Rán í Michelsen 2011
1 2 ›
Hafði heyrt að ræningjanum hefði verið komið fyrir kattarnef „Vá, armur laganna er langur,“ hugsaði Frank Michelsen þegar hann las frétt á Vísi í gær um að sakborningur í einu stærsta ráni Íslandssögunnar hefði hlotið fjögurra ára fangelsisdóm þrettán árum eftir að ránið var framið. Frank hafði heyrt að umræddur sakborningur væri látinn. Innlent 5.6.2024 08:00
Dæmdur þrettán árum eftir eitt stærsta rán Íslandssögunnar Pawel Artur Tyminski hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði vegna ráns sem framið var í úra- og skartgripaversluninni Michelsen árið 2011. Þrír samverkamenn hans voru dæmdir vegna þessa sama ráns árið 2012. Innlent 4.6.2024 14:08
Michelsen-ræningi aftur á Hraunið eftir dvöl á Vernd Pólskur karlmaður um fertugt hlaut sjö ára dóm í Hæstarétti árið 2013 fyrir ránið á Laugaveginum. Innlent 30.5.2016 15:18
Í sjö ára fangelsi fyrir að ræna úrsmið Hæstiréttur dæmdi í dag pólskan karlmann, Pawel Jerzy Podburaczynski, í sjö ára fangelsi fyrir að hafa ásamt öðrum mönnum ráðist með ofbeldi og hótunum á starfsfólk úra- og skartgripaverslunarinnar Michelsen og tekið þaðan 49 armbandsúr, auk þess að hafa tekið fjóra bíla í heimildarleysi til þess að nota við ránið. Pawel var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur og því ljóst að Hæstiréttur þyngir dóminn um tvö ár. Innlent 14.3.2013 16:45
Fimm ára fangelsi fyrir að ræna Michelsen Tveir karlmenn voru dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir að ræna úraverslunina Michelsen. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem dæmdi mennina á föstudag. Þeir Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski, játuðu báðir aðild að úraráninu í Michelsen þegar málið var til meðferðar héraðsdóms í vor. Ránið var framið síðastliðið haust. Mennirnir fóru vopnaðir leikfangabyssum inn í úrabúðina og stálu úrum fyrir um 50 milljónir króna. Innlent 25.6.2012 17:27
Höfuðpaurinn er félagi í pólskum glæpasamtökum Tveir pólskir karlmenn játa aðild sína að úraráninu. Sá sem dæmdur var fyrir að skipuleggja ránið segir heilann á bak við aðgerðina vera þekktan glæpamann í Póllandi. Aðalmeðferð málsins fór fram í gær. Innlent 14.6.2012 10:15
Úraræningjar fyrir dóm í dag Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ríkissaksóknara gegn þeim Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski, sem eru grunaðir um hafa skipulagt úrarán í Michelsen á Laugavegi síðasta haust. Einn maður hefur þegar verið dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir aðild sína að ráninu. Innlent 13.6.2012 10:25
Játuðu aðild að Michelsen-ráninu en neita að hafa skipulagt það Þeir Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski, játuðu báðir aðild að úraráninu í Michelsen síðasta haust. Þá fóru mennirnir vopnaðir leikfangabyssum inn í úrabúðina og stálu úrum fyrir um 50 milljónir króna. Innlent 30.5.2012 10:40
Ákærðir fyrir að ræna Michelsen úrsmið Tveir pólskir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að rán í úra- og skartgripaverslun Michelsen að Laugavegi, þar sem þeir tóku 49 armbandsúr af gerðunum Rolex, Tudor og Michelsen að verðmæti 50 milljónir króna. Samkvæmt ákærðu var þetta allt gert eftir fyrirfram gerði áætlun mannanna og tveggja samverkamanna þeirra. Innlent 30.5.2012 09:59
Úraræninginn samþykkti framsal frá Sviss Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pólskum karlmanni sem var framseldur hingað til lands frá Sviss vegna úraránsins í Michelsen. Maðurinn hefur játað brotið. Innlent 23.3.2012 20:25
Rolex-ræningi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. mars Pólverji, sem grunaður er um rán í úraverslun Michelsen á Laugavegi í október í fyrra, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald til 21. mars. Maðurinn var handtekinn í Sviss í síðasta mánuði ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður um aðild að ráninu. Innlent 13.3.2012 18:01
Rolex-ræninginn í héraðsdómi Pólverji sem grunaður er um rán í úraverslun Michelsen á Laugavegi í október í fyrra er kominn til landsins og er dómari nú að taka afstöðu til kröfu Ríkissaksóknara um gæsluvarðhald yfir honum. Maðurinn var ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður í málinu handtekinn í Sviss í síðasta mánuði. Innlent 13.3.2012 17:08
Rolex-ræningi á leið til landsins í dag - von á hinum síðar Pólverji sem grunaður er um rán í úraverslunin Michelsen á Laugavegi í október í fyrra er væntanlegur til landsins í dag en hann var ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður í málinu handtekinn í Sviss í síðasta mánuði. Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir hjá Ríkissaksóknara segir að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum um leið og hann kemur til landsins. Síðan tekur við rannsókn á þætti mannsins í ráninu. Innlent 13.3.2012 11:10
Úraræningjar verða framseldir til Íslands Tveir Pólverjar sem flúðu land eftir úraránið í verslun Michelsen á Laugavegi í október á síðasta ári verða framseldir til Íslands en þeir voru handteknir í Sviss í lok síðasta mánaðar. Innlent 8.3.2012 19:53
Rolex-ræningjarnir fóru í sund eftir velheppnað rán Ástæðan fyrir því að Marcin Tomsz Lech tók að sér að keyra bíl í Michelsen-ráninu var einfaldlega sú að hann neytti ekki fíkniefna og sagðist vera góður ökumaður og ratvís í ókunnugum aðstæðum. Þetta kemur fram í dóminum yfir Marcin en dómari Héraðsdóms Reykjavíkur dæmdi hann í fimm ára óskilorðsbundið fangelsi í dag. Félagar hans, sem komust af landi brott áður en Marcin var handsamaður, rændu verslunina í október á síðasta ári. Innlent 8.3.2012 16:18
Rolex ræningi í fimm ára fangelsi Marcin Tomasz Lech, einn fjögurra Pólverja sem komu hingað til lands í október í fyrra til þess að ræna úraverslunina Michelsen við Laugaveg, var í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir þátt sinn í ráninu. Frá því dregst gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 27. október í fyrra. Þá er manninum gert að greiða tryggingafélaginu VÍS fjórtán milljónir króna og bíll sem hann ætlaði að nota til þess að koma þýfinu úr landi hefur verið gerður upptækur. Innlent 8.3.2012 13:43
Játar að hafa ætlað að flytja úrin úr landi Marcin Tomasz Lech, sem er einn fjögurra Pólverja sem komu hingað til lands í október í fyrra til þess að ræna úraverslunina Michelsen við Laugaveg, játaði sinn þátt í ráninu fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ríkissaksóknari krefst fimm ára fangelsis yfir honum. Innlent 21.2.2012 16:03
Ákærður fyrir aðild að úraráni - átti að koma þýfinu úr landi Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir aðild sína að ráni í úra- og skartgripaversluninni Michelsen á Laugavegi í október síðastliðnum Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi eftir að þýfið fannst í fórum hans en talið er að hann hafi átt að koma því úr landi. Innlent 23.1.2012 13:31
Úrin úr Rolex-ráninu seld í dag Michelsen úrsmiðir á Laugavegi hafa sett úrin sem rænt var úr búðinni á dögunum í almenna sölu. Salan hófst í dag og má gera góð kaup enda um nokkurn afslátt að ræða. Magnús Michelsen sölumaður segir að salan hafi gengið vel það sem af er degi. Úrin sem tekin voru eru seld á niðursettu verði en Magnús vill þó ekki nefna neina sérstaka prósentutölu í því sambandi. Það fer allt eftir því hvernig úrið er farið því nokkur þeirra rispuðust töluvert í hamaganginum. Um 40 Rolex úr var að ræða, sjö úr af Tudor gerð og tvö Michelsen úr. Innlent 18.11.2011 13:06
Búið að óska eftir aðstoð pólsku lögreglunnar vegna úraráns Lögreglan á Íslandi hefur óskað eftir því að pólsk lögregluyfirvöld færi tvo menn, sem eru grunaður um að hafa rænt verslun Michelsen á Laugaveginum í síðasta mánuði, og eru staddir í Póllandi, til skýrslutöku. Þá er þeim gert að finna þann þriðja, sem ekki er vitað um. Innlent 15.11.2011 09:53
Undanþága ver þegna Íslands fyrir framsali - fréttaskýring Hvað myndi lögfesting evrópsku handtökuskipunarinnar hafa í för með sér fyrir Ísland? Íslenskir ríkisborgarar verða ekki framseldir til annarra ríkja í Evrópu þrátt fyrir fyrirhugaða lögfestingu evrópsku handtökuskipunarinnar. Ísland fékk undanþágu í samningaviðræðum við Evrópusambandið um innleiðinguna árið 2006. Innlent 11.11.2011 06:00
Pólsku úraþjófarnir handteknir í síðustu viku - og látnir lausir Michelsen-þjófarnir voru handteknir í smábænum Kolbynica í síðustu viku, tveimur dögum eftir að þeir voru eftirlýstir af Interpol, en þeim var sleppt þar sem engin framsalssamningur er í gildi á milli Íslands og Póllands. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Innlent 7.11.2011 19:10
Úraræningjarnir eru þekktir glæpamenn Úraræningjarnir sem rændu verslun Michelsen að morgni mánudagsins 17. október eru þekktir brotamenn í sínu heimalandi, Póllandi. Þrír þeirra komust úr landi og eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol. Sá fjórði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 27. október og sætt yfirheyrslum. Hann hefur lítið viljað tjá sig, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Innlent 5.11.2011 07:00
Miðborgarstjóri vill hærri framlög til landamæraeftirlits Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, skorar á innanríkisráðuneytið að tryggja hærri fjárframlög til landamæraeftirlits "með hliðsjón af vaxandi tíðni erlendra glæpagengja,“ eins og hann orðar það í grein sinni sem hann birti í Fréttablaðinu í dag og á Vísi. Innlent 3.11.2011 10:02
Samvinna lykill að lausn úraránsins Náið samstarf tollgæslu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samræmi við samning frá árinu 2008, hefur skilað miklum árangri, nú síðast við að upplýsa ránið í úraverslun Franks Michelsen. Þetta kemur fram í frétt á vef Tollstjóra. Innlent 3.11.2011 09:15
Interpol lýsir eftir Rolex-ræningjunum Myndir af Pólverjunum þremur sem grunaðir eru um ránið hjá Michelsen úrsmiði hafa verið birtar á síðu Interpol. Lögreglan vonast til þess að þeir finnist í Evrópu. Mennirnir þrír sem frömdu ránið fóru úr landi strax að því loknu, en þeir flugu til Kaupmannahafnar innan við sólarhring eftir ránið. Innlent 31.10.2011 16:55
Stolnu Rolex-úrin líklega sett í sölu „Ég er alveg ákveðinn í að veita þau ef einhver kom með ábendingu, en ég veit það ekki fyrr en rannsókn lögreglu er lokið,“ segir Frank Michelsen úrsmiður á Laugavegi en vopnað rán var framið í verslun hans í síðustu viki. Innlent 28.10.2011 15:06
Í varðhaldi til 10. nóvember Maðurinn sem var handtekinn á miðvikudag vegna þáttöku í vopnuðu ráni í síðustu viku var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. nóvember. Innlent 28.10.2011 04:15
Í tveggja vikna gæsluvarðhald Pólskur karlmaður var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald nú skömmu fyrir hádegi en hann er grunaður um að hafa eiga þátt í ráni á úra- og skartgripaverslun Frank Michelsen á Laugavegi. Samverkamenn hans voru farnir úr landi innan við sólarhring eftir ránið en maðurinn átti að sjá um að koma þýfinu úr landi. Innlent 27.10.2011 12:03
Bíll á breskum númerum tilbúinn til smygls á úrum Allt þýfið úr vopnuðu ráni í Michelsen úrsmiðum 17. október síðastliðinn fannst í bíl á breskum númeraplötum í gær. Búið var að búa bílinn undir að smygla þýfinu úr landi, en það var vel falið víðs vegar um bílinn. 49 úrum var stolið og er virði þeirra talið á bilinu 50 til 70 milljónir króna. Innlent 27.10.2011 03:30
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent