Stj.mál
121 122 123 124 125 126 127 128 129 … 187 ›
ESB vill undanþágur Evrópusambandið áskilur sér rétt til þess að í væntanlegum aðildarsamningum við Tyrki verði kveðið á um varanlegar undanþágur, þar á meðal varðandi frjálsa för launafólks yfir innri landamæri. Þessa kröfu segir tyrkneski lögfræðiprófessorinn Haluk Günugur vera ósanngjarna; hún standist ekki Evrópurétt eins og hann hafi verið útlagður hingað til. Erlent 13.10.2005 19:00
Blaðamannafundur vegna Símans Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 16 í dag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Fundarefnið er fyrirkomulag sölu á hlut ríkisins í Landssímanum. Innlent 13.10.2005 19:00
Símafyrirtækjum gert að hlera Síminn býr yfir búnaði til að hlera og taka upp símtöl. Samkvæmt frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum skulu öll fjarskiptafyrirtæki á Íslandi koma sér upp slíkum búnaði. Var frumvarpið rætt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn. Innlent 13.10.2005 19:00
Fleiri andvígir álveri "Þetta eru svipaðar niðurstöður og ég átti von á og mótstaða Skagfirðinga við álver kemur ekkert á óvart," segir Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri Skagafjarðar, en á fundi sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hélt á Sauðárkróki í gærkvöldi kom fram að 45 prósent Skagfirðinga eru á móti álversframkvæmdum á svæðinu. Innlent 13.10.2005 19:00
Færanleg sjúkrastöð í Palestínu Fimm þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um kaup og rekstur á færanlegri sjúkrastöð í Palestínu. Þingmennirnir ferðuðust til Palestínu og Ísrael um páskana þar sem þeir kynntu sér ástandið. Innlent 13.10.2005 19:00
Deilt á stjórnina vegna Símasölu "Ákveðið hefur verið að selja hlut ríkisins í Símanum í einu og heilu lagi einum hóp kjölfestufjárfesta," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á Alþingi í gær er hann kynnti skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á Símanum. Innlent 13.10.2005 19:00
Konurnar í Framsókn minna á sig Landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna skorar á forsætisráðherra sem er formaður flokksins að hefja markvissar aðgerðir til að ná fram launajafnrétti milli karla og kvenna. Innlent 13.10.2005 18:59
Stjórnarflokkarnir ræða leikskóla Óformlegar viðræður um gjaldfrjálsa leikskólagöngu fimm ára barna hafa farið fram milli ríkisstjórnarflokkanna. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar, segir gjaldfrjálsan leikskóla lið í fjölskyldustefnu flokksins frá síðasta flokksþingi. Innlent 13.10.2005 18:59
Er erfitt en á réttri leið Baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni hefst fyrir alvöru í dag þegar stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar opna starfsstöð að Ármúla 40 klukkan þrjú. Sem kunnugt er hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir boðið sig fram gegn Össuri. Össur viðurkennir að á brattan sé að sækja en segist jafnframt vera á réttri leið. Innlent 13.10.2005 18:59
Össur opnar starfsstöð í dag Stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar formanns Samfylkingarinnar ætla að opna starfsstöð að Ármúla 40 klukkan þrjú í dag. Össur mun af því tilefni kynna helstu baráttumál sín en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur sem kunnugt er boðið sig fram í formannsembættið gegn honum. Innlent 13.10.2005 18:59
Vill ríkisstjórn klassískra gilda Össur Skarphéðinsson segist finna mikinn stuðning í baráttunni um formannssæti í Samfylkingunni. Hann segist telja að þetta verði málefnaleg, opin og heiðarleg barátta. Hann vill að Samfylkingin leiði næstu ríkisstjórn sem verði ríkisstjórn klassískra gilda, sem leggi áherslu á fjölskylduna og hag barna og aldraðra. Innlent 13.10.2005 18:59
Meirihlutinn heldur líklega Töluverðar líkur eru á því að meirihlutasamstarf framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Grundarfjarðar hefjist að nýju en slit urðu á samstarfinu 23. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í máli Gísla Ólafssonar, varaforseta bæjarstjórnar og fulltrúa Framsóknar í bæjarstjórn. Innlent 13.10.2005 19:00
Vill snarpa og málefnalega baráttu "Ég vil hefja stutta baráttu, snarpa, málefnalega og drengilega," sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, í gær þegar kosningaskrifstofa hans, sem hann kýs að kalla starfsstöð, var opnuð að Ármúla 40. Innlent 13.10.2005 19:00
Vilja skilja á milli embættismanna Skilja ber á milli pólitískra og faglegra embættismanna í stjórnarráðinu að mati sex þingmanna Samfylkingarinnar. Lögð hefur verið fram tillaga að þingsályktun um málið en flutningsmenn telja að Ísland hafi sérstöðu hvað varðar pólitískar embættisveitingar í ráðuneytum. Innlent 13.10.2005 18:59
Skýrsla um söluferlið er tilbúin Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir nefndina hafa skilað endanlegri skýrslu um sölu Landssíma Íslands til ráðherranefndar um einkavæðingu. Í skýrslunni er mælt fyrir einni leið við sölu Símans. Innlent 13.10.2005 18:59
Össur hefur kosningabaráttuna Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, opnar í dag kosningaskrifstofu í Ármúla 40. Össur býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar líkt og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem opnaði sína kosningaskrifstofu fyrir tæpum mánuði síðan. Innlent 13.10.2005 18:59
Síminn seldur þremur fjárfestum Síminn verður seldur í einu lagi en að lágmarki til þriggja fjárfesta. Um þetta hafa formenn stjórnarflokkanna náð samkomulagi samkvæmt heimildum <em>Morgunblaðsins</em>. Segir þar að samkomulagið feli það í sér að hver hópur tilboðsgjafa verði að vera samansettur af þremur viðskiptahópum eða einstaklingum og má enginn þeirra eiga meira en 40-45 prósenta hlut. Innlent 13.10.2005 18:59
Friðrik Páll aftur fréttastjórinn Óljóst er hver næstu skref í ráðningu fréttastjóra Ríkisútvarpsins verða. Útvarpsstjóri segir að það verði rætt í útvarpsráði. Útvarpsráð segir Markús einan um þá ákvörðun. Fyrrverandi fréttastjóri sem útvarpsráð vildi síður í starfið sest aftur við stjórnvölinn. Innlent 2.4.2005 00:01
Naumur meirihluti fylgjandi álveri Naumur meirihluti Akureyringa og annarra Eyfirðinga, eða 51,6 prósent, er hlynntur því að álver rísi í grennd við Akureyri. Rúmlega 32 prósent Eyfirðinga eru því hins vegar andvíg og rúm þrettán prósent tóku ekki afstöðu. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem IMG Gallup gerði fyrir iðnaðarráðuneytið og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðhera kynnti á fjölmennum fundi um stóriðju á Akureyri í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 18:59
Kröfu um utandagskrárumræðu hafnað Forseti Alþingis hafnaði kröfu Kolbrúnar Halldórsdóttur, vinstri - grænum, um utandagskrárumræðu um ástandið á fréttastofu Útvarps skömmu áður en þingfundur hófst klukkan hálftvö. Ákveðið var á fundi með formönnum þingflokka að umræðan færi fram þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir væri komin frá útlöndum. Innlent 1.4.2005 00:01
Þorgerður lætur Markús um málið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði áður en Auðun Georg Ólafsson hætti við að taka við starfi fréttastjóra hjá Ríkisútvarpinu að hún ætlaði ekki að skipta sér ekki að starfsmannaráðningum Ríkisútvarpsins. Hún sagði það alveg á hreinu. Innlent 1.4.2005 00:01
LÍV andmælir breytingum á lögum Stjórn Landssambands íslenskra verzlunarmanna hefur lýst yfir andstöðu við frumvarp um breytingar á lögum um helgidagafrið. Segir sambandið að frumvarpið feli í sér miklar breytingar á högum þeirra sem starfa í matvöruverslunum minni en 600 fermetrum að stærð. Því verði lögverndaðir frídagar þessa starfsfólks aðeins aðfangadagur eftir klukkan sex og jóladagur. Innlent 13.10.2005 18:59
Býður HR lóð í Urriðaholti Oddfellow-reglan hefur boðið Háskólanum í Reykjavík allt að þrettán hektara lóð í Urriðaholti í Garðabæ undir nýja skólabyggingu. Innlent 13.10.2005 18:59
Telja R-lista brjóta lög Sjálfstæðismenn telja að Reykjavíkurlistinn hafi brotið sveitarstjórnarlög með því að leggja fram þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borgarinnar svo seint á árinu. Óskað hafði verið eftir fresti vegna stjórnkerfisbreytinga og breytinga á fjárhagsrömmum stofnana. Innlent 13.10.2005 18:59
Alþingi hvatt til að taka í tauma Stjórnarandstæðingar gagnrýndu harðlega ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins í dag í umræðum um störf þingsins. Talað var um að pólitísk afskipti af stofnuninni væru meiri en tíðkaðist í nokkuru öðru vestrænu ríki. Alþingi var hvatt til að taka í taumana. Innlent 1.4.2005 00:01
Áhugi minni en búist var við Mun minni áhugi er fyrir álveri við Eyjafjörð meðal Eyfirðinga en stjórnvöld höfðu reiknað með, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Innlent 13.10.2005 18:59
Deilt um ráðningu á þingi Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt harðlega ráðningu nýs fréttastjóra að Ríkisútvarpinu í umræðum um störf þingsins í dag. Talað var um að pólitísk afskipti af stofnuninni væru meiri en tíðkaðist í nokkuru öðru vestrænu ríki og Alþingi var hvatt til að taka í taumana. Beðið hafði verið um utandagskrárumræðu um málið en beiðninni hafði ekki verið svarað. Frekar verður greint frá þessu í fréttum Bylgjunnar klukkan tólf. Innlent 13.10.2005 18:59
Fréttamenn RÚV ganga á fund forseta Alþingis Fréttamenn Ríkisútvarpsins ætla að ganga á fund forseta Alþingis nú klukkan 11 og afhenda honum áskorun um að grípa inn í fréttastjóradeiluna á RÚV. Innlent 1.4.2005 00:01
Minnir á Keilisnes sem góðan kost Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem minnt er á að stóriðja á Keilisnesi hafi verið talin besti kostur fyrir næstu stóriðju á Íslandi og svo sé enn. Stjórn félagsins skorar á iðnaðar- og viðskiptaráðherra að beita sér fyrir því að næsta stóriðja á Íslandi verði á Suðurnesjum. Innlent 13.10.2005 18:59
Ófremdarástand á RÚV Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ósáttir í gærmorgun við að forsætisráðherra hafnaði því að ræða ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins á Alþingi í gær í fjarveru menntamálaráðherra. Innlent 1.4.2005 00:01