ÍA og HK með fullt hús stiga í Lengjubikarnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. mars 2015 14:53 Garðar var á skotskónum í dag. vísir/valli
ÍA hefur byrjað frábærlega í Lengjubikarnum í fótbolta og það var engin breyting þar í dag. Skagamenn tóku þá á móti Grindavík í Akraneshöllinni og fóru með sigur af hólmi, 3-2. Arnar Már Guðjónsson kom ÍA yfir á 8. mínútu með sínu fjórða marki í Lengjubikarnum. Björn Berg Bryde jafnaði metin fyrir hálfleik en á 7. mínútu seinni hálfleiks kom Garðar Gunnlaugsson Skagamönnum yfir á ný, en hann kom inn á sem varamaður í hálfleik. Óli Baldur Bjarnason jafnaði leikinn í 2-2 með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu en níu mínútur seinna skoraði Darren Lough sigurmark ÍA. Arsenij Buinickij lék sinn fyrsta leik fyrir ÍA í dag en hann kom til liðsins frá KA í síðasta mánuði. Skagamenn eru á toppi riðils 3 með fullt hús stiga (12 stig), fimm stigum á undan Keflavík sem er í 2. sæti. Í riðli 1 bar HK sigurorð af Víkingi Ólafsvík í Kórnum. Aron Þórður Albertsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 11. mínútu. Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar eru í 2. sæti riðils 1 með níu stig eftir þrjá leiki. Fylkir situr í toppsætinu en hefur leikið einum leik meira en HK sem er líklegt til afreka í 1. deildinni í sumar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira