Stj.mál
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 187 ›
Bíðum ekki lengur eftir breytingum Klíkuskapur er samtrygging þröngra hópa um eigin hagsmuni án tillits til hagsmuna heildarinnar sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar þegar hún sleit landsfundi flokksins í gær. Hún kvað Samfylkinguna hafa tekið afstöðu gegn klíkum í formannskjöri flokksins.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:15
Sterk staða nýkjörins formanns "Kjörið var afgerandi. Í kjarna Samfylkingarinnar stóð þetta áreiðanlega tæpar. Umboð hennar er hins vegar mjög skýrt og það þýðir að valdastaða hennar gagnvart öðrum forystumönnum Samfylkingarinnar er sterk," segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor um kjör Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem formanns Samfylkingar. Innlent 13.10.2005 19:15
Þingkosningum flýtt í Þýskalandi Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur flýtt almennum þingkosningunum í landinu um eitt ár og boðað þær strax í haust eftir að flokkur hans, þýski Jafnaðarmannaflokkurinn, galt afhroð í kosningum í sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen í dag. Erlent 13.10.2005 19:14
Júlíus Vífill stefnir líka hátt Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Gísli er ekki einn um að daðra við forystuhlutverk í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna því Júlíus Vífiill Ingvarsson segist vera að kanna bakland sitt í flokknum. Innlent 13.10.2005 19:14
Ný forystusveit í Samfylkingunni Nánast algerlega ný forystusveit tekur nú við stjórnartaumunum í Samfylkingunni eftir úrslit kosninga á landsfundi flokksins í gær. Auk nýs formanns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og nýs varaformanns, Ágústs Ólafs Ágústssonar, var Ari Skúlason kjörinn gjaldkeri. Innlent 13.10.2005 19:14
Ný framkvæmdastjórn kjörin Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir. Innlent 13.10.2005 19:14
Úr takti við almenna flokksmenn? Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir úrslitin í kjöri í embætti innan Samfylkingarinnar í gær benda til þess að forystusveit flokksins og þingmenn hafi verið úr takti við hinn almenna flokksmann. Það hljóti að mega túlka niðurstöðurnar sem kröfu um breyttan stjórnunarstíl og vinnubrögð innan flokksins. Innlent 13.10.2005 19:14
Kanslaraembættið í hættu Samkvæmt nýjustu útgangsspám bíður þýski Jafnaðarmannaflokkurinn, undir forystu Gerhards Schröders kanslara, afhroð í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen. Ef fer sem horfir verður það gríðarlegt áfall fyrir Schröder og gæti orðið til þess að hann nái ekki endurkjöri í þingkosningunum á næsta ári. </font /> Erlent 13.10.2005 19:14
Ágúst Ólafur varaformaður Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sigraði í varaformannskjöri flokksins í gær. 839 landsfundarfulltrúar kusu. Þar af hlaut Ágúst Ólafur 519 atkvæði, um 62 prósent. Innlent 13.10.2005 19:14
Helena kjörin ritari Helena Karlsdóttir var kjörin ritari Samfylkingarinnar á landsfundinum nú síðdegis. Hún bar sigurorð af Stefáni Jón Hafstein og Valgerði Bjarnadóttur. Innlent 13.10.2005 19:14
Atkvæði hafa verið talin Atkvæði í formannskjörinu á landsfundi Samfylkingarinnar hafa verið talin. Úrslitin verða tilkynnt á hádegi og er Stöð 2 með sérstakan aukafréttatíma vegna þessa klukkan tólf þar sem sýnt verður beint frá fundinum. Innlent 13.10.2005 19:14
Úrslitin ekki aðalatriðið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nýkjörin formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni eftir að úrslitin í formannskjörinu voru kunngjörð að úrslitin væru ekki aðalatriðið því hugur flokksins stefndi annað og lengra; það væri verkefni Samfylkingarinnar í næstu þingkosningum sem skipti máli. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrír í kjöri til varaformanns Þrír munu verða í framboði til varaformanns Samfylkingar í dag. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugumferðarstjórnar, tilkynnti framboð sitt fyrir stundu. Áður höfðu Ágúst Ólafur Ágústsson og Lúðvík Bergvinsson, þingmenn flokksins, boðið sig fram. Innlent 13.10.2005 19:14
Titringur vegna varaformanns Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fagnar nýkjörnum varaformanni Samfylkingarinnar. "Ágúst Ólafur Ágústsson stimplar sig mjög sterkt inn í pólítíkina með framboði sínu til varaformannsembættisins. Hann fékk afgerandi stuðning og það skiptir máli," segir Ingibjörg. Innlent 13.10.2005 19:14
Ætlar að vera lengi í stjórnmálum Össur Skarphéðinsson sagði meðal annars í ræðu sinni eftir að úrslitin í formannskjöri Samfylkingarinnar lágu fyrir að úrslitin væru afgerandi og sterk, bæði fyrir flokkinn en þó sérstaklega fyrir Ingibjörgu Sólrúnu sem leiðtoga samfylkingarfólks. Hennar biði nú það verk að koma flokknum alla leið. Innlent 13.10.2005 19:14
Mikil endurnýjun í forystu Mikil endurnýjun varð í forystu Samfylkingarinnar á landsfundinum í gær. Gunnar Svavarsson forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar var kjörinn formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:14
Stefnir á stórsókn á miðjunni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er talin líklegust til þess að leiða Samfylkinguna til sigurs í næstu þingkosningum. Hún er sögð stefna á stórsókn á miðjunni og ætla sér að verða næsti forsætisráðherra þjóðarinnar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Ari gjaldkeri Samfylkingarinnar Ari Skúlason hefur verið kosinn gjaldkeri Samfylkingarinnar. Greint var frá því á landsfundinnum í Egilshöll fyrir stundu. Aðrir í framboði voru Kristinn Bárðason, Kristinn Karlsson og Sigríður Ríkharðsdóttir. Innlent 13.10.2005 19:14
Ágúst Ólafur kjörinn varaformaður Ágúst Ólafur Ágústsson var afgerandi kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar á þriðja tímanum. Af 839 greiddum atkvæðum hlaut Ágúst 519 atkvæði, eða 61,4%. Lúðvík Bergvinsson fékk 297 atkvæði, eða 35,4% atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Úrslitin komu ekki á óvart Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir úrslitin í formannskjöri Samfylkingarinnar ekki koma á óvart, þótt afgerandi séu. Hann hefði búist við að Ingibjörg Sólrún fengi á bilinu sextíu til áttatíu prósent atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Ingibjörg Sólrún kjörin formaður Tilkynnt var um það á landsfundi Samfylkingarinnar rétt í þessu að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði næsti formaður flokksins. Alls bárust 12.015 atkvæði í póstkosningu Samfylkingarinnar um formann flokksins og fékk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 7997 atkvæði, eða tæp 67%, en sitjandi formaður, Össur Skarphéðinsson, hlaut 3970 atkvæði, eða 33% atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Forysta er hópstarf Liðlega tólf þúsund eða um 60 prósent af um tuttugu þúsund flokksmönnum greiddu atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut 7.997 gildra atkvæða en Össur Skarphéðinsson 3.970. Ingibjörg Sólrún hlaut því tvö af hverjum þremur atkvæðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Samgönguráðherra í veikindaleyfi Sturla Böðvarsson samgönguráðherra gekkst í gær undir uppskurð vegna brjóskloss í baki á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi. Í kjölfar aðgerðarinnar verður ráðherrann í veikindaleyfi um óákveðinn tíma. Innlent 13.10.2005 19:14
Sterk úrslit fyrir Samfylkinguna Össur hlaut um þriðjung gildra atkvæða í formannskjörinu."Við höfum vissulega gefið hvort öðru olbogaskot. En það er rétt sem Ingibjörg sagði, að þráðurinn hefur aldrei slitnað millum okkar," sagði Össur jafnframt. Innlent 13.10.2005 19:14
Ætlum alla leið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut tvö af hverjum þremur atkvæðum í formannskjöri Samfylkingarinnar. Henni var ákaft fagnað á hádegi í gær þegar úrslit kosninganna voru kunngerð á landsfundi Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:14
Aldrei fleiri kosið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar. Hún hlaut tvo þriðju allra atkvæða í póstkosningu meðal tólf þúsund félaga flokksins. Aldrei hafa fleiri kosið í formannskosningum hjá íslenskum stjórnmálaflokki. Innlent 13.10.2005 19:14
Endalok stjórnarskrár ESB? Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Tuttugu og fimm háttsettir stjórnmálamenn frá allri Evrópu hafa verið fengnir til Frakklands til þess að hjálpa stjórnvöldum í landinu við að telja almenningi trú um ágæti stjórnarskrárinnar. Erlent 13.10.2005 19:14
Tveir samningar undirritaðir Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur undirritað tvo samstarfssamninga á sviði umhverfismála við kínversk yfirvöld. Samningarnir eru á sviði jarðskjálftavár og umhverfisverndar og koma í kjölfar tveggja funda sem Sigríður átti í Kína. Innlent 13.10.2005 19:14
Afmælis kosningaréttar minnst „Konur viðurkenndar löglegir borgarar þjóðfélagsins.“ Þetta var fyrirsögnin á grein Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í <em>Kvennablaðinu</em> um þær gleðifregnir sem bárust frá Kaupmannahöfn sumarið 1915 að konum hefði verið veittur kosningaréttur og kjörgengi til Alþingis. Í ár eru liðin níutíu ár frá þessum tímamótum og því er fagnað með ýmsum hætti. Innlent 13.10.2005 19:14
Landbúnaðarráðherra til Noregs Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra verður í opinberri heimsókn í boði norska landbúnaðarráðherrans, Lars Sponheims, dagana 22.-24. maí í Hörðalandi í Noregi. Í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna nýsköpun í landbúnaði en norska ríkisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið verið með sérstakt átaksverkefni til að efla atvinnu og byggð í sveitahéruðum. Innlent 13.10.2005 19:14