Fréttir

Hætta við skólaakstur úr Suður­hlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun

Samþykkt var á aukafundi skóla- og frístundaráðs að fella niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla. Skólaráð skólans harmar ákvörðunina og leggur áherslu á að tryggt sé að gönguleiðir úr Suðurhlíðum séu öruggar allt árið um kring. Breytingin gerir ráð fyrir að snjómokstri sé alltaf lokið fyrir klukkan átta á morgnana. 

Innlent

Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri?

Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum.

Erlent

Viður­kennir að opin­ber gjöld hefðu getað hækkað minna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum.

Innlent

„Ég get ekki svarað því“

Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um.

Innlent

Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“

Tíu vitni komu fyrir dómara í aðalmeðferð í Reykholtsmálinu, þar á meðal yfirmaður og vinkonur brotaþola sem fór strax að gruna að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Starfsmenn Símans og Landsbankans eru einnig vitni í málinu en systir Ingunnar Rutar Sigurðardóttur, sem er ákærð í málinu, skoraðist undan því að svara.

Innlent

Sótti kíló af kókaíni á póst­húsið

Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.

Innlent

Upp­selt í tíu kíló­metra í keppnis­flokki

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun og samkvæmt tilkynningu styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki en enn hægt að kaupa almannen hlaupamiða í tíu kílómetra hlaup. 

Innlent

Örn verður fram­kvæmda­stjóri HÍ

Örn Guðmundsson alþjóðaviðskiptafræðingur hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Háskóla Íslands. Hann tekur við af Guðmundi Ragnari Jónssyni sem fer á eftirlaun eftir áramót.

Innlent

Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum

Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins.

Erlent

Snerti sam­starfs­konu á ó­sæmi­legan hátt

Jakob Birgisson uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Hann lét af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætti allri áfengisneyslu. 

Innlent

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

Erlent

Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru

Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.

Erlent

Hnúfu­bakur á svamli skammt frá Reykja­vík

Hnúfubakur sást svamlandi í Faxaflóa í dag skammt frá Reykjavík. Ferðamenn hjá Sólfarinu við Sæbraut ráku upp stór augu þegar þau sáu dýrið. Leiðsögumaður segir það ekki algengt að sjá slík sporðaköst nálægt landi.

Innlent

„Ég elska að vera hér“

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

Innlent

Gestum komið fyrir á öðru hóteli

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.

Innlent