Tvö íslensk lið keppa til úrslita á EM í hópfimleikum á föstudaginn.
Fyrr í dag tryggði blandað lið Íslands í unglingaflokki sér örugglega sæti í úrslitum og nú í kvöld lék stúlknaliðið sama leik.
Ísland endaði í 2. sæti af níu liðum og var aðeins 0,50 stigum á eftir Dönum sem urðu hlutskarpastir. Svíar urðu í 3. sæti en þessi þrjú lið skáru sig svolítið úr. Finnar, Norðmenn og Bretar komust einnig áfram í úrslitin sem fara sem áður sagði fram á föstudaginn.
Íslensku stelpurnar hófu leik á trampólíni og fengu 17,300 stig fyrir þær æfingar.
Ísland var í 2. sæti eftir 1. umferðina en skaust upp í það fyrsta eftir gólfæfingarnar sem skiluðu stelpunum 20,050 stigum.
Stökk á dýnu voru síðust á dagskrá hjá íslenska liðinu. Ísland fékk 15,000 stig fyrir þær æfingar og datt fyrir vikið niður í 2. sætið.
Það skiptir þó ekki öllu. Stóra prófið er á föstudaginn og þar ætla íslensku stelpurnar sér að komast á pall.
Á morgun er svo komið að fullorðinsliðunum. Klukkan 14:00 hefst keppni í blönduðum flokki og klukkan 16:15 í kvennaflokki.
Bein lýsing: EM í hópfimleikum:
18:30
Ísland fékk 15,000 stig fyrir æfingar á dýnu. Stelpurnar enda því í 2. sæti með 52,350 stig, 0,50 stigum á eftir Dönum. Svíar tóku svo 3. sætið.
18:03
Íslensku stelpurnar fá 20,050 stig fyrir gólfæfingarnar. Ísland hefur því tekið forystuna, er með 37,350 stig, 0,65 stigum á undan Dönum. Ísland verður því með tvö lið í úrslitum á föstudaginn.
17:55
Víkingaklapp!
17:47
Íslensku stelpurnar voru að enda við að klára gólfæfingar. Flest í toppstandi þar. Það verður gaman að sjá hversu háa einkunn þær fá. Hún hlýtur að vera yfir 20,000.
17:23
Ísland fær 17,300 stig fyrir trampólínið og skýst þar með upp í 2. sætið. Danir eru efstir en þeir fengu 21,000 stig fyrir æfingar á gólfi.
17:15
Ísland lýkur fyrri umferðinni með trampólínæfingum. Stelpurnar afgreiddu þetta ljómandi vel. Nú bara spurning hvað dómurunum fannst um þetta.
16:14
Nú tökum við smá hlé áður en keppni í stúlknaflokki hefst.
16:12
Allar einkunnir komnar í hús. Ísland endar í 3. sæti með 53,416 stig. Danir urðu efstir með 56,516 stig og Norðmenn í 2. sæti með 56,050 stig. Svíar, Ítalir og Bretar komust einnig áfram.
16:08
Ísland fékk 20,176 í einkunn fyrir gólfæfingarnar sem fleytir liðinu örugglega í úrslit. Lokastaðan liggur ekki fyrir alveg strax en Ísland verður aftur á meðal keppenda á föstudaginn. Það er hægt að slá því föstu.
15:45
Íslensku krakkarnir voru að klára æfingar á gólfi. Við erum væntanlega að tala 20,000 plús í einkunn fyrir þær. Ísland er sem stendur í 4. sæti en sex efstu liðin fara áfram í úrslit.
15:15
Íslensku krakkarnir fengu 17,000 fyrir æfingar sínar á trampólíni. Ísland er því komið með 33,566 stig eftir fyrstu tvær æfingarnar. Nú eru gólfæfingarnar bara eftir.
15:12
Æfingar á trampólíni eru að baki og gengu virkilega vel. Lendingarnar virtust betri en áðan. Nú er bara að bíða eftir einkunninni.
14:53
Fjögur lið eru búin að fá einkunn. Ísland er í 2. sæti á eftir Noregi sem fékk 18,100 stig fyrir æfingar sínar á trampólíni.
14:45
Ísland fékk 16,200 í einkunn fyrir stökkin. Það telst viðunandi.
14:38
Íslenska liðið hefur lokið sér af. Næst er það trampólínið.
14:35
Íslenska liðið byrjar á stökki.
14:30
Þýska liðið byrjar á gólfæfingum.
14:20
Blandaða unglingaliðið ríður á vaðið. Alls eru níu lið sem taka þátt. Auk Íslands eru það Þýskaland, Noregur, Holland, Ítalía, Slóvenía, Bretland, Svíþjóð og Danmörk. Íslenska liðið er númer tvö í röðinni.
14:18
Ísland sendir fjögur lið til leiks. Blandaða liðið í unglingaflokki og stúlknaliðið keppa í dag.
14:15
Góðan daginn og velkomin í beina lýsingu frá EM í hópfimleikum sem fer fram í Lukna höllinni í Maribor í Slóveníu.
Stelpurnar skutust áfram í úrslitin

Tengdar fréttir

Blandaða liðið örugglega í úrslit
Blandað lið Íslands í unglingaflokki komst nú rétt í þessu áfram í úrslit á EM í hópfimleikum sem fer fram í Maribor í Slóveníu.

Fáránlega vel gert
Blandað lið Íslands í unglingaflokki fór örugglega áfram í úrslit á EM í hópfimleikum sem hófst í Maribor í Slóveníu í dag.