Kjaraviðræður 2023-25
1 2 3 4 5 6 … 19 ›
Sveitarfélögin leiki sér að prósentum til að draga upp aðra mynd Formaður Kennarasambandsins segir alrangt að kennurum hafi staðið til boða launahækkun upp á tuttugu prósent, áður en verkföll hófust í gær. Tal um slíkt sé leikur að tölum sem mögulega sé ætlað að dreifa athygli fólks frá því að sveitarfélögin hafi stefnt kennurum. Innlent 4.2.2025 11:47
Hvers vegna karpa menn í þartilgerðu húsi? „Engum manni dettur í hug ótilneyddum að láta taka sig í karphúsið. Enda koma margir misjafnlega vel leiknir úr heimsókn í það ágæta hús.“ Þessi orð blaðamanns Þjóðviljans frá árinu 1980 eru jafnsönn í dag og þau voru þá en Karphúsið hefur verið foreldrum þjóðarinnar hugleikið undanfarnar vikur og mánuði. Lífið 3.2.2025 23:52
Kennarar hafi hafnað 20 prósenta launahækkun Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að 20 prósenta launahækkun hafi staðið kennurum til boða en að því hafi þeir hafnað. Yfir fimm þúsund nemendur í ríflega tuttugu grunn- og leikskólum sátu heima í dag vegna kennaraverkfalls. Innlent 3.2.2025 19:07
Kennarar töldu samning í höfn en pólitík hafi spillt fyrir Ríkissáttasemjari segir að kjaradeila kennara og ríkis og sveitarfélaga hafi strandað á að kennarar hafi viljað meiri innspýtingar í virðismat á kennarastafinu en kom fram í innanhússtillögu hans. Fulltrúi í samninganefnd kennara taldi að kjaradeilan myndi leysast í gær. Hann telur að pólitík hafi spillt fyrir. Innlent 3.2.2025 12:41
Verkföll kennara 2.0 – Leið úr ógöngum? Það fór eins og við mörg óttuðumst. Verkföll eru skollin á aftur. Ég er því miður ekki hissa. Skoðun 3.2.2025 07:38
Fundi slitið og verkföll hefjast á morgun Samningafundi kennara, ríkis og sveitarfélaga lauk um tíuleytið í kvöld án þess að samningar næðust. Verkföll hefjast í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum í fyrramálið. Innlent 2.2.2025 22:39
„Þetta kemur auðvitað bara mjög illa við fjölskyldulífið“ Foreldri leikskólabarns á Seltjarnarnesi finnst að kennarar ættu að fara í enn stærra verkfall til að auka slagkraftinn ef samningar nást ekki í dag. Engin niðurstaða liggur fyrir í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög. Innlent 2.2.2025 19:27
Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Samningafundi samtaka kennara með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga lauk á áttunda tímanum í kvöld án þess að niðurstaða fengist í kjaradeilu þeirra. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við fréttastofu að hann hafi boðað deiluaðila til nýs fundar klukkan tíu í fyrramálið. Innlent 1.2.2025 20:16
Býður grunnskólakerfið upp á öfuga hvatastýringu fyrir kennara? Það sem hefur komið mér helst á óvart í kjarabaráttu kennara og fréttaflutninga af henni er tilhneigingin til þess að tala niður vinnuframlag kennara. Og svo auðvitað benda á hluti sem standast ekki nánari skoðun. Skoðun 1.2.2025 18:30
Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Kjaraviðræður milli kennara og ríkis og sveitarfélaga eru á viðkvæmu stigi. Kennarar höfðu til klukkan 13 í dag til að taka afstöðu til innanhústillögu ríkissáttasemjara en sú afstaða liggur ekki enn fyrir. Fréttamönnum var vísað út úr Karphúsinu um tvöleytið. Innlent 1.2.2025 14:42
Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, segist vonast til þess að samninganefnd Kennarasambands Íslands fallist á innanhússtillögu sem lögð var fram í gær. KÍ hafði til klukkan eitt í dag til að taka afstöðu til hennar. Innlent 1.2.2025 13:26
Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) samþykkti í dag innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Innlent 31.1.2025 19:27
„Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Jónína Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur, bókaði á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs að mikil óánægja væri meðal leikskólastjóra með nýtt verklag við innritun í leikskóla hjá Reykjavíkurborg. Innlent 31.1.2025 14:04
Kennarar óttist vanefndir Stjórnarmaður í Kennarafélagi Reykjavíkur segir kennara hvekkta vegna vanefnda í síðustu kjarasamningum og óttist að þær haldi áfram verði innanhússtillaga ríkissáttasemjara samþykkt. Hún kallar eftir stuðningi frá aðstandendum barna í skólamálum.Héraðsdómur Reykjavíkur kveður upp dóm í dag í máli foreldra leikskólabarna gegn Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða. Innlent 31.1.2025 12:00
Erfitt að treysta þegar upplifunin er að samfélagið forgangsraði ekki börnum Þegar þessi pistill er ritaður eru örfáir tímar síðan ríkissáttasemjari setti fram innanhústillögu sína til að reyna að höggva á hnútinn í deilu kennara og Sambands íslenskar sveitafélaga. Skoðun 31.1.2025 08:31
Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“ Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi og nú ráðgjafi hjá Aton hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns VR. Hann býst við harðri baráttu en nú þegar hafa nokkrir frambjóðendur gert vart við sig. Innlent 31.1.2025 08:12
Skipbrot meðaltalsstöðugleikaleiðarinnar Fjarlægðin gerir fjöllin blá og samningamál ósanngjarnari. Það er einfaldlega niðurstaðan af heildarsamningamálum SA við verkalýðshreyfinguna og tekur SVEIT, Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, heilshugar undir með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, stjórnarmanni SA, um að óskynsamlegt sé að stilla fyrirtækjum upp við vegg í erfiðum aðstæðum. Skoðun 31.1.2025 07:30
Mjög langt í milli svo ríkissáttasemjari reyni að höggva á hnútinn Formenn samninganefnda í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga hafa þar til klukkan eitt á laugardag til að taka afstöðu til innanhússtillögu ríkissáttasemjara. Formaður samninganefndar sveitarfélaga segir að langt hafi verið á milli deiluaðila og ríkissáttasemjari sé með þessu að reyna að höggva á hnútinn. Innlent 30.1.2025 18:31
Kennarar svara umboðsmanni barna Kennarasamband Íslands furðar sig á því að umboðsmanni barna sé tíðrætt um það að verkfallsaðgerðir kennara mismuni börnum en ekki um þá staðreynd að nánast enginn leikskóli uppfylli kröfur landslaga um mönnun kennara. Þetta segja kennarar í yfirlýsingu á heimasíðu Kennarasambands Íslands nú síðdegis. Innlent 30.1.2025 18:07
Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði í dag fram innanhústillögu í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Tillagan er ígildi kjarasamnings sem tryggir innágreiðslu á virðismat á störfum kennara auk sömu launahækkana og samið hefur verið um í almennum kjarasamningum. Samþykki deiluaðilar tillöguna á laugardag verður ekkert af boðuðum verkföllum í leik- og grunnskólum á mánudag. Ástráður fór yfir tillöguna í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni síðdegis í dag. Innlent 30.1.2025 17:20
Langt á milli deiluaðila og reynt að höggva á hnútinn Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaga, segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjara, vera að reyna að „höggva á hnútinn“ í kjarabaráttu kennara. Enn sé langt á milli deiluaðila. Innlent 30.1.2025 16:55
Bein útsending: Ríkissáttasemjari fer yfir innanhússtillöguna Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði nú klukkan fjögur fram innanhússtillögu að kjarasamningi í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög til að freista þess að höggva á þann algera hnút sem viðræðurnar eru komnar í. Ástráður mætir í beina útsendingu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Pallborðinu á Vísi um klukkan fimm í dag. Innlent 30.1.2025 16:15
Um kjaradeilu sveitarfélaga og kennara Fyrir meira en 10 árum skrifaði ég meistararitgerð þar sem ég m.a. tók saman nýlegar rannsóknir á stöðu grunnskóla á Íslandi. Á þeim tíma blasti við hræðileg staða í grunnskólanum sem afar brýnt var að bregðast við, það var ekki gert. Skoðun 30.1.2025 12:01
Hvernig er hægt að semja við samninganefnd sem hefur engan skilning á starfi stéttarinnar sem hún er að semja við? Það virðist sem það sé mikil þörf á að fræða fólk, a.m.k. einstaklinga innan sambands íslenskra sveitafélaga, um hvað skólastarf snúist og er þetta tilraun til þess.Ég varð nefnilega orðlaus þegar ég las viðtal við Ingu Rún Ólafsdóttur, formann samningarnefndar sveitafélaga. Það er eins og hún viti ekkert um skólastarf. Skoðun 30.1.2025 08:31
Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði telur formann fræðslunefndar Skagafjarðar hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa og brotið traust með því að taka þátt í því að stefna Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkfall í leikskólum. Innlent 29.1.2025 22:02
„Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna“ Ríkissáttasemjari býst við að boðað verði til fundar á morgun í kjaradeilu kennara. Verkföll hefjast í ríflega tuttugu leik- og grunnskólum eftir helgi takist ekki að semja. Foreldri undrast aðgerðarleysi í deilunni síðustu vikur og óttast verkföll. Innlent 29.1.2025 19:31
Býst við því að boða til fundar í kjaradeilu kennara Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari býst við því að boða til fundar í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga á morgun. Samningsaðilar hafa verið að störfum og átt samskipti síðustu daga að sögn Ástráðs en enginn formlegur fundur farið fram síðan á miðvikudag í síðustu viku. Innlent 29.1.2025 17:15
Aðalmeðferð í máli foreldra gegn KÍ hefst klukkan 15 í dag Aðalmeðferð í máli foreldra gegn Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 15 í dag. Um er að ræða foreldra barna á fjórum leikskólum, sem segja börnum hafa verið mismunað með hinum afmörkuðu aðgerðum. Innlent 29.1.2025 12:49
Kennaraverkföll: Hvenær, hvar og hve lengi? Kennaraverkföll hefjast að óbreyttu laugardaginn 1. febrúar í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Fréttastofa tók saman hvar og hvenær verkföll eru fyrirhuguð og hvort um tímabundin eða ótímabundin verkföll í hverjum skóla fyrir sig er að ræða. Innlent 27.1.2025 19:28
Óvíst hvenær fundað verður aftur Enginn fundur hefur enn verið boðaður í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga en verkföll skella á að óbreyttu eftir viku. Ríkissáttasemjari segir óvíst hvenær fundað verður aftur. Innlent 27.1.2025 11:51