Fréttir
284 285 286 287 288 289 290 291 292 … 334 ›
Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Varað er við hríðarveðri og allhvössum vindi yfir miðjan daginn á Norðurlandi. Búast má því að það verði víða blint og erfitt yfirferðar norðanlands. Einkum í Húnaþingi og Skagafirði, en einnig við utanverðan Eyjafjörð og austur með ströndinni. Veður 15.4.2024 10:11
Hrókering hjá ráðuneytisstjórum Ráðuneytisstjórar forsætisráðuneytisins og matvælaráðuneytisins munu skipta um embætti. Innlent 15.4.2024 10:09
Forsætisráðherra Singapúr segir af sér Lee Hsien Loong, forsætisráðherra Signapúr, hefur ákveðið að segja af sér og mun Lawrence Wong, sem gegnt hefur embætti aðstoðarforsætisráðherra og fjármálaráðherra, taka við stöðunni. Erlent 15.4.2024 10:06
Geta sent ökumönnum skilaboð í rauntíma á nýjum skiltum Vegagerðin vonast til þess að geta komið upplýsingum til ökumanna á fjallvegum með skilvirkari leiðum á nýjum skiltum. Innlent 15.4.2024 09:09
Virtur læknir sakaður um að hafa útilokað sjúklinga frá líffæragjöf Virtur skurðlæknir í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa breytt umsóknum sumra sjúklinga sinna um líffæragjöf til að útiloka þá frá því að fá nokkurn tímann líffæri. Erlent 15.4.2024 08:53
Rauf skilorð með ræktun og akstri í Lágmúla Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 22 mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið bíl án ökuréttinda og fyrir að hafa verið með tugi kannabisplantna í ræktun. Maðurinn rauf með brotunum skilorð, en þetta var í sjöunda sinn sem hann hefur gerst sekur um akstur sviptur ökurétti. Innlent 15.4.2024 07:47
Árásin virðist hafa beinst gegn konum Lögregluyfirvöld í Sydney telja víst að árás manns sem stakk sex til bana í verslunarmiðstöð í borginni um helgina hafi beinst gegn konum. Erlent 15.4.2024 07:31
Nældi í eiginkonu Davíðs, barnaði tvisvar og tók upp nafnið hans Ýmsir ráku upp stór augu þegar veitingamaðurinn umsvifamikli Quang Le fór að nota nafnið Davíð Viðarsson á síðasta ári. Enginn þó jafnhissa og miður sín og annar Davíð Viðarsson. Íslenskur karlmaður sem hefur verið skráður faðir tveggja barna Quang Le í hálfan annan áratug gegn vilja sínum. Hann segist brenndur af samskiptum sínum við Quang Le sem hófust fyrir tveimur áratugum. Innlent 15.4.2024 07:01
Guterres hvetur til stillingar en Ísraelar vilja hefndir Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar stríðandi fylkingar í Miðausturlöndum við því að auka við spennuna á svæðinu, sem hafi verið yfirdrifin fyrir. Erlent 15.4.2024 07:00
Norðanátt og víða él á landinu Dálítil lægð er nú stödd fyrir norðan land og hún þokast til suðausturs í dag. Má reikna með að það verði norðan- og norðvestanátt á landinu, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu og él, en bjart að mestu sunnantil. Veður 15.4.2024 06:57
Baldur með forskot á Katrínu í nýjustu skoðanakönnuninni Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, nýtur mests stuðnings frambjóðenda til forseta Íslands samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Prósent framkvæmdi fyrir Morgunblaðið. Innlent 15.4.2024 06:40
Aldrei fleirum vísað frá Íslandi Aldrei hefur fleirum verið vísað frá Íslandi sem komið hafa á Keflavíkurflugvöll en það sem af er þessu ári eða rúmlega tvö hundruð manns. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir dæmi um að sama fólkinu sé vísað frá landinu oftar en einu sinni. Innlent 14.4.2024 22:01
Fundu veg nær gosinu fyrir tilviljun Æ fleiri hafa undanfarið reynt að komast að eldgosinu við Sundhnjúk og bera það augum undanfarið þrátt fyrir að svæðið sé lokað. Bandarískir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við voru himinlifandi með útsýnið. Innlent 14.4.2024 21:40
Umfang árásarinnar kom á óvart Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur segir að umfang árásar Írana á Ísrael sem gerð var í gær komi honum á óvart. Árásin sem slík hafi þó ekki komið á óvart. Albert segir ljóst að Ísraelsmenn muni bregðast við en telur litlar líkur á því að allsherjarstríð brjótist út. Erlent 14.4.2024 19:46
Heimilislæknar boða einhliða aðgerðir verði skriffinnskan ekki afnumin Heimilislæknar ætla að beita einhliða aðgerðum ef ekki verður komið til móts við kröfur þeirra um afnám skriffinnsku sem þeir telja óþarfa. Stór hluti af vinnudegi þeirra fari í pappírsvinnu sem valdi því að löng bið er eftir tíma hjá heimilislækni. Þá er meira en helmingur heimilislækna við kulnunarmörk. Innlent 14.4.2024 19:17
Ekki merki um að kvika sé á ferðinni Skjálftavirkni sem mælst hefur í dag norðvestur af Grindavík er sambærileg virkni sem mældist á svæðinu um miðjan mars. Skjálftavirknin er því ekki merki um einhverjar breytingar í virkni í eldgosinu á Reykjanesi, né að kvika sé á ferðinni á svæðinu. Innlent 14.4.2024 18:38
Leyndarmálin á Messenger muni síður líta dagsins ljós Tregða í samskiptaforritinu Messenger stafar af öryggisuppfærslu sem felur í sér dulkóðun samskipta. Þetta segir sérfræðingur sem hvetur fólk til hlaða niður forritinu í tölvunni í stað þess að nýta vafra, vilji það nota forritið snurðulaust. Innlent 14.4.2024 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tólf særðust í dróna- og eldflaugaárás sem Íran gerði á Ísrael í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal sjö ára gömul stúlka, sem liggur á gjörgæslu. Leiðtogar G-7 ríkjanna funda nú um hvernig bregðast eigi við árásinni. Innlent 14.4.2024 18:00
Smáskjálftahrina á Reykjanesi Fjölmargir smáir jarðskjálftar hafa greinst á Reykjanesi í dag. Fáir þeirra hafa náði yfir eitt stig að styrk en skjálftavirknin hefur ekki verið meiri frá því eldgosið við Sundhnjúka hófst þann 16. mars. Innlent 14.4.2024 16:34
Sinubruni í búgarðabyggðinni Eldur kviknaði í sinu í búgarðabyggðinni svokölluðu milli Selfoss og Eyrarbakka í dag. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu eru á vettvangi og hafa náð tökum á eldinum. Innlent 14.4.2024 15:40
Bein útsending: Fer yfir hennar sýn á hlutverk forseta Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi, ætlar í dag að fara yfir hvers vegna hún býður sig fram og hver hennar sýn er á hlutverk forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Innlent 14.4.2024 15:31
Munu láta Írana gjalda þegar þeim hentar Ísraelar munu svara fyrir sig og láta Íran gjalda fyrir árásina í gærkvöldi, þegar slíkt hentar Ísrael. Þetta sagði Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, í yfirlýsingu sem birt var skömmu áður en hann fór á fund stríðsráðs ríkisins í dag. Erlent 14.4.2024 14:48
Sjóræningjar fengu sjö hundruð milljónir í lausnargjald Sómalskir sjórængingjar hafa sleppt 23 manna áhöfn skipsins MV Abdullah úr haldi og leyft þeim að sigla á brott á skipinu eftir að þeir fengu fimm milljón dala greiðslu í lausnargjald. Umsvif sjóræningjanna eru að aukast á ný eftir að lítið hefur á þeim borið í nokkur ár. Erlent 14.4.2024 13:47
Landsbankinn ekki seldur á þessu kjörtímabili Forsætisráðherra sér ekki fram á að hlutir í Landsbankanum verði seldir á þessu kjörtímabili en það gæti þó orðið á því næsta. Þá hugnast honum ágætlega að Landsbankinn losi sig við tryggingarfélagið TM. Innlent 14.4.2024 13:40
Fylgjast með hvernig næsti sólarhringur þróast Þórdís Kolbrún Reykjafjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld fordæma árás Írana á Ísrael. Hún vonar að árásum linni tafarlaust og allir aðilar sýni stillingu. Innlent 14.4.2024 12:15
Hádegisfréttir Bylgjunnar Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael í gærkvöldi. Fundurinn fer fram síðdegis og er haldinn að beiðni Gilard Erdan, sendiherra Ísrael við Sameinuðu þjóðirnar. Við förum yfir stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 14.4.2024 11:34
Hættu við eftir símtal frá Biden Stríðsráð Ísrael mun koma saman seinna í dag til að ræða möguleg viðbrögð við umfangsmikilli árás Írana á landið í gærkvöldi og í nótt. Ísraelar ætluðu sér að bregðast við árásinni í gærkvöldi en eru sagðir hafa hætt við. Erlent 14.4.2024 11:25
Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. Innlent 14.4.2024 11:15
Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar. Erlent 14.4.2024 09:49
Ísland fordæmir árásina Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. Erlent 14.4.2024 09:25