasta ári síðan reglulegar mælingar hófust. Innlent 12.1.2024 12:57
Sex fluttir með þyrlum til Reykjavíkur Sex af þeim átta sem slösuðust í árekstri á hringveginum nærri Svínafellsjökli eru á leiðinni til Reykjavíkur með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Von er á þeim á Landspítalann í Fossvogi upp úr klukkan eitt. Innlent 12.1.2024 12:55
Norski herinn sinnir loftrýmisgæslu næstu vikurnar Flugsveit frá norska flughernum er væntanleg til landsins á mánudaginn til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland næstu vikurnar. Innlent 12.1.2024 12:43
Hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag Leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík er hafin á ný. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir leit ganga vel og að hann sé hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag. Innlent 12.1.2024 12:15
Hált á vettvangi árekstursins Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir mikla hálku vera við Skaftafell þar sem tveir fólksbílar skullu saman í morgun og átta slösuðust. Tveir eru alvarlega slasaðir og fólkið hefur enn ekki verið flutt á sjúkrahús. Innlent 12.1.2024 12:07
Hvetur félagsmenn til að halda aftur af hækkunum Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda skorar á félagsmenn að halda aftur af verðhækkunum og taka þannig þátt í að þjóðarsátt náist milli SA og breiðfylkingar innan ASÍ. Fyrirtækin eigi auðveldara með slíkt dragi hið opinbera úr boðuðum hækkunum. Forsvarsmenn félagsins hittu forystu VR í morgun. Innlent 12.1.2024 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um alvarlegt bílslys sem varð við Skaftafellsá í morgun. Innlent 12.1.2024 11:35
Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar. Innlent 12.1.2024 11:32
Átta slasaðir eftir alvarlegt slys við Skaftafellsá Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð á Suðurlandi eftir árekstur tveggja bíla á þjóðveginum við Svínafellsjökul á Suðurlandi. Átta eru sagðir slasaðir þar af tveir alvarlega. Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru á leiðinni á vettvang. Lokað hefur verið umferð um veginn vegna slyssins. Innlent 12.1.2024 10:43
Rennsli úr Grímsvötnum enn að aukast Vatnsmagn í Gígjukvísl úr Grímsvötnum hefur aukist jafnt og þétt á síðustu tveimur sólarhringum. Þetta sést á því að áin dreifir úr sér í farvegi sínum, að því er segir í tilkynningu Veðurstofu. Innlent 12.1.2024 10:42
Hefja leit á ný Leit að manninum, sem talið er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík á miðvikudag, er hafin á ný. Leit var frestað í gærkvöldi vegna hættulegra aðstæðna á svæðinu. Innlent 12.1.2024 10:09
Kjarafundur í dag og Efling fundar sérstaklega með SA Kjarasamningsviðræður Samtaka atvinnulífsins og breiðfylkingar stéttarfélaga halda áfram í dag. Samningsfundur hefst klukkan eitt eftir hádegi en þangað til mun samninganefnd SA funda sérstaklega með samninganefnd Eflingar. Innlent 12.1.2024 08:50
Rekstur neyslurýmis í Borgartúni samþykktur Byggingarfulltrúi samþykkti í vikunni umsókn Rauða kross Íslands um að koma upp einingahúsum fyrir neyslurými á lóð við Borgartún 5 í Reykjavík. Umsóknin var samþykkt þann 9. janúar. Innlent 12.1.2024 08:48
Skotinn 55 sinnum og fjölskyldan fær fimm milljónir dala Borgin Vallejo í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur ákveðið að greiða ættingjum Willie McCoy, sem skotinn var til bana af lögreglu árið 2019, fimm milljónir dala í miskabætur. Erlent 12.1.2024 08:38
Von á ísingu og lúmskri hálku Vegir á landinu eru flestir blautir og þegar kólnar hægt og bítandi í hægum vindi mun myndast ísing og lúmsk hálka. Innlent 12.1.2024 07:40
Engir skjálftar í Grímsvötnum frá miðnætti Frá miðnætti hafa engir jarðskjálftar mælst í Grímsvötnum. Náttúrvársérfræðingur hjá Veðustofu telur líklegt að jökulhlaupið nái hámarki á sunnudag. Innlent 12.1.2024 07:22
Skýjað að mestu og lítilsháttar skúrir eða slydduél Regnsvæðið sem gekk yfir landið í gær er nú statt yfir austasta hluta landsins og stefnir áfram ákveðið til austurs og verður komið út af landinu þegar líður á morguninn. Veður 12.1.2024 07:11
Sagt upp hjá Sinfó vegna orðsporsáhættu Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið dæmd til að greiða hljóðfæraleikara í sveitinni 3,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar árið 2022. Uppsögnin byggði á því að hann hefði verið borinn sökum um kynferðislega misnotkun og orðspor hljómsveitarinnar væri í hættu. Fimm ár voru þá liðin frá því rannsókn málsins var felld niður hjá héraðs- og ríkissaksóknara. Innlent 12.1.2024 07:00
Hlé gert á leitinni í Grindavík í nótt Á tólfta tímanum í gærkvöldi var gert hlé á leitinni að manninum sem féll í sprungu í Grindavík sökum aðstæðna á slysstað. Innlent 12.1.2024 06:51
Skilaboð til ferðabransans að vera ekki með minnimáttarkennd Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja segir umfjöllun bandaríska fréttablaðsins New York Times um Vestmannaeyjar skýrt merki til ferðabransans að hann eigi að hætta að „klína bjánalegum enskum þýðingum á íslensk örnefni og staðarheiti“. Innlent 12.1.2024 06:50
Rólan telst samþykkt Kærunefnd húsamál telur rólu á sameiginlegri lóð tveggja fjöleignarhúsa ekki þurfa samþykki 2/3 hluta eigenda húsanna. Rólan var samþykkt af einföldum meirihluta og telur nefndin það nóg. Innlent 12.1.2024 06:45
Skutu á sextíu skotmörk í Jemen í nótt Bandaríkjamenn og Bretar gerðu í gærkvöld og í nótt umfangsmilkar árásir á Húta í Jemen. Hersveitir vesturveldanna vörpuðu sprengjum á tugi staða, sem notaðir eru af Hútum. Erlent 12.1.2024 06:29
Gera loftárás á Húta í Jemen í nótt Bretland og Bandaríkin undirbúa nú loftárásir á hendur Húta í Jemen og sagt er að þær verði gerðar í nótt. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands ráðfærði sig við ríkisstjórn sína varðandi árásirnar fyrr í dag. Erlent 12.1.2024 00:01
Ósáttur með gjaldskyldu á Akureyri og Egilsstöðum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, er meinilla við fyrirhuguð bílastæðagjöld við flugvellina á Akureyri annars vegar og Egilsstöðum hins vegar. Hann segir að með áformaðri breytingu sé vegið að frelsi Íslendinga. Innlent 11.1.2024 23:00
„Það styttist í það eftir því sem lengur er unnið“ Enn er leitað að manni sem féll ofan í sprungu við framkvæmdir í Grindavík í gær. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu að aðstæður við björgunarstarfið séu erfiðar. Innlent 11.1.2024 22:32
Án aðgerða verði útrýming palestínsku þjóðarinnar algjör Málflutningur hófst í dag í máli Suður-Afríku gegn Ísrael, sem rekið er fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Suður-Afríka sakar Ísrael um þjóðarmorð á Palestínumönnum og biðlar til dómstólsins að skipa Ísraelsmönnum að hætta tafarlaust hernaði í Gasa. Dómsmálaráðherra Suður-Afríku sparaði ekki orðin í ræðu sinni. Erlent 11.1.2024 21:47
Aðgerð Eddu sögð þaulskipulögð með hjálp huldumanns í Noregi Þingrétturinn í Þelamörk í Noregi, sem dæmdi Eddu Björk Arnardóttur í tuttugu mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag, segir að aðgerðin, þar sem synir hennar voru numdir á brott frá föður sínum í Noregi til Íslands, hafi verið þaulskipulögð, líkt og fagmenn hefðu verið að verki. Innlent 11.1.2024 20:37
Grunaðir um mörg skartgriparán í heimahúsum Margt bendir til þess að sami eða sömu þjófar hafi framið tíu innbrot í íbúðir í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu yfir jól og áramót að sögn lögreglu. Fólk saknar helst skartgripa og fjármuna eftir ránin. Innlent 11.1.2024 20:31