Fréttir
316 317 318 319 320 321 322 323 324 … 334 ›
Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa í Borgarbyggð um að felld verði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar um álagningu gjalds vegna reksturs grenndar- og móttökustöðvar sorps í sveitarfélaginu. Gjaldið er um 32 þúsund krónur. Innlent 22.5.2024 06:16
Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og utanríkisráðherrann Espen Barth Eide hafa boðað til blaðamannafundar í dag þar sem búist er við að þeir muni tilkynna að Noregur komi til með að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Erlent 22.5.2024 06:13
Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. Erlent 21.5.2024 23:53
Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. Innlent 21.5.2024 23:30
Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Skólum hefur verið lokað og fjöldi fólks svaf í bílum sínum eða á götunni í kjölfar öflugrar skjálftahrinu nærri Campi Flegrei-eldfjallinu í nágrenni Napólíborgar. Erlent 21.5.2024 23:19
Kanna hvar Perry fékk ketamínið Rannsakendur lögreglunnar í Los Angeles, Fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna og bandaríska póstsins vinna nú að því að komast að því hvaðan leikarinn Matthew Perry fékk ketamínið sem dró hann til dauða í fyrra. Perry fannst látinn í sundlaug sinni í Los Angeles í október í fyrra og fannst mikið magn ketamíns í líkama hans. Erlent 21.5.2024 21:42
Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, segir þá fimm frambjóðendur sem búa yfir mestu fylgi í komandi forsetakosningum hafa tromp á hendi séu þeir ekki sigurvissir er nær dregur kjördegi. Ekki geti þeir allir orðið forseti en dragi eitt þeirra framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við meðframbjóðenda gæti sá hinn sami ráðið úrslitum að miklu leyti. Innlent 21.5.2024 21:41
Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Innlent 21.5.2024 20:26
Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Tveir nýir prestar og tveir nýir djáknar hafa verið vígðir til embættis í fjórum mismunandi kirkjum. Athöfnin fór fram í Skálholtsdómkirkju þar sem vígslubiskupinn á staðnum brá sér í hlutverk biskups Íslands til að sjá um vígsluna að viðstöddum tíu prestum, sem voru vígsluvottar, auk þriggja djákna. Innlent 21.5.2024 20:15
Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Vanir flugfarþegar þekkja það að upplifa mikla ókyrrð um borð. Það getur valdið örum hæðabreytingum í flugi og veldur mörgum einnig miklum óþægindum. Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir ástæðu fyrir því að mælst sé til þess að farþegar sitji með sætisólar spenntar á meðan flugi stendur. Innlent 21.5.2024 19:54
Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Kjósendur sem kusu utan kjörfundar í Reykjavík í dag áttu miserfitt með að ákveða sig. Kjörsókn utan kjörfundar er töluvert dræmari nú en í síðustu forsetakosningum enda mun fleiri frambjóðendur í boði. Innlent 21.5.2024 19:31
Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Rússlands tilkynntu í dag að æfingar með svokölluð „taktísk kjarnorkuvopn“ hefðu hafist í dag. Það er sama dag og leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu að senda vexti af frystum eigum Rússa til Kænugarðs eða nota til hergagnakaupa fyrir Úkraínumenn. Erlent 21.5.2024 19:11
Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Matvælaráðuneytið hefur enn ekki svarað umsókn Hvals hf. um veiðileyfi í sumar. Um hálfur mánuður er þar til veiðitímabilið hefst. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist viss um að með þessu baki ráðuneytið íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og telur ómögulegt að úr sumarvertíðinni rætist. Innlent 21.5.2024 18:45
Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Matvælaráðuneytið hefur enn ekki svarað umsókn Hvals hf. um veiðileyfi í sumar þrátt fyrir að veiðitímabilið ætti að hefjast eftir einungis um hálfan mánuð. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist viss um að með þessu baki ráðuneytið íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og telur ómögulegt að úr sumarvertíðinni rætist. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 21.5.2024 18:00
Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Utanríkisráðuneytið harmar það að borið hafi á skorti á kjörseðlum vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Spáni fyrir komandi forsetakosningar á Íslandi. Uppnám varð á kjörfundi á eyjunum Tenerife og Gran Canaria í gær þegar ljóst varð að of fáir kjörseðlar hafi verið á kjörstað. Innlent 21.5.2024 17:50
Bjarni í heimsókn í Malaví Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er í opinberri heimsókn í Malaví í tilefni af 35 ára afmæli þróunarsamvinnu ríkjanna. Hann lagði af stað fyrir helgi og stefnir á að dvelja í landinu fram á föstudag. Innlent 21.5.2024 17:19
Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Slökkviliðið í Vestmannaeyjum slökkti eld í fjórum fjórfjólum í brekkunni á leiðinni upp í Stórhöfða. Talið er að eldinn megi rekja til bilunar í einu hjólinu. Innlent 21.5.2024 16:17
Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Íslendingur var á meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í háloftunum með þeim afleiðingum að einn lést og þrjátíu slösuðust. Þetta kemur fram í frétt BBC sem hefur birt lista með þjóðernum farþega vélarinnar. Erlent 21.5.2024 16:03
„Ömurleg staða að vera settur í“ Degi áður en til stóð að halda íbúakosningu í Ölfusi heldur bæjarstjórnin neyðarfund og ákveður að fresta kosningunni. Hvað gerðist? Elliði Vignisson bæjarstjóri er ekki alveg viss. Innlent 21.5.2024 15:59
Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Dómstóll í Moskvu komst að þeirri niðurstöðu að rússneska rannsóknarlögreglan þurfi ekki að rannsaka tvær tilraunir til þess að ráða fangelsaðan stjórnarandstæðing af dögum í dag. Hann segir það lygi að lögregla hafi þegar rannsakað tilræðin. Erlent 21.5.2024 15:46
Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi Aðalstjórn Þróttar segir tillögu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um byggingu unglingaskóla í Laugardal hafa komið félaginu í opna skjöldu. Ein af þremur mögulegum staðsetningum slíks skóla er á íþróttasvæði Þróttar sem þeir rauðu og hvítu segja ekki koma til greina. Innlent 21.5.2024 15:32
„Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Prófessor í jarðeðlisfræði segir aukinn þrýsting í borholum HS veitna á Svartsengi í morgun bera þess merki um að jarðskorpan sé mjög nálægt því að bresta. Hann segir þá sem dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn á fimmtán mínútum. Grindavík sé ekki staður fyrir partýstand né börn. Innlent 21.5.2024 15:30
Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. Erlent 21.5.2024 15:04
Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Þær standa á flughlaðinu norðan við gamla Loftleiðahótelið og verður svæðið opið almenningi milli klukkan 18 og 20. Innlent 21.5.2024 14:47
Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Kjartan Sigurðsson athafnamaður frá Grindavík skipuleggur nú, ásamt öðrum, hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna þeirra skilyrða sem sett hafa verið við uppkaup fasteigna í Grindavík. Samkvæmt skilmálum Þórkötlu fasteignafélags er einstaklingum sem eiga íbúðarhúsnæði gefinn kostur á að selja félaginu fasteign sína. Innlent 21.5.2024 14:40
Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Landsmönnum líst best á það að Baldur Þórhallsson eða Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands. Fjórum af hverjum fimm líst illa á að Ástþór Magnússon verði forseti. Innlent 21.5.2024 14:39
Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi Nýr samningur milli Sjúkratrygginga og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra Innlent 21.5.2024 14:17
„Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Mál Arnars Þórs Jónssonar forsetaframbjóðanda á hendur Halldóri Baldurssyni skopmyndateiknara og Vísis varðar tjáningarfrelsið og því ekki úr vegi að kalla til Róbert Spanó, lagaprófessor og fyrrum forseta Mannréttindadómsstóls Evrópu til að á lögfræðilegt álit á málinu. Innlent 21.5.2024 12:51
Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Kvikusöfnun undir Svartsengi helst áfram stöðug og hafa um sautján milljón rúmmetra af kviku hafa bæst við kvikuhólfið frá 16. mars. Innlent 21.5.2024 12:36
Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Talsmaður Hvalavina segir nokkuð ljóst að hvalveiðar muni ekki fara fram í sumar. Engin svör eru komin frá matvælaráðuneytinu um hvort veiðileyfi verði veitt og aðeins nokkrar vikur í að vertíð hefjist. Innlent 21.5.2024 12:01