Fréttir
298 299 300 301 302 303 304 305 306 … 334 ›
Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar. Innlent 29.1.2024 13:18
Tilkynnt um eld í húsi við Esjumela Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í iðnaðarhúsnæði við Esjumela skömmu fyrir klukkan 13 í dag. Búið er að slökkva eldinn. Innlent 29.1.2024 13:10
Framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 í höfn Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Hraunavina, Landverndar, Landgræðslu- og umhverfisverndarsamtaka Íslands og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands um að fella úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga frá 30. júní 2023, um að veita Landsneti framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2. Innlent 29.1.2024 12:36
Mögulegt að boða til verkfalla á fimmtudag Friðarskylda á almennum vinnumarkaði rennur út á fimmtudag. Formaður VR segir augljóst að gripið verði til aðgerða nálgist Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld ekki breiðfylkingu verkalýðsfélaga við samningaborðið. Hugmynd formanns Starfsgreinasambandsins um engar launahækkanir á þessu ári dragi opinberir aðilar gjaldskrárhækkanir til baka hafi ekki verið rædd í innan breiðfylkingarinnar. Innlent 29.1.2024 12:13
Ekki sjálfgefið að Ísland dæli peningum til átakasvæða Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur fryst greiðslur til Flóttamannaaðstoðar Sameinuðuþjóðanna og leitast nú við að skýra hvað honum gengur til með það. Innlent 29.1.2024 12:10
Braut tennur konu sem sakaði frænda hennar um nauðgun Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás, sem framin var á Götubarnum á Akureyri árið 2022. Sú sem fyrir árásinni varð hafði átt í útistöðum við mann í fylgd með konunni vegna meints kynferðisbrots hans gegn mágkonu brotaþola. Innlent 29.1.2024 12:07
Grensásvegi lokað að hluta frá Suðurlandsbraut Grensásvegi hefur verið lokað til suðurs frá Suðurlandsbraut að Ármúla. Er þetta gert vegna færslu lagna á vegum Veitna. Innlent 29.1.2024 12:03
UNRWA segir fjármagnið munu þrjóta í lok febrúar að óbreyttu Forsvarsmenn Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segja stofnunina ekki munu getað aðstoðað íbúa á Gasa og viðhalda aðgerðum á svæðinu lengur en til loka febrúar ef framlög til hennar verða skert. Erlent 29.1.2024 11:59
Fundu erfðabreytileika sem eykur líkur á fósturláti Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra á Íslandi og í Danmörku og Bandaríkjunum fundu erfðabreytileika sem hefur áhrif á endurröðun erfðaefnis og eykur líkur á fósturláti, líklega með því að auka líkur á litningagöllum. Innlent 29.1.2024 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um aðgerðir í Grindavík en erfiðlega hefur gengið að halda veginum inn í bæinn opnum nú fyrir hádegið en bæjarbúar reyna nú að nálgast eigur sínar í bænum. Innlent 29.1.2024 11:38
Snjómokstursmálið mikla farsællega til lykta leitt Tómas Skúlason og fjölskylda sofa nú svefni hinna réttlátu í Breiðholti en mikil snjómokstursvél tók ævinlega til hendinni þegar snjór kom úr lofti við svefnherbergisglugga þeirra klukkan fjögur að nóttu til. Innlent 29.1.2024 11:29
Takmarka aðgengi svo hægt sé að rýma skyndilega Sérfræðingar í áhættugreiningu hafa greint hvert einasta svæði í Grindavík og leiðbeint Almannavörnum þannig að unnt sé að hleypa íbúum bæjarins heim til sín í skamma stund. Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir bæinn hættulegan og sífelt erfiðara verði að halda lífi í honum. Innlent 29.1.2024 11:14
MAST kærir niðurfellingu Helga á rannsókn Matvælastofnun hefur kært ákvörðun Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum fyrir að fella niður rannsókn máls á laxasleppingum fyrir vestan. Ríkissaksóknari fær nú málið á sitt borð og skoðar hvort ákvörðunin standi eða hvort lögreglu verði gert að hefja rannsókn að nýju. Innlent 29.1.2024 10:18
Miklar umferðartafir við Grindavík Miklar umferðartafir eru við Grindavík. Hafa Grindvíkingar á leið í bæinn að sækja eignir þurft að snúa við. Vegagerðin mun senda fleiri snjóruðningstæki á vettvang. Einstefna um bæinn er til að koma í veg fyrir flöskuháls, samkvæmt bæjaryfirvöldum. Innlent 29.1.2024 09:18
Kristrún kallar eftir opinskárri umræðu um aðstoð við Grindvíkinga Það sem skiptir máli þegar kemur að því hvernig stjórnvöld hyggjast mæta Grindvíkingum sem nú sjá fram á að þurfa að finna sér nýtt húsnæði til lengri tíma og jafnvel langframa, er ekki hvaðan fjármagnið kemur heldur áhrif aðgerðanna á efnahagslífið. Innlent 29.1.2024 09:04
Ástarsamband við lækni talið rýra framburð Karlmaður var á dögunum sýknaður af ákæru þess efnis að hafa tekið dreng hálstaki. Dómari í málinu leit til þess við ákvörðun sína að læknirinn hefði skrifað upp á áverkavottorð eftir mynd af áverkum sem ósannreynt var hvenær var tekin. Þá yrði ekki litið fram hjá því að réttargæslumaður drengsins og læknirinn ættu í ástarsambandi. Réttargæslumaðurinn er auk þess mjög góð vinkona móður drengsins til langs tíma. Innlent 29.1.2024 09:00
Stubb sigraði fyrri umferð finnsku forsetakosninganna Finnsku forsetaframbjóðendurnir Alexander Stubb og Pekka Haavisto voru atkvæðamestir í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Erlent 29.1.2024 07:32
Þorvaldur segir brýnt að ráðast strax í fyrirbyggjandi aðgerðir Tveir skjálftar komu eftir hádegi í gær í grennd við Bláfjallaskála og var sá fyrri 2,9 stig og seinni 2,8. Innlent 29.1.2024 07:16
Æðstu ráðamenn Ísrael ítreka áköll um brottflutning Palestínumanna Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, voru meðal þúsunda gesta á ráðstefnu sem fram fór í Jerúsalem í gær, þar sem fjallað var um nauðsyn þess að „endurnema“ Gasa og mögulegar leiðir til þess. Erlent 29.1.2024 07:13
Von á allhvössum vindi víða um land Útlit er fyrir sunnanátt á landinu í dag og má búast við að stinningskaldi eða allhvass vindur verði algengur vindstyrkur. Veður 29.1.2024 07:13
Segir geranda sinn hafa fengið myndir frá lögreglu af nöktum líkama sínum „Ég kærði kynferðisofbeldið sem ég var beitt til lögreglu vegna þess að ég hélt að lögin myndu vernda mig. Mér datt ekki í hug að kerfið myndi sjálfkrafa brjóta á mér líka.“ Innlent 29.1.2024 07:00
Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið. Innlent 29.1.2024 06:51
Íranir segjast ekki hafa átt aðkomu að árásinni á Bandaríkjamenn Stjórnvöld í Íran hafa neitað að hafa átt aðkomu að drónaárásinni sem varð þremur hermönnum Bandaríkjanna að bana á herstöð í Jórdaníu um helgina. Erlent 29.1.2024 06:33
Lenti á Mars í síðasta sinn Marsþyrlan Ingenuity hefur sungið sitt síðasta og mun ekki fljúga aftur. Þyrlan átti eingöngu að fljúga fimm sinnum og virka í einn mánuð en hún fór langt fram úr væntingum vísindamanna og hefur haldist á lofti í þrjú ár og flogið 72 ferðir. Erlent 28.1.2024 23:32
Ánægja með að komast heim þó margir séu ósáttir við yfirvöld Grindvíkingur segir ánægjulegt að fólk fái loksins að fara inn í bæinn eftir „ævintýralega efiða“ mánuði. Mörgum Grindvíkingum líði þó eins og yfirvöld hafi komið illa fram við íbúa og forgangsraðað undarlega aðgengi að bænum. Innlent 28.1.2024 23:18
Boða til skólaverkfalls til stuðnings Palestínu Nemendur í Hagaskóla hafa boðað til skólaverkfalls þann 6. febrúar næstkomandi til stuðnings Palestínu. Nemendurnir hyggjast yfirgefa tíma til að mæta á Austurvöll. Innlent 28.1.2024 21:54
Formaður og ritari Félags leiðsögumanna segja af sér Formaður og ritari Leiðsagnar - Félags Leiðsögumanna, Jóna Fanney Friðriksdóttir og Dóra Magnúsdóttir, hafa sagt af sér vegna þeirrar ólgu sem hefur geisað innan stjórnar félagsins frá því í október þegar stjórnarmeðlimir kröfðust afsagnar formanns. Innlent 28.1.2024 21:14
Gætu bjargað nashyrningum með hjálp staðgöngumóður Vel gæti verið að vísindamönnum takist að bjarga tegund hvítra nashyrninga ef tæknifrjóvgunartilraunir með aðstoð staðgöngumóður takast. Aðeins tvö kvendýr eru eftir í heiminum og því brýnt að koma tegundinni til bjargar. Erlent 28.1.2024 21:00
Hestar eru með 36 til 44 tennur Tannheilsa íslenskra hesta er afar mikilvæg og því eru starfandi sérstakir hestatannlæknar hér á landi, sem hafa meira en nóg að gera. Innlent 28.1.2024 20:31
Saklausir borgarar líði fyrir ákvörðun Íslands Fyrrverandi starfsmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir ákvörðun Íslands um að frysta fjármagn til stofnunarinna ómannúðlega og hún muni bitna á saklausum borgurum. Innlent 28.1.2024 20:06