Fótbolti

Heimsmeistararnir byrja á sigri | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mustafi stangar boltann í netið.
Mustafi stangar boltann í netið. vísir/getty
Shkodran Mustafi og Bastian Schweinsteiger voru á skotskónum fyrir Þýskaland sem vann 2-0 sigur á Úkraínu í C-riðli. Fyrri hálfleikur var fjörugur, en sá síðari rólegri.

Hraðinn var mikill í fyrri hálfleik og skemmtanagildið hátt, en Mustafi skoraði eftir glæsilega aukspyrnu Toni Kroos á 19. mínútu.

Staðan var 1-0 í hálfleik, en Úkraínumenn voru nálægt því að jafna í fyrri hálfleik þegar Jerome Boateng bjargaði á marklínu.

Síðari hálfleikurinn var ekki fjörugur og lítið var um opin marktækifæri, en Bastian Schweinsteiger skoraði eftir skyndisókn í uppbótartíma.

Þýskaland og Pólland eru því með þrjú stig eftir fyrstu umferðina í C-riðli, en Úkraína og Norður-Írland eru án stiga.

Á fimmtudaginn mætast svo toppliðin, Þýskaland og Pólland, í París, en Úkraína og Norður-Írland leika í Lyon.

1-0:
Mögnuð björgun Þjóðverja: 2-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×