Fréttir
310 311 312 313 314 315 316 317 318 … 334 ›
Rússneskir hakkarar náðu tölvupóstum leiðtoga Microsoft Rússneskir hakkarar, sem taldir eru á vegum rússnesku leyniþjónustunnar ZVR, eru sagðir hafa brotið sér leið inn í tölvukerfi Microsoft þar sem þeir komu höndum yfir tölvupósta frá fólki í leiðtogateymi fyrirtækisins auk starfsmanna netöryggis- og lögmannadeilda þess. Tölvuþrjótarnir eru þeir sömu og komu að SolarWinds árásinni, sem lýst hefur verið sem þeirri verstu í sögu Bandaríkjanna. Erlent 20.1.2024 09:05
Unnið með vitund en ekki sátt fjölskyldunnar Troels Uhrbrand Rasmussen dagskrárstjóri Pipeline, kvikmyndafyrirtækisins sem framleiddi þættina A Dangerous Boy, eða Hættulegur strákur, þar sem fjallað er um Sigga hakkara svokallaðan, segir margt skjóta skökku við í gagnrýni sem fram hefur komið á þættina og verklagið. Innlent 20.1.2024 08:00
Stærstu heræfingar NATO í áratugi Hermenn Atlantshafsbandalagsins og Svíþjóðar munu á næstu mánuðum halda umfangsmestu heræfingar bandalagsins í áratugi. Æfingarnar hefjast í næstu viku og munu standa yfir þar til í maí og í heildina munu um níutíu þúsund hermenn koma að þeim. Erlent 20.1.2024 07:55
Unglingur skemmdi lögreglubíl Þegar lögregluþjónar voru kallaðir til aðstoðar vegna unglingasamkvæmis í Árbæ gærkvöldi var einn unglingur handtekinn, eftir að hann skemmdi lögreglubíl. Í dagbók lögreglu segir að málið verði unnið með barnavernd og forráðamönnum. Innlent 20.1.2024 07:17
Stal fjórum greiðslukortum og tók út 760 þúsund úr hraðbanka Kona var sakfelld í Héraðsdómi Vesturlands í vikunni fyrir að hafa stolið greiðslukortum fjögurra einstaklinga og tekið af kortunum fjárhæðir sem námu um 760 þúsund krónum. Innlent 20.1.2024 00:04
Margir Grindvíkingar í óviðunandi húsnæði eða búi við óvissu Innviðaráðherra segir alltof marga Grindvíkinga enn í óviðunandi húsnæði eða búa við óvissu. Stjórnvöld skoði hvernig hægt sé að koma til móts við kröfur um að ríkið kaupi upp húsnæði bæjarbúa þó hann sé ekki tilbúinn að slá af byggð í Grindavík til framtíðar. Innlent 19.1.2024 23:12
Ofbeldishrina tveggja táningspilta: „Við erum að fara að drepa ykkur alla“ Tveir táningspiltar voru sakfelldir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í desember á nýliðnu ári fyrir fjölda brota líkt og líkamsárásir og hótanir. Innlent 19.1.2024 22:01
Mega bara vera með eitt tjald og mega ekki gista í því Mótmæli í tjaldbúðum á Austurvelli hafa staðið yfir í 24 daga en með nýju leyfi Reykjavíkurborgar hafa mótmælendum verið settar meiri skorður. Nú mega þeir bara vera með eitt tjald og ekki gista í því. Innlent 19.1.2024 21:41
Met slegið í raforkunotkun á höfuðborgarsvæðinu Mesta rafmagnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi mældist í vikunni en fyrra met hafði staðið frá 2008. Aukin orkunotkun skýrist af orkuskiptum, fólksfjölgun og ferðamannastraumi. Reikna megi með tvöföldun í raforkudreifingu á næstu 20 til 30 árum. Innlent 19.1.2024 21:18
Alec Baldwin aftur ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi í annað sinn vegna voðaskots sem reið af á tökustað kvikmyndarinnar Rust. Erlent 19.1.2024 20:14
Argur út í borgina og vill herða eftirlit: „Hörmung að sjá tjaldbúðir við Austurvöll“ Utanríkisráðherra segir óboðlegt að Reykjavíkurborg hafi gefið leyfi fyrir tjaldbúðum á Austurvelli og þær hafi ekkert með venjuleg mótmæli að gera. Engum ætti að líðast að flagga nokkrum þjóðfána fyrir framan Alþingi svo vikum skipti til að mótmæla stjórnvöldum. Innlent 19.1.2024 19:52
Ný sprunga opnaðist í Grindavík í dag og gosið formlega búið Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Fjöldi viðbragðsaðila var að störfum í bænum í dag og í fyrramálið opnar Bláa lónið á ný. Innlent 19.1.2024 19:33
Ein starfhæf fæðingardeild á Gasa Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall um vopnahlé á Gaza. Einungis ein fæðingardeild er starfhæf á svæðinu og starfsfólk segir ástandið grafalvarlegt. Erlent 19.1.2024 19:15
Máttu ekki segja konu upp vegna grófra hótana barnsföður Fyrirtæki í Reykjavík hefur verið dæmt til að greiða fyrrverandi starfsmanni laun á uppsagnafresti og miskabætur vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi. Konan hafi ekki getað borið ábyrgð á grófum hótunum barnsföður síns í garð samstarfsmanns hennar. Landsréttur kollvarpaði fyrri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Innlent 19.1.2024 18:41
Mygla í Blóðbankanum hafi ekki áhrif á starfsemi bankans Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt. Innlent 19.1.2024 18:37
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Bláa lónið verður opnað á morgun. Innlent 19.1.2024 18:15
Heimilt að vista útlendinga í lokaðri búsetu í nýju frumvarpi Dómsmálaráðherra hefur birt drög um lokað búsetuúrræði vegna útlendinga sem „eiga eða gætu þurft að yfirgefa landið“ í samráðsgátt. Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að vista útlendinga í lokaðri búsetu á meðan málsmeðferð á stendur. Innlent 19.1.2024 17:59
Mannréttindadómstóllinn vísar máli Hussein frá Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lýst kæru íranska hælisleitandans Hussein Hussein og fjölskyldu hans ótæka til efnismeðferðar og vísað henni frá. Einnig hefur dómstóllinn ákveðið að aflétta bráðabirgðastöðvun á flutningi Hussein frá Íslandi til Grikklands. Innlent 19.1.2024 17:29
Hættustig fært niður á öllum svæðum Hættustig hefur verið fært niður á öllum svæðum í nýju hættumatskorti sem birtist á vef Veðurstofu Íslands rétt í þessu. Innlent 19.1.2024 15:28
Hettuklæddur vandali skemmdi Teslu Gríms yfirlögregluþjóns „Alls ekki góð þróun,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari spurður um hvort ekki megi heita óhugnanlegt að ráðist sé að nafngreindum einstaklingum innan lögreglunnar. Innlent 19.1.2024 14:41
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Mýrdal Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Suðurlandi. Mikilli snjókomu og austan skafrenningi er spáð í Mýrdalnum í dag föstudag og fram í fyrramálið og er talið að í Mýrdalnum geti skapast snjóflóðahætta á þekktum stöðum. Innlent 19.1.2024 14:30
Gífurlegt magn af ís undir yfirborði Mars Mögulegt er að finna megi gífurlegt magn af ís undir yfirborðinu á Mars. Talið er að ef ísinn yrði bræddur gæti hann þakið reikistjörnuna með 1,5 til 2,7 metra djúpu hafi. Erlent 19.1.2024 14:22
Nýfætt barn fannst í innkaupapoka í London Nýfætt stúlkubarn fannst pakkað inn í handklæði í innkaupapoka í austurhluta Lundúna. Barninu heilsast vel á sjúkrahúsi þökk sé hundaeiganda sem fann það og hélt á því hita. Leit að móðurinni stendur yfir. Erlent 19.1.2024 14:20
Dagbjört hafnar því að hafa orðið manninum að bana Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir, sem er ákærð fyrir að bana tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík í september í fyrra, neitar sök í málinu. Innlent 19.1.2024 13:39
Kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Hamragarðaheiði Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Hamragarðaheiði vestan við Eyjafjallajökul, skömmu eftir hádegi í dag. Innlent 19.1.2024 13:36
Neituðu að fara út í kuldann Hópur heimilislausra manna fór í setuverkfalli í gistiskýlinu á Granda í morgun. Þeir mótmæltu því að skýlinu sé lokað klukkan tíu í frosthörku þegar flestir liggi í flensu. Formaður Velferðarráðs hjá Reykjavíkurborg segir aðstöðu í skýlinu ekki fullnægjandi á daginn. Neyðaropnun hafi verið virkjuð og boðið upp á úrræði og þjónustu í Samhjálp yfir daginn. Innlent 19.1.2024 13:18
Héraðssaksóknari leitar að manni Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af aðila á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar og varðar skemmdarverk á bifreið lögreglumanns þann 20. desember 2023. Innlent 19.1.2024 13:08
Prófuðu neðansjávardróna sem getur borið kjarnorkuvopn Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með neðansjávardróna sem borið getur kjarnorkuvopn. Tilraunin er sögð hafa verið gerð í mótmælum við sameiginlegum heræfingum Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu sem fara fram í þessari viku. Erlent 19.1.2024 12:37
Rafmagn aftur komið á Grindavík Rafmagn er eftir komið á Grindavík eftir að hafa farið út um klukkan 7:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina. Innlent 19.1.2024 11:59
Rannsóknarnefnd um snjóflóðið í Súðavík Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur sent þingforseta beiðni um skipan rannsóknarnefndar um snjóflóðið á Súðavík. Algjör samstaða ríkti um málið þvert á flokka innan nefndarinnar. Innlent 19.1.2024 11:57