Fréttir
272 273 274 275 276 277 278 279 280 … 334 ›
Önnur palestínsk fjölskylda komin til landsins: „Við erum heppin að fá þau í okkar samfélag“ Palestínsk móðir og dætur hennar þrjár, sem dvalið hafa á Gasaströndinni, eru komnar til landsins. Mæðgurnar eru í hópi tólf Palestínumanna sem hópur íslenskra sjálfboðaliða aðstoðar nú við að komast yfir Rafah-landamærin. Innlent 16.2.2024 19:29
Stéttarfélög leigubílstjóra harma umrætt kynferðisbrot Stjórnarmenn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagsins Frama harma að ung kona hafi nýlega orðið fyrir ofbeldi af hendi tveggja manna, þar af meints leigubifreiðastjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum tveimur Innlent 16.2.2024 19:00
Segir veikindi föður síns mögulega munu greiða fyrir sáttum Harry, hertogi af Sussex, hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn til að ná sáttum við fjölskyldu sína eftir að faðir hans, Karl III Bretakonungur, greindist með krabbamein. Erlent 16.2.2024 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Andlát rússneska andófsmannsins Alexei Navalní hefur vakið hörð viðbrögð og þjóðarleiðtogar kalla eftir skýringum frá Rússum. Utanríkisráðherra Íslands segir Rússlandsforseta bera ábyrgð á dauða hans. Innlent 16.2.2024 17:59
Lýst eftir Pétri Jökli á vefsíðu Interpol Lýst er eftir íslenskum karlmanni á vefsíðu Interpol að beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Beiðnin er tilkomin vegna tilraunar til innflutnings á tæplega 100 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Íslands. Innlent 16.2.2024 17:44
Leita að húsnæði fyrir starfsemi Kolaportsins Reykjavíkurborg leitar nú að nýju húsnæði fyrir almenningsmarkað í miðborg Reykjavíkur. Starfsemin hefur verið rekin undir heitinu Kolaportið í 25 ár, lengst af í jarðhæð Tollhússins eða tuttugu ár. Innlent 16.2.2024 16:42
Sjómenn samþykktu kjarasamning Sjómenn samþykktu kjarasamning til fimm ára með 62,84 prósent greiddra atkvæða. Formaður Sjómannasambandsins segir ánægjulegt að félagsmenn hafi ekki tekið mark á skítkasti og óhróðri sem beinst hafi að stjórn félagsins. Innlent 16.2.2024 16:36
Orð Kristrúnar gangi gegn jafnaðarstefnunni Samflokkskonur Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar segja mannréttindi vera kjarna jafnaðarstefnunnar. Þær segja allt tal um hámarksfjölda hælisleitenda ekki í anda jafnaðarfólks og raunar ganga gegn jafnaðarstefnunni. Innlent 16.2.2024 16:03
Júlía Navalní segir að Pútín verði dreginn til ábyrgðar Júlía Navalní, eiginkona Alexei Navalní, sem sagður er hafa dáið í fangelsi í Síberíu í dag, segir að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, muni verða dreginn til ábyrgðar fyrir dauða eiginmanns hennar reynist satt að hann sé látinn. Erlent 16.2.2024 16:00
Skýringar eiginkonunnar dugðu ekki í Landsrétti Landsréttur hefur staðfest skilorðsbundna dóma yfir feðgum fyrir umfangsmikla fíkniefnaframleiðslu og peningaþvætti. Ári eftir að feðgarnir voru handteknir komu þeir á fót sjávarafurðafyrirtæki sem flytur út fisktegundir frá Íslandi um allan heim og veltir milljörðum króna. Eiginkona föðurins sem sýknuð var í héraðsdómi af peningaþvætti var sakfelld í Landsrétti. Innlent 16.2.2024 15:52
Hundruð milljóna króna skattasekt staðfest Landsréttur hefur sakfellt karlmann á sextugsaldri fyrir skattalagabrot. Hann var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 268 milljóna króna í sekt. Ákæruvaldið féllst á það undir rekstri málsins að tiltekin útgjöld hafi talist rekstrarkostnaður og sekt mannsins var lækkuð um 55 milljónir króna, frá því sem hafði verið dæmt í héraði. Innlent 16.2.2024 15:35
Mátti kenna Leoncie við nektardans Landsréttur hefur staðfest sýknu Helga Jónssonar, eiganda og umsjónarmanns Glatkistunnar, af öllum kröfum tónlistarkonunnar Leoncie. Hún höfðaði meiðyrðamál á hendur Helga vegna lýsinga hans á ferli hennar sem tónlistarkonu og nektardansmær. Innlent 16.2.2024 15:27
Bjarni segir Pútín bera ábyrgð á andlátinu Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir Vladímír Pútín og rússnesk stjórnvöld ábyrg fyrir andláti Alexei Navalní, eins helsta pólitíska andstæðings Rússlandsforseta. Innlent 16.2.2024 15:07
Færeyingar söfnuðu tíu milljónum fyrir Grindvíkinga Nú hefur yfir 33 milljónum króna verið úthlutað til Grindvíkinga úr neyðarsöfnun Rauða krossins. Alls hafa yfir 45 milljónir safnast og úthlutun er enn í fullum gangi. Af þeim 45 milljónum sem söfnuðust komu tíu þeirra frá Færeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Innlent 16.2.2024 14:54
Úkraínumenn að hörfa frá Avdívka Úkraínskir hermenn virðast vera að hörfa frá borginni Avdívka eða hluta hennar, í austurhluta Úkraínu, eftir umfangsmiklar árásir Rússa á borgina frá því í október. Skotfæraleysi hefur leikið úkraínska hermenn grátt á undanförnum vikum en Úkraínumenn eru sömuleiðis sagðir glíma við skort á hermönnum. Erlent 16.2.2024 14:19
Skjálftahrina norðvestur af Eldey Þónokkrir skjálftar hafa mælst norðvestur af Eldey síðustu daga í kjölfar eldgossins sem hófst þann 8. febrúar síðastliðinn. Stærsti skjálftinn mældist 2,4 að stærð. Innlent 16.2.2024 14:09
Nafn mannsins sem lést í slysi á Suðurlandsvegi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt við Pétursey þann 29. janúar síðastliðinn hét Einar Guðni Þorsteinsson. Innlent 16.2.2024 13:23
Efnið sem lak til rannsóknar en ekkert saknæmt átti sér stað Ekki er víst hvert efnið var sem lak á gólf Endurvinnslunnar við Furuvelli á Akureyri í gær. Lögreglan rannsakar málið en ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Innlent 16.2.2024 13:18
Boraði í nefið og nuddaði puttanum í pizzadeigið Forsvarsmenn Domino's pizzakeðjunnar í Japan hafa beðist afsökunar vegna starfsmanns sem boraði í nefið og nuddaði svo puttanum í pizzadeigið. Erlent 16.2.2024 13:14
Ákveðnir árgangar hvorki bólusettir við mislingum né hettusótt Nýlega hafa greinst á Íslandi bæði mislingar og hettusótt. Sama bóluefni er notað við þessum sjúkdómum en fólk fætt á bilinu 1975 til 1987 er margt ekki fullbólusett. Bóluefni standa fólki til boða en þó ekki nema það hafi verið útsett eða á leið til útlanda. Innlent 16.2.2024 13:01
Þúsundir tonna af metangasi láku út í andrúmsloftið á sex mánuðum Áætlað er að um 127 þúsund tonn af metangasi hafi sloppið út í andrúmsloftið eftir að eldur kviknaði í kjölfar sprengingar í borholu í Kasakstan. Eldurinn geisaði í sex mánuði og áhrif losunarinnar sögð jafngilda árslosun 717 þúsund bensínbifreiða. Erlent 16.2.2024 12:21
Dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustu og sneri strax aftur eftir fangelsisvist Karlmaður hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir brot gegn fyrrverandi unnustu sinni. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga konunni, hóta henni og beita ofbeldi. Honum er gert að greiða konunni tvær milljónir í miskabætur. Innlent 16.2.2024 12:19
Engar frekari vísbendingar eftir leitina Leit írsku lögreglunnar að Jóni Þresti Jónssyni hefur ekki borið árangur og liggja engar frekari vísbendingar um hvarf hans fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá írsku lögreglunni. Innlent 16.2.2024 11:46
Ekki hægt að senda lögreglumenn inn í húsið vegna hita Viðbragðsaðilar munu ekki fara inn í húsnæðið sem brann í Fellsmúla í gærkvöldi á næstu dögum vegna mikils hita sem enn er þar. Erfitt er að segja til út frá hverju kviknaði. Innlent 16.2.2024 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um brunann mikla sem varð í Fellsmúla í gær. Innlent 16.2.2024 11:38
Ekki hægt að treysta bara á Svartsengi til lengri tíma Verkfræðingur á vegum almannavarna segir viðbúið að gera megi ráð fyrir frekari skakkaföllum á vatnslögnum til og frá orkuverinu í Svartsengi í komandi jarðhræringum. Leitað sé að jarðhita til að tryggja tvöfalt öryggi á orkuframleiðslu ef ske kynni að framleiðsla í Svartsengi stöðvist. Innlent 16.2.2024 11:30
Navalní sagður hafa dáið í fangelsi Alexei Navalní, einn helsti pólitíski andstæðingur Vladimírs Pútin, forseta Rússlands er dáinn. Hann lést í fangelsi og er hann sagður hafa dáið vegna veikinda. Erlent 16.2.2024 11:29
Tilnefningar hefjast 7. mars og kosningar 11. apríl Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur tilkynnt forsætisnefnd kirkjuþings ákvörðun sína um að hefja á ný kosningu til embættis biskups Íslands og forsætisnefnd lagt blessun sína yfir fyrirkomulagið. Innlent 16.2.2024 11:22
Báðir særðir eftir hnífstunguárás Karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa framið hnífstunguárás í Fossvogi í gær. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt þeim sem hann réðst á en áverkar þeirra voru óverulegir. Innlent 16.2.2024 11:15
Uppljóstrari FBI ákærður fyrir lygar um Hunter og Joe Biden Fyrrverandi uppljóstrari fyrir Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið ákærður fyrir að ljúga um margra milljóna dala mútumál tengt úkraínsku orkufyrirtæki og Biden-feðgunum Joe og Hunter. Ásakanir Alexander Smirnov, áðurnefnds uppljóstrara, hafa verið burðarstólpi í rannsókn Repúblikana á Joe Biden, forseta. Erlent 16.2.2024 11:03