Indriði kominn heim í KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. október 2015 15:00 Indriði Sigurðsson var kynntur sem nýr leikmaður KR í dag. Vísir/Vilhelm
Indriði Sigurðsson, fyrirliði Viking Stavanger í norsku úrvalsdeildinni, samdi í dag við uppeldisfélag sitt KR til tveggja ára og spilar með liðinu í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð. Indriði var kynntur á blaðamannafundi KR-inga í Frostaskjóli í dag, en leiktíðinni í Noregi er ekki lokið. Hann á enn fjóra leiki eftir með norsku Víkingunum.Sjá einnig:Indriði: Næ leikjafjölda pabba eftir svona ellefu ár Indriði, sem er fæddur 1981, braust inn í KR-liðið 1998 og varð Íslands- og bikarmeistari með KR árið 1999. Hann fór svo í atvinnumennsku árið 2000 og hefur verið þar síðan. Þessi öflugi varnarmaður gekk í raðir Lilleström í Noregi og spilaði með liðinu í fjögur ár áður en hann gekk í raðir Genk í Belgíu þar sem hann spilaði í þrjú ár. Þetta er reyndar í annað sinn sem Indriði kemur heim í KR eftir að hann fór í atvinnumennsku, en hann sneri aftur 2006 þegar hann yfirgaf Genk. Hann náði þó ekki að spila með KR-liðinu í úrvalsdeildinni hér heima því norska liðið Lyn bauð honum samning og fór Indriði aftur út. Indriði var aðeins formlega í KR í átta daga árið 2006. Indriði spilaði með Lyn í fjögur ár áður en hann gekk í raðir Viking þar sem hann er að klára sitt sjöunda tímabil. Hann var gerður að fyrirliða Viking 2011 og hefur verið á meðal bestu miðvarða norsku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár. Indriði á að baki 65 landsleiki fyrir A-landslið Íslands auk þess sem hann spilaði með 44 landsleiki með yngri landsliðunum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira