William & Kate
1 2 ›
Brúðkaup aldarinnar: Hvar voru blökkumennirnir? Bandaríski spjallþátturinn The View, fjallaði af krafti um brúðkaup aldarinnar í Bretlandi, en leikkonan Sherri Shepherd spurði hinsvegar eldfimrar spurningar: Hvar er eiginlega svarta fólkið? Erlent 30.4.2011 19:25
Prinsessan greinilega sátt við brúðkaupsnóttina Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru af Vilhjálmi Bretaprins, 28 ára, og Katrínu Middelton, 29 ára, í dag, laugardag, eru skoðaðar líta þau út fyrir að vera í sjöunda himni eftir brúðkaupið þeirra sem fram fór í Westminster Abbey í gær að viðstöddu fjölmenni. Þá má einnig sjá þyrluna sem flaug með hjónakornin burt frá Bretlandi á ónefndan stað þar sem þau ætla að eyða helginni saman. Opinberu brúðkaupsmyndirnar sem teknar voru af þeim eftir athöfnina má einnig skoða í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 30.4.2011 20:33
Brúðurin veit ekki hvert ferðinni er heitið Brúðkaupsgestir skemmtu sér konunglega í Buckingham höll í nótt eftir brúðkaup Vilhjálms bretaprins og Katrínar Middleton. Erlent 30.4.2011 12:43
Brúðhjón dönsuðu fram á nótt Vilhjálmur prins og Katrín Middleton fögnuðu brúðkaupsdegi sínum ásamt um þrjúhundruð vinum og vandamönnum í veglegri veislu Buckingham höll í gærkvöldi. Erlent 30.4.2011 10:02
Bernskuheimili Katrínar til sölu á hundrað milljónir Ef þú átt hundrað milljónir liggjandi á lausu gætir þú náð þér alvöru minjagrip um brúðkaup Vilhjálms prins og Katrínar hertogaynju. Bernskuheimili Katrínar er nefnilega til sölu á þessum spottprís. Húsið heitir West View og er nálægt borginni Reading. Katrín bjó í húsinu til þrettán ára aldurs. Foreldrar hennar seldu það árið 1995 fyrir um 27 milljónir en verðmiðinn sem núverandi eigandi hefur sett á húsið hefur væntanlega eitthvað með breytta stöðu Middleton-dótturinnar að gera. Erlent 29.4.2011 14:15
Sjáðu hattana og kjólana Hattanir og kjólarnir voru misfallegir eins og þeir voru margir í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton í Westminster Abbey í London í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Hattur Victoriu stal senunni. Hún var stórglæsileg með svartan Phillip Treacy hatt og hárið tekið í tagl. Þá var hún klædd í kjól eftir sjálfa sig og sérsniðnum Christian Louboutin hælaskóm. Eiginmaður hennar, David var klæddur í Ralph Lauren smóking. Sjáðu brúðarkjól prinsessunnar hér og skvísuna sem skyggði á prinsessuna þennan dag. Lífið 29.4.2011 20:50
Brúðkaupið dró Íslendinga úr símanum Notkun á farsímaneti Vodafone dróst nokkuð saman í morgun samanborið við hefðbundinn föstudag á meðan brúðkaup Vilhjálms prins og Kate Middleton, nú hertogans og hertogaynjunnar af Cambridge, stóð yfir. Mestur var samdrátturinn í upphafi vígsluathafnarinnar í Westminster Abbey, en símnotkun færðist smám saman aftur í eðlilegt horf eftir því sem leið á athöfnina. Landsmenn virðast hins vegar hafa flykkst að sjónvarpsskjánum við lok athafnarinnar þegar brúðhjónin gengu út og óku með hestvagni sem leið lág til Buckingham hallar við mikinn fögnuð gríðarlegs mannfjölda sem fylgdist með. Almennt eykst farsímanotkun jafnt og þétt eftir því sem líður á daginn. 29. apríl var hins vegar frábrugðinn öðrum dögum eins og sést á meðfylgjandi mynd þar sem áhrif hins konunglega brúðkaups eru greinileg. Innlent 29.4.2011 15:23
Konunglegur koss Meðfylgjandi má sjá fyrsta opinbera koss Vilhjálms og Katrínar á svölum Buckingham hallar í dag. Eins og heyra má brutust út gríðarleg fagnaðarlæti á meðal fjöldans þegar prinsinn kyssti prinsessuna sína. Lífið 29.4.2011 15:22
Prinsinn orðinn hertogi, barón og jarl Vilhjálmur Bretaprins hefur verið gerður að hertoganum af Cambridge en amma hans drottningin sæmdi hann titlinum í morgun. Vilhjálmur fær einnig titlana jarlinn af Strathearn og Baróninn af Carrickfergus. Erlent 29.4.2011 09:07
Beckham hjónin mættu í sínu fínasta pússi Brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton fer fram í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í borginni til þess að berja kóngafólkið augum. Meðfylgjandi má sjá myndir af David Beckham og Victoriu konu hans þegar þau mættu í brúðkaupið í morgun en mikil fagnaðarlæti brutust út á meðal fjöldans. Victoria er stórglæsileg með svartan Phillip Treacy hatt og hárið tekið í tagl, í kjól eftir hana sjálfa og sérsniðnum Christian Louboutin hælaskóm. David er ekki síðri, klæddur í Ralph Lauren frá toppi til táar. Hildur Helga Sigurðardóttir og Svavar Örn lýsa því sem fyrir augu ber í beinni útsendingu á Stöð 2 og Visir.is. Smelltu hér til þess að fylgjast með útsendingunni. Lífið 29.4.2011 08:50
Segir Kate já? - brúðkaupið í beinni á Vísi Brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton fer fram í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í borginni til þess að berja kóngafólkið augum enda ekki á hverjum degi sem verðandi krónprins Breta gengur í hnapphelduna. Útsendingin hefst klukkan sjö en sjálf athöfnin klukkan tíu. Hægt er að fylgjast með herlegheitunum í beinni útsendingu á Vísi og á Stöð 2 í opinni dagskrá. Erlent 28.4.2011 16:54
Krakkarnir í skólanum kalla mig Royal "Hann er núna aðalkarlinn í þorpinu sínu,“ segir Óðinn Páll Ríkharðsson, sautján ára nemandi í Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Þar vísar hann til afa síns, Davids Middleton, sem verður í dag viðstaddur brúðkaup frænku sinnar, Kate Middleton, og Vilhjálms Bretaprins í Westminster Abbey í London. Innlent 28.4.2011 22:48
Stóra stundin nálgast Katrín Middleton kom á Goring hótelið í miðborg Lundúna nú í kvöld. Þar mun hún dvelja í nótt, en hún og Vilhjálmur Bretaprins munu ganga í hjónaband á morgun. Erlent 28.4.2011 22:09
Tekur allt að þrjú ár að greiða brúðkaupsreikninga Það tekur pör allt að þrjú ár að greiða reikninga fyrir brúðkaupið sitt, segir breska blaðið Daily Telegraph. Kostnaður við brúðkaup getur numið allt upp undir tveimur milljónum íslenskra króna. Erlent 28.4.2011 18:31
Smokkar og tepokar konunglega merktir Í meðfylgjandi myndasafni má sjá brota brot af því sem framleitt hefur verið í tilefni af konunglegu brúðkaupi Vilhjálms og Kate Middleton sem fram fer á morgun. Eins og sjá má á myndunum eru smokkar, dúkkur, brúðkaupspizzur, te, bjór og ælupokar sérmerktir brúðhjónunum fáanlegir í verslunum í tilefni morgundagsins. Lífið 28.4.2011 15:18
Grunaðir um að hafa ætlað að spilla fyrir hátíðahöldunum í London Um 20 manns hafa verið handteknir í Bretlandi í dag, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að spilla fyrir hátíðahöldunum í London á morgun þegar Vilhjálmur Bretaprins gengur að eiga Kötu Middleton. Breska lögreglan réðist inn í fimm íbúðir sem hústökumenn hafa tekið yfir og í einu þeirra voru 14 handteknir. Erlent 28.4.2011 14:09
Klæðnaður prinsessanna Carolina Herrera var einn af gestunum í brúðkaupi Karls og Díönu. Hún ræðir hér muninn á Kate Middleton og Díönu og fleira. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2. Fylgist einnig með brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í fyrramálið. Lífið 28.4.2011 12:31
Brúðarkjóll Díönu prinsessu Rætt við David Emanuel um brúðarkjól Díönu prinsessu og viðburðaríkan aðdraganda brúðkaupsins. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2. Lífið 28.4.2011 12:08
Legóbrúðkaup Vilhjálms og Kötu Gríðarstórt líkan af brúðkaupi Vilhjálms og Kötu hefur verið byggt úr Legókubbum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 180 þúsund Legókubbar fóru í smíðina og 400 Legókarlar tákna brúðkaupsgestina. Átta vikur tók að smíða líkanið sem verður til sýnis í Vísindasafninu í Manchester frá deginum í dag. Lífið 28.4.2011 10:51
Sittu heima ódámurinn þinn Boð til sendiherra Sýrlands um að vera viðstaddur brúðkaup þeirra Vilhjálms prins og Kate Middleton hefur verið dregið til baka. Boðið hefur sætt gagnrýni vegna þeirrar hörku sem stjórnvöld í Sýrlandi beita andófsmenn. Erlent 28.4.2011 10:46
Kóngafólkið setur upp hatta Fáir muna eftir skónum sem Díana prinsessa klæddist þegar hún gekk að eiga Karl og núna er veðjað á kórónuna sem Kate Middleton mun setja upp á morgun. Margir eru spenntir að sjá brúðarkjólinn sem Kate klæðist og stóra spurningin er hvaða hönnuður hannar kjólinn. Endalausar spekúlasjónir eru um hárgreiðslu brúðarinnar og að ekki sé minnst á skartið. Ekki má gleyma útvöldum gestunum sem verða 1900 talsins en hefðin er að konungbornar konur sem og aðrar sem fá að vera viðstaddar athöfnina setji upp skrautlega hatta í tilefni dagsins. Meðfylgjandi má skoða nokkra slíka. Lífið 28.4.2011 09:10
Sjáðu hvað prinsessan er alltaf smart Ný könnun sýnir að vinsældir Kate Middleton, 29 ára, verðandi eiginkonu Vilhjálms bretaprins, eru jafnmiklar og vinsældir Díönu prinsessu, móður hans heitinnar. Burtséð frá vinsældum má skoða þessa stórglæsilegu prinsessu sem er ávallt settleg og til fyrirmyndar þegar kemur að klæðnaði í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 27.4.2011 13:17
Veðjaði á hvaða kórónu Kate mun bera - gæti unnið milljónir Kona ein í Bretlandi gæti orðið þrettán milljónum króna ríkari ákveði Kate Middleton að bera sömu kórónu og Elísabet Englandsdrottning bar í sínu brúðkaupi þegar hún gengur að eiga Vilhjálm krónprins á föstudaginn kemur. Veðmálafyrirtækið Ladbrokes er nú hætt að taka við veðmálum um hvaða kórónu Kate verður með, eftir að miðaldra kona veðjaði sex þúsund pundum á að Middleton myndi bera kórónuna góðu. Kórónan er 180 ára gömul og var mikið notuð af Viktoríu drottningu og Maríu drottningu auk þess sem móðir Elísabetar bar hana af og til. Erlent 26.4.2011 20:46
Tony Blair er ekki boðið Tony Blair er ekki boðinn í brúðkaup þeirra Vilhjálms og Kate á föstudaginn. Raunar ekki heldur Gordon Brown og frú. Hinsvegar er Margrét Thatcher sem einnig er fyrrverandi forsætisráðherra boðin. Erlent 26.4.2011 16:23
Prinsessan hefur hrunið í þyngd Dyngjudömurnar Björk Eiðsdóttir og Nadia Katrín Banine spjalla um væntanlegt brúðkaup Vilhjálms prins og Kate Middleton sem gifta sig á föstudaginn kemur í meðfylgjandi myndskeiði. Þær eru sammála því að þyngdartap Kate tengist væntanlega gríðarlegu álagi sem hvílir á henni fyrir daginn stóra sem öll heimsbyggðin mun fylgjast með. Þær ætla að kryfja brúðkaupið í þættinum þeirra Dyngjan klukkan 21:05 í kvöld á Skjá einum. Lífið 26.4.2011 14:09
Áhyggjur vegna brúðkaupsmótmæla Breska lögreglan hefur áhyggjur af tveim hópum sem vilja hafa sig í frammi þegar Vilhjálmur prins og Kate Middleton gifta sig á föstudaginn. Annarsvegar eru það samtök múslima sem kalla sig Múslimar gegn krossferðum. Þau sætta sig ekki við skilyrði sem lögreglan hefur sett fyrir því að þau fái leyfi til mótmælastöðu. Erlent 26.4.2011 13:57
Lífvörður hraunaði yfir Kate Middleton á Facebook Hinn átján ára gamli Cameron Reilly, sem er í lífvarðasveit bresku konungsfjölskyldunnar, verður ekki á meðal lífvarða þeirra Vilhjálms krónprins og Kate Middleton þegar þau ganga í það heilaga eins og stóð til. Ástæðan er sú að hann fór miður fögrum orðum yfir krónprinsessuna tilvonandi á Facebook síðu sinni. Hann var ekki ánægður með stúlkuna sem honum fannst sína sér litla virðingu á dögunum: „Hún og Vilhjálmur keyrðu fram hjá mér á föstudaginn var og eina sem ég fékk var smá vink á meðan hún horfði í hina áttina. Heimska snobbaða belja, ég er greinilega ekki nógu góður fyrir hana!“ Erlent 25.4.2011 17:18
Kate jafnvinsæl og Díana Ný könnun sýnir að vinsældir Kate Middleton, verðandi brúðar Vilhjálms bretaprins, eru jafnmiklar og vinsældir Díönu prinsessu, móður hans heitinnar. Lífið 25.4.2011 13:23
Hattaveisla aldarinnar í uppsiglingu Breskar konur búa sig nú undir hattaveislu aldarinnar, þegar þau Vilhjálmur prins og Kate Middleton verða gefin saman um næstu helgi. Erlent 25.4.2011 12:06
Skrópar í brúðkaupi Krónprinsinn í Barein mun ekki mæta í brúðkaup Vilhjálms prins og Katrínar unnustu hans á föstudaginn vegna ófriðar í heimalandi hans. Salman bin Hamad Al-Khalifa sagði að það væri með mikilli sorg sem hann hefði komist að þessari niðurstöðu. Hann sagði að hann hefði vonast til þess að ástandið í Barein myndi batna svo að hann gæti mætt. Erlent 24.4.2011 20:11
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti