Gary Neville stýrir Valencia út tímabilið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. desember 2015 12:10 Neville hefur verið aðstoðarþjálfari enska landsliðsins síðan 2012. vísir/getty
Gary Neville hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri spænska úrvalsdeildarliðsins Valencia. Samningurinn gildir út tímabilið en þetta er í fyrsta sinn sem hinn fertugi Neville stýrir aðalliði. Undanfarin ár hefur Neville, sem vann fjölda titla sem leikmaður Manchester United, verið aðstoðarþjálfari enska landsliðsins og þá hefur hann getið sér gott orð sem sparkspekingur á Sky Sports. Neville heldur áfram sem aðstoðarþjálfari Englands, samhliða starfi sínu hjá Valencia. Phil Neville verður eldri bróður sínum til halds og trausts en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Valencia frá því í sumar. Nuno Espirito Santo sagði starfi sínu lausu eftir 1-0 fyrir Sevilla á sunnudaginn en Valencia hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel á tímabilinu og situr í 9. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar. „Ég er gríðarlega spenntur að fá þetta tækifæri hjá Valencia,“ er haft eftir Neville á heimasíðu félagsins. „Valencia er stórt félag og ég þekki það af eigin reynslu hversu ástríðufullir stuðningsmenn liðsins eru. Ég hlakka til að vinna með þeim hæfileikaríka hópi leikmanna sem eru hjá félaginu.“ Neville hefur formlega störf 6. desember en þremur dögum síðar stýrir hann liðinu í fyrsta sinn, gegn Lyon í Meistaradeild Evrópu.OFFICIAL STATEMENT | @GNev2 -> https://t.co/52OIkdke0h #WelcomeGaryNeville pic.twitter.com/pcHV3oUTOA— Valencia CF English (@valenciacf_en) December 2, 2015
Spænski boltinn Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira