Eldgos og jarðhræringar
138 139 140 141 ›
Flugsvæði lokað Eldgosið í Grímsvötnum hefur valdið því að um 311.000 ferkílómetrasvæði norð-austur af gosstöðvunum er lokað fyrir flugumferð. Innlent 13.10.2005 14:54
Varað við umferð um jökulinn Fyrir liggur að örar breytingar eru á gosinu við Grímsvötn samkvæmt tilkynningu frá Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varar við umferð um jökulinn í ljósi þess að jökullinn er sprunginn og stórhættulegur yfirferðar. Innlent 13.10.2005 14:54
Ekkert í líkingu við flóðið 1996 Flóð í Skeiðará nær að öllum líkindum hámarki í dag. Hlaupið er ekki talið verða ekki jafn mikið og árið 1996 þegar miklar skemmdir urðu á mannvirkjum á Skeiðarársandi. Innlent 13.10.2005 14:54
Hætta á öskufalli í byggð Flugumferð hefur verið beint suður fyrir Ísland í nótt vegna gosmakkar frá eldgosinu. Mest hætta á öskufalli í byggð er sem stendur norðaustur af eldstöðinni, eins og í Vopnafirði. Víðir Reynisson, verkefnafulltrúi Almannavarna, segir hættu ekki stafa af gosinu að svo stöddu. Aukafréttatími verður á Stöð 2 klukkan 12.25. Innlent 13.10.2005 14:54
Miklar sprengingar í gígnum Miklar sprengingar hafa verið í gígnum í Grímsvötnum í dag og stíga háir öskubólstrar upp frá gosstöðvunum. Það er talið að Grímsvötn hafi gosið um sjötíu sinnum frá því að land byggðist, oftar en nokkur önnur eldstöð. Innlent 13.10.2005 14:54
Ný goshrina hafin Næstu 60 til 80 árin má búast við tíðum eldgosum í Vatnajökli að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðfræðings. Ekki er búist við miklu hlaupi í kjölfar gossins í Grímsvötnum. Mannvirki ekki talin í hættu. Innlent 13.10.2005 14:54
Hlaupið kom gosinu af stað Skeiðarárhlaupið virðist hafa komið gosinu af stað sem er þá í fyrsta sinn í 70 ár sem það gerist. Öskufalls vegna gossins í Grímsvötnum hefur orðið vart á Austurlandi, meðal annars á Möðrudal á Fjöllum. Yfirdýralæknir hefur ráðlagt bændum, og þá sérstaklega á austanverðu landinu, að taka fé sitt á hús svo það skaðist ekki af ösku en það getur fengið flúoreitrun af öskunni. Innlent 13.10.2005 14:54
Meiri bráðnun en venjulega Eldgosið sem hófst í Grímsvötnum í gærkvöldi er sunnar og vestar en hefðbundnar gosstöðvar og er íshellan þar mun þykkari. Því verður meiri bráðnun en í venjulegu Grímsvatnagosi og er þegar farið að magnast hlaupið ofan til í Skeiðará. Sama er að segja um Gígjukvísl. Öskufalls hefur orðið vart í Möðrudal á Fjöllum. Innlent 13.10.2005 14:54
Ljóst að um gos er að ræða "Smám saman hefur orðið ljósara að um gos er að ræða í eða við Grímsvötn og það upp úr ísnum," segir í tilkynningu sem Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni sendi frá sér rétt í þessu. Innlent 13.10.2005 14:54
Veginum við Skeiðarársand lokað Lögreglustjórarnir í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa samkvæmt ráðleggingum jarðvísindamanna og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra ákveðið að loka veginum um Skeiðarársand á miðnætti. Veginum verður lokað af öryggisástæðum. Lokanirnar verða við Núpsstað að vestan og við afleggjarann að Skaftafelli að austan. Innlent 13.10.2005 14:54
Stöðugur gosórói í Grímsvötnum Fullvíst má nú telja að eldgos sé hafið í eða við Grímsvötn. Samkvæmt tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna hófst stöðugur gosórói í Grímsvötnum um kl. 22:10 í kvöld. Í tilkynningunni segir að jarðvísindamenn og starfsfólk í samhæfingarstöð almannavarna fylgist með framvindu mála. Innlent 13.10.2005 14:54
Eldgos líklega hafið í Grímsvötnum "Það er margt sem bendir til þess að gos sé hafið í eða við Grímsvötn. Við vitum ekki mikið meira um það í bili, hvort það er enn ofan í vatninu sjálfu eða undir ís, eða hvort það hefur brotið sér leið upp. Þetta er á mjög svipuðum slóðum og eldgosið í Grímsvötnum 1998," sagði Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands í kvöld. Innlent 13.10.2005 14:54