Fullt hús stiga eftir góðan sigur á Kýpur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. september 2016 15:46 Martin var stigahæstur í íslenska liðinu með 21 stig. vísir/ernir
Ísland er með fullt hús stiga í undankeppni EM 2017 eftir 11 stiga útisigur, 64-75, á Kýpur í dag.Jón Arnór Stefánsson lék ekki með íslenska liðinu í dag vegna meiðsla en það kom ekki að sök. Sterkur seinni hálfleikur skilaði Íslandi sigrinum á Kýpur í dag. Kýpverjar leiddu með einu stigi í hálfleik, 32-31, en í seinni hálfleik fór íslenska liðið, leitt áfram af Martin Hermannssyni og Hauki Helga Pálssyni, í gang og tryggði sér sigurinn. Martin skoraði 21 stig, þar af 12 í seinni hálfleik. Hann tók einnig sex fráköst og gaf sex stoðsendingar. Haukur var aðeins kominn með tvö stig í hálfleik en í þeim seinni fór hann mikinn og skoraði 17 stig. Þá átti Hlynur Bæringsson frábæran leik; skoraði 15 stig, tók 10 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Logi Gunnarsson skoraði 11 stig en hann var besti sóknarmaður íslenska liðsins í fyrri hálfleik. Íslenska liðið vann 3. leikhlutann með 10 stigum og staðan var því 56-47 fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Þar héldu strákarnir haus og lönduðu 11 stiga sigri. Næsti leikur Íslands er gegn Belgíu í Antwerpen á miðvikudaginn.
EM 2017 í Finnlandi Körfubolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira