Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
66 67 68 69 ›
Barist um hvert atkvæði Lokaspretturinn er hafinn í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Þriðju og síðustu kappræður þeirra George Bush og Johns Kerrys fóru fram í gær og þar var tekist á um innanríkismálin. Fylgi frambjóðendanna er hnífjafnt og því barist um hvert atkvæði. Erlent 13.10.2005 14:48
Kerry hafði betur en Bush John Kerry, forsetaefni demókrata, virðist hafa komist heldur betur frá þriðju og síðustu kappræðum forsetaefna stóru flokkanna en George W. Bush Bandaríkjaforseti. Hann hafði mun betur í tveimur könnunum sem birtar voru eftir kappræðurnar og sjónarmun betur í þeirri þriðju. Erlent 13.10.2005 14:47
Kerry er ekki góður maður "Ég fékk annað tækifæri til að meta John Kerry og það eina sem ég get sagt er þetta: Þetta er ekki góður maður," sagði Lynne Cheney, eiginkona Dick Cheney varaforseta, þegar hún kynnti eiginmann sinn á kosningafundi. Hún er ósátt Kerry fyrir að hafa blandað samkynhneigðri dóttur Cheney-hjónanna inn í kappræður forsetaefnanna í fyrrinótt. Erlent 13.10.2005 14:47
Tókust á af hörku Tekist var á af hörku um innanríkismál og velferðakerfið í síðustu kappræðum forsetaframbjóðenda Bandaríkjanna í nótt. Milljónir manna fylgdust með kappræðunum sem voru fyrirfram taldar geta haft talsverð áhrif á fylgi frambjóðendanna. Hvorugur var þó sigurvegari samkvæmt skyndikönnunum að kappræðunum loknum og margir eru enn óákveðnir. Erlent 13.10.2005 14:47
Fylgið nákvæmlega jafnmikið Fylgi George Bush og Johns Kerrys er nákvæmlega jafnmikið samkvæmt nýjustu könnunum og því gætir mikillar spennu fyrir síðustu kappræður þeirra í kvöld. Þær eru síðasta stóra tækifæri frambjóðendanna til að sannfæra sjö prósent kjósenda, sem enn eru óákveðin. Erlent 13.10.2005 14:47
Líklega ekki senditæki Bungan sem sást á bakinu á George Bush Bandaríkjaforseta í kappræðum á dögunum er að líkindum tilkomin vegna lélegs saumaskapar að mati skraddara á Skólavörðustíg. Þeir sem þekkja til hlustunarbúnaðar telja afar ólíklegt að bungan sé senditæki. Erlent 13.10.2005 14:47
Lokakappræður Kerry og Bush Lokakappræður forsetaframbjóðendanna George Bush og Johns Kerrys verða háðar í Arizona í Bandaríkjunum í kvöld. Innanríkismál eiga að vera í brennidepli. Þetta verða þriðju og jafnframt síðustu kappræður þeirra fyrir kosningarnar og vilja sumir sérfræðingar meina að þær muni ekki skipta meginmáli í baráttunni. Erlent 13.10.2005 14:47
Kerry með forskot John Kerry virðist hafa mjakað sér fram úr George Bush miðað við niðurstöður nýjustu könnunar Reuters og Zogbi sem birt var fyrir stundu. Samkvæmt henni hefur Kerry einnar prósentu forskot sem er þó innan skekkjumarka. Erlent 13.10.2005 14:46
Samsæriskenningar í algleymingi Forsetaframbjóðandi sem hefur með sér bönnuð gögn í kappræðum og forseti sem fær svör sín við spurningum í sömu kappræðum frá aðstoðarmönnum sínum sem segja honum til í gegnum falinn hljóðnema. Þetta er meðal þess sem gengið hefur um netheima að undanförnu. Erlent 13.10.2005 14:46
Konurnar hrifnar af Kerry Mjótt er á munum milli demókratans Johns Kerry og sitjandi forseta, George W. Bush í Bandaríkjunum. Eins og danska fréttablaðið, Politiken greinir frá, eru konurnar frekar hrifnar af Kerry en karlarnir af Bush. Erlent 13.10.2005 14:46
Bush fengi fleiri kjörmenn í dag George W. Bush Bandaríkjaforseti næði endurkjöri ef kosið yrði í dag samkvæmt nýrri kosningaspá CNN sjónvarpsstöðvarinnar. John Kerry er hins vegar í sókn og getur velgt honum verulega undir uggum, segir í sömu spá. Erlent 13.10.2005 14:46
Bush og Kerry nánast jafnir George Bush Bandaríkjaforseti og John Kerry, keppinautur hans um Hvíta húsið, tókust á af hörku í kappræðum í gærkvöldi. Báðir þóttu standa sig vel en John Kerry virðist hafa fallið betur í kramið hjá kjósendum. Erlent 13.10.2005 14:46
Tókust á af hörku George Bush Bandaríkjaforseti og John Kerry, keppinautur hans um Hvíta húsið, tókust á af hörku í kappræðum í gærkvöldi. Stríðið í Írak, skattar og atvinnumál voru efst á dagskránni. Erlent 13.10.2005 14:46
Jafntefli varamannanna Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, og John Edwards, varaforsetaefni demókrata, tóku hvorn annan engum vettlingatökum þegar þeir mættust í kappræðum í fyrrinótt. Erlent 13.10.2005 14:45
Kerry heiðursborgari í Tékklandi? Sama hvort John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, verður forseti Bandaríkjanna í næsta mánuði eða ekki þá stendur honum alla vega til boða að verða heiðursborgari tékkneska bæjarins Horni Benesov. Erlent 13.10.2005 14:44
Bush og Kerry með jafn mikið fylgi George Bush og John Kerry hafa jafn mikið fylgi samkvæmt nýrri könnun CBS og New York Times sem birt var í morgun. Báðir njóta stuðnings fjörutíu og sjö prósenta aðspurðra. Viku fyrr var Kerry átta prósentum á eftir Bush. Erlent 13.10.2005 14:44
Kappræður Cheneys og Edwards Kappræður Dicks Cheneys og Johns Edwards í kvöld eru taldar skipta meira máli en kappræður varaforsetaefna geri alla jafna. Búist er við að metfjöldi áhorfenda fylgist með kappræðunum þar sem innrásin í Írak verður líklega efst á baugi. Erlent 13.10.2005 14:44
Spenna komin í kapphlaupið Spenna hefur á ný færst í kapphlaupið um Hvíta húsið. Kannanir benda til þess að John Kerry hafi sótt verulega á í kjölfar kappræðna við George Bush í síðustu viku. Erlent 13.10.2005 14:44
Sjaldan meiri kosningaáhugi Starfsmenn kosningastjórna víða í Bandaríkjunum höfðu vart undan í gær þegar fjöldi fólks streymdi á skrifstofur kosningastjórna og sýslumannsembætta til að skrá sig á kjörskrá. Víðast hvar í Bandaríkjunum er sömu sögu að segja, mun meira er um nýskráningar kjósenda en fyrir fjórum árum og skráningamet falla í hrönnum. Erlent 13.10.2005 14:44
Kerry með meira fylgi hjá Newsweek John Kerry nartar nú í hælana á keppinaut sínum George Bush samkvæmt nýjum fylgiskönnunum og er jafnvel kominn með meira fylgi samkvæmt einni könnun. Erlent 13.10.2005 14:44
Hnífjafnt hjá Bush og Kerry George W. Bush Bandaríkjaforseti og öldungadeildarþingmaðurinn John Kerry njóta jafn mikils fylgis samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir sjónvarpsstöðina CNN og dagblaðið USA Today. Erlent 13.10.2005 14:44
Forskot Bush horfið Forskot George Bush á John Kerry er horfið samkvæmt nýrri könnun CNN og <em>USA Today</em>. Báðir frambjóðendurnir hafa fjörutíu og níu prósenta fylgi. Sé aðeins litið til skráðra kjósenda er Bush þó ennþá með forskot, 49 prósent á móti 47 prósentum. Erlent 13.10.2005 14:44
Stórsókn hjá John Kerry Demókratinn og forsetaframbjóðandinn John Kerry er kominn með meira fylgi en keppinautur hans, George W. Bush Bandaríkjaforseti, samkvæmt skoðanakönnun bandaríska tímaritsins Newsweek. Erlent 13.10.2005 14:44
Kerry betri en Bush hafði betur Viðbrögð almennings við fyrstu kappræðum forsetaefnanna ættu að gefa John Kerry vonarneista eftir erfitt gengi í kosningabaráttunni undanfarið. Hann þykir almennt hafa staðið sig betur en George W. Bush og bætti ímynd sína. Frammistaða hans virðist þó ekki endilega skila sér í auknu fylgi, í það minnsta fyrst um sinn. Erlent 13.10.2005 14:43