Fréttir
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Háskólanemar mótmæla við þinghúsið Nemar við Háskóla Íslands og Listaháskólann gengu út úr tímum nú rétt í þessu og mótmæla aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í tengslum við málefni Palestínu. Innlent 12.3.2024 15:53
Sigríður stefnir á ráðuneytisstjórann Sigríður Á. Andersson fyrrverandi dómsmálaráðherra er meðal átta sem sækja um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Guðmundur Árnason, fráfarandi ráðuneytisstjóri, tekur senn við sendiherrastöðu í utanríkisþjónustunni. Innlent 12.3.2024 15:37
Hrottafengnar lýsingar á morðinu á þrettán ára stúlkunni Sautján ára piltur sem var handtekinn í kjölfar morðs á þrettán ára stúlku í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi, er grunaður um að hafa orðið henni að bana. Erlent 12.3.2024 15:25
Íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu máls Alberts Kona sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir nauðgun íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á málinu. Hún hefur tíu daga til að ákveða sig. Degi áður en kærufrestur rennur út leikur karlalandsliðið í knattspyrnu við það ísraelska í umspili um sæti á EM 2024. Innlent 12.3.2024 15:12
Sendi fjölskyldu sína úr landi af ótta við stungumanninn Eigandi OK Market í Valshverfinu sendi fjölskyldu sína úr landi vegna hótana manns sem síðan stakk hann í versluninni í síðustu viku. Hann segir manninn hafa áreitt sig stanslaust í sex ár og lögregluna ekki gera neitt til þess að aðstoða hann. Maðurinn heldur áfram að hóta honum þrátt fyrir að vera í gæsluvarðhaldi. Innlent 12.3.2024 14:54
Brynja Dan vill aðgerðir gegn rasisma Brynja Dan Gunnarsdóttir Framsóknarflokki kvaddi sér hljóðs í dagskrárliðnum Störf þingsins þar sem hún sagði rasisma hafa náð áður óþekktum hæðum. Innlent 12.3.2024 14:31
Guðrún, Guðmundur og Elínborg hlutu flestar tilnefningar Guðrún Karls Helgudóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Elínborg Sturludóttir hlutu flestar tilnefningar til biskupskjörs. Guðrún hlaut 65 tilnefningar, Guðmundur Karl 60 og Elínborg 52. Innlent 12.3.2024 14:00
„Áfellisdómur fyrir ákæruvaldið og ríkislögreglustjóra“ Sveinn Andri Sveinsson og Einar Oddur Sigurðsson verjendur sakborninga í hryðjuverkamálinu segja niðurstöðuna áfellisdóm fyrir embætti ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara. Sakborningar voru sakfelldir fyrir vopnalagabrot en sýknaðir af þeim ákærulið sem sneri að hryðjuverkum. Innlent 12.3.2024 13:42
„Þetta eru ofsafengin viðbrögð“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir boðun verkbanns af hálfu Samtaka atvinnulífsins vera ofsafengin viðbrögð við hófsömum kröfum VR. Innlent 12.3.2024 13:28
Sindri fékk tveggja ára dóm og Ísidór átján mánuði Sakborningarnir í hryðjuverkamálinu svokallaða voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sindri Snær Birgisson, 26 ára, hlaut 24 mánaða fangelsisdóm og Ísidór Nathansson, 25 ára, hlaut átján mánaða fangelsisdóm. Innlent 12.3.2024 13:04
Verkbann boðað á alla skrifstofustarfsmenn VR og atkvæðagreiðsla hafin Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur samþykkt einróma að boða til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn VR. Ef af verður mun verkbannið ná til alls skrifstofufólks sem starfar samkvæmt kjarasamningi SA og VR. Innlent 12.3.2024 12:30
Grindvíkingar í hjólhýsum og pínulitlum íbúðum Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir 130 fjölskyldur úr Grindavík enn búa við óviðunandi húsnæðiskost. Dæmi séu um fólk sem búi í hjólhýsum og fjölskyldur í um tuttugu fermetra íbúðum. Farið er fram á frekari stuðning ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Innlent 12.3.2024 12:02
SA gæti gripið til verkbanns skelli verkföll á Icelandair Formaður VR reiknar með að röð verkfallsaðgerða starfsmanna félagins hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli verði samþykktar í atkvæðagreiðslu sem lýkur á morgun. Ekki er útilokað að Samtök atvinnulífsins boði verkbann á starfsmenn VR sigli deilan í algeran hnút. Innlent 12.3.2024 11:58
Hreindýraveiðileyfi dregin út á föstudaginn Stöðugur samdráttur hefur verið í kvóta á hreindýr. Fleiri sækja um nú en í fyrra. Innlent 12.3.2024 11:55
Herflugvél brotlenti skömmu eftir flugtak Fimmtán eru sagðir hafa dáið þegar rússnesk herflugvél af gerðinni Il-76 brotlenti skömmu eftir flugtak í morgun. Myndbönd sýna að minnsta kosti einn hreyfil flugvélarinnar í ljósum logum skömmu eftir flugtak og féll hann af henni áður en hún brotlenti. Erlent 12.3.2024 11:34
Reiknar með því að verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli verði samþykktar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um kjaramálin og nú eru það verslunarmenn sem sitja við samningaborðið í Karphúsinu. Innlent 12.3.2024 11:34
Hræ hnúfubaks í Hrísey legið lengi Hræ hnúfubaks fannst í fjöru Hríseyjar á dögunum. Talið er að hvalurinn hafi legið í flæðarmálinu í talsverðan tíma án þess að nokkur hafi orðið hans var. Innlent 12.3.2024 10:51
Gerðu árásir í átta héruðum Rússlands Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar drónaárásir í að minnsta kosti átta héruðum Rússlands í nótt. Í einu tilfelli var gerð árás á olíuvinnslustöð í um 775 kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu. Þá hafa rússneskir menn sem berjast með Úkraínu gert aðra atlögu inn í Belgórodhérað og Kúrskhérað í Rússlandi. Erlent 12.3.2024 10:42
Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði. Innlent 12.3.2024 10:38
Segir íbúa Gasa ekki geta beðið en ítrekar rétt Ísrael til að verja sig Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur kallað eftir tafarlausu mannúðarhléi á átökum á Gasa en jafnframt ítrekað að Ísraelsmenn eigi rétt á því að verja sig gegn Hamas. Erlent 12.3.2024 09:10
Heilsugæslan flytur tímabundið eftir brunann Heilsugæslan Garðabæ mun á næstu dögum flytja tímabundið í húsnæði í Mjóddinni í Reykjavík á meðan húsnæði heilsugæslunnar er þrifið og endurnýjað. Talsvert tjón varð á húsnæðinu af völdum reyks eftir að eldur kom upp á snyrtistofu í næsta húsi fyrir helgi. Er ljóst að einhverjar vikur muni taka þar til að hægt verði hefja starfsemi í húsinu á ný. Innlent 12.3.2024 08:46
Forsætisráðherra Haítí farinn frá Forsætisráðherra Haítí hefur sagt af sér eftir margra vikna ófremdarástand í landinu þar sem glæpahópar hafa í raun tekið völdin. Erlent 12.3.2024 08:27
Tate-bræður í gæsluvarðhaldi vegna breskrar handtökuskipunar Áhrifavaldurinn Andrew Tate og bróðir hans Tristan hafa verið handteknir í Rúmeníu á grundvelli handtökuskipunar sem gefin var út á Bretlandseyjum. Erlent 12.3.2024 08:24
Fær græddan í sig gangráð í dag Haraldur Noregskonungur mun gangast undir aðgerð í dag þar sem hann mun fá græddan í sig gangráð. Erlent 12.3.2024 08:22
Airbnb bannar öryggismyndavélar innanhúss Airbnb hyggst banna öryggismyndavélar í öllu húsnæði sem leigt er í gegnum síðuna, út um allan heim. Breytingarnar munu taka gildi í enda apríl. Erlent 12.3.2024 07:58
Þrettán ára stúlka myrt á Norður-Jótlandi Þrettán ára gömul stúlka var myrt í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi. Lögreglan hefur handtekið jafnöldru hennar og sautján ára gamlan dreng sem grunuð eru um morðið. Erlent 12.3.2024 07:41
Lægðardrag færist vestur yfir landið Lægðardrag færist nú vestur yfir landið með dálítilli snjókomu eða slyddu og síðar rigningu. Veður 12.3.2024 07:22
Matthías Johannessen er látinn Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og skáld, er látinn. Hann andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gær, 94 ára að aldri. Innlent 12.3.2024 07:15
Alþjóðahreyfingin krafin aðgerða vegna Rauða krossins í Rússlandi Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er nú sögð sæta þrýstingi af hálfu þjóða sem leggja samtökunum til fjármagn um að grípa til aðgerða vegna þjónkunnar Rauða krossins í Rússlandi við þarlend stjórnvöld. Erlent 12.3.2024 07:03
Spyr hvort aka þurfi á barn svo eitthvað verði gert Nanna Hólm býr í Grafarvoginum á Móavegi 4 á jarðhæð. Þung umferð er við blokkina og öryggisráðstafanir fyrir gangandi vegfarendur eru litlar sem engar. Umferðin er ekki girt af og bílar keyra þar oft vel yfir löglegum hámarkshraða segir Nanna. Sömuleiðis þjóti rafskútur um svæðið á ógnarhraða. Nanna spyr hvort bíða þurfi eftir því að barn verði fyrir bíl svo eitthvað verði gert. Innlent 12.3.2024 07:01