Nýi leikmaðurinn tryggði FH nauðsynlegan sigur | Margrét Lára funheit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júlí 2016 21:21 Aldís Kara Lúðvíksdóttir og stöllur hennar í FH unnu mikilvægan sigur eftir langa taphrinu. vísir/eyþór
Tíunda umferð Pepsi-deildar kvenna fór fram í kvöld.Breiðablik vann öruggan sigur á KR og ÍBV og Stjarnan unnu sterka útisigra. Alex Nicole Alugas tryggði FH gríðarlega mikilvægan sigur á ÍA þegar liðin mættust í Kaplakrika. Alugas er nýkomin til FH frá Sindra á Hornafirði og hún gerði sér lítið fyrir og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Fimleikafélagið. Bryndís Hrönn Kristinsdóttir kom FH í 1-0 strax á 6. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Cahtrine Dyngvold jafnaði metin fyrir ÍA á 59. mínútu en aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Alugas, sem kom inn á í hálfleik, sigurmarkið mikilvæga. FH, sem hafði tapað sex leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld, komst þar með upp í 7. sæti deildarinnar. FH-ingar eru með 10 stig, fjórum stigum frá fallsæti. Skagakonur, sem tókst ekki að fylgja eftir sigrinum á KR í síðustu umferð, eru enn á botni deildarinnar með fjögur stig.Margrét Lára hefur skorað átta mörk í síðustu fimm leikjum Vals.vísir/hannaÁ Hlíðarenda tóku Valskonur á móti Fylki og unnu öruggan 3-0 sigur. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk en hún er búin að skora átta mörk í síðustu fimm leikjum Vals. Vesna Elísa Smiljkovic braut ísinn á 17. mínútu og þegar sjö mínútur voru til hálfleiks kom Margrét Lára Val í 2-0. Þannig var staðan fram í uppbótartíma þegar Margrét Lára skoraði sitt annað mark og þriðja mark Vals úr vítaspyrnu. Landsliðsfyrirliðinn er alls komin með 10 mörk í Pepsi-deildinni, fjórum mörkum minna en Stjörnukonan Harpa Þorsteinsdóttir. Valskonur eru í 3. sæti deildarinnar með 21 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Stjörnunnar. Fylkir er aftur á móti í 6. sæti með 10 stig, fjórum stigum frá fallsæti.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar af úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Handbolti Skotinn til bana í jarðarför móður sinnar Fótbolti Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ Fótbolti Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Handbolti Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Sport Breiðablik leitar að leikmönnum en reglur UEFA flækja málin Fótbolti City fer með góða forystu inn í seinni leikinn gegn Newcastle Fótbolti Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Íslenski boltinn Segir Gumma Tóta á leið heim úr atvinnumennsku Fótbolti Ólympíuhetja dó í snjóflóði Sport Fleiri fréttir Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Sjá meira