Rekstur hins opinbera
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 14 ›
Sameiginlegir sjóðir til þess að nýta í slíkum aðstæðum Fjármála-og efnahagsráðherra segir stöðuna í Grindavík kalla á stærri ákvarðanir. Sameiginlegir sjóðir séu til þess að nýta í slíkum aðstæðum en hún segir að um sé að ræða flókið verkefni. Staðan kalli klárlega á sérlög. Innlent 17.1.2024 20:32
Að leysa Grindvíkinga út „eins og eins árs hallarekstur“ ríkisins Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokkanna sem mættu í Pallborðið í dag eru sammála um að stjórnvöld eigi að leysa þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Formaður Miðflokksins telur að stjórnvöld hefðu getað gert mikið betur við að lágmarka þá óvissu sem Grindvíkingar búa nú við. Innlent 17.1.2024 15:16
Stjórnvöld hafi dregið lappirnar Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að stjórnvöld hefðu átt að vera fyrr tilbúin með að sú sviðsmynd kæmi fram að ekki væri hægt að búa í Grindavík næstu mánuði eða jafnvel ár. Það þurfi að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir enn meira tjón hjá Grindvíkingum. Innlent 17.1.2024 14:03
Heildarfasteignamat í Grindavík um 107 milljarðar Hávær krafa er um að ríkissjóður bæti Grindvíkingum tjón sem íbúar í bænum hafa orðið fyrir vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Ýmsar tölur hafa verið nefndar um hvert verðmæti þeirra sé. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú tekið saman heildarfasteignamat bæjarins sem nemur um 107 milljörðum króna. Innlent 17.1.2024 11:51
Telur ríkið eiga að kaupa allt íbúðarhúsnæði í Grindavík Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkið eigi að kaupa Grindvíkinga út og tekur þannig undir hugmyndir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns sama flokks og íbúa í Grindavík. Þetta segir Óli Björn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 17.1.2024 09:03
Tólf sagt upp og ellefu öðrum stöðugildum breytt Breytingar á 23 stöðugildum hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar voru kynntar í dag. Í breytingunum felast 12 uppsagnir, en í 11 tilvikum verða samningar ekki endurnýjaðir eða ekki ráðið í lausar stöður. Innlent 16.1.2024 21:29
Vill að ríkið kaupi íbúa Grindavíkur út Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grindavík, segir það allt of mikla svartsýnisspá að ekki verði búið aftur í Grindavík næstu árin eða áratugi. Það sé fullur hugur í eigendum fyrirtækja að halda starfsemi áfram, sem sé forsenda þess að hægt sé að byggja bæinn upp á nú. Hins vegar sé nauðsynlegt að grípa þá íbúa sem ekki geti hugsað sér að snúa til baka. Innlent 15.1.2024 11:07
Þegar fátt er um boðleg svör Það þætti líklega stórfrétt og mikið hneyksli ef læknir á Landspítalanum fengi persónulega greitt frá lyfjafyrirtæki í hvert sinn sem hann léti spítalann kaupa ákveðið lyf. Það sama ætti við ef starfsmaður Vegagerðarinnar fengi persónulega greitt frá umboðsaðila fyrir að velja ákveðna vinnuvélategund fyrir Vegagerðina. Skoðun 12.1.2024 14:30
Nespresso ekki fyrir óbreytta starfsmenn Lyfjastofnun vill koma á framfæri athugasemd en stofnunin greiðir ekki fyrir kaffineyslu starfsmanna. Þá hefur borist athugasemd frá starfsfólki LSH og er sagt að spítalinn fjármagni sannarlega ekki lúxuskaffidrykkju klínískra starfsmanna. Innlent 12.1.2024 13:55
Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar. Innlent 12.1.2024 11:32
Enn tveimur skrefum frá sameiningu skólanna Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri segir að enn eigi eftir að klára samtalið um samruna áður en verði af honum. Tilkynnt var í dag Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafi samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Innlent 9.1.2024 16:02
Næststærsti háskóli landsins í pípunum Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi. Innlent 9.1.2024 11:42
Svanhildur drífandi dugnaðarforkur og skarpur greinandi Vísi hefur borist svar við fyrirspurnum frá utanríkisráðuneytinu sem snúa að skipan Svanhildar Hólm í stöðu sendiherra í Washington. Innlent 27.12.2023 14:18
Þrjátíu milljónir til verkefna gegn fíknisjúkdómum Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað þrjátíu milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum, einkum ópíóíðafíkn. Hæsti styrkurinn, átta milljónir króna, rennur til verkefnis Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Innlent 22.12.2023 14:19
Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina. Innlent 22.12.2023 12:39
Húsnæðisstuðningur framlengdur út veturinn Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar. Innlent 20.12.2023 14:43
Bjarni gengur fram af fólki með klíkuráðningum Bjarni Benediktsson var varla sestur í stól utanríkisráðherra þegar hann tók til við að skipa samherjum sínum á mikilvæga pósta í utanríkisþjónustunni. Ýmsir hafa þetta til marks um að Bjarni sé á útleið úr pólitík, jafnvel að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum og það sé verið að hafa það úr húsinu sem nýtilegt er. Innlent 20.12.2023 12:35
Skella í lás á Húsavík Tekin hefur verið ákvörðun um að loka starfsstöð Persónuverndar á Húsavík og hefur tveimur starfsmönnum verið sagt upp. Starfsstöðin mun loka dyrum sínum um áramót. Forstjóri segir fjárlaganefnd ekki hafa veitt styrk til verkefnisins og því hafi þurft að loka. Innlent 19.12.2023 14:06
Eigendur skrái kílómetrastöðu í janúar Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á rafmagns, vetnis-og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla. Fyrsta skráning eigenda á kílómetrastöðu á að fara fram fyrir 20. janúar næstkomandi. Innlent 18.12.2023 17:48
Kostar 3.000 krónur að vera of seinn að sækja krakkann Sveitarfélagið Árborg hefur sent út tilkynningu til foreldra leikskólabarna vegna rúmlega helmingshækkunar á leikskólagjaldi er lúta að frávikum umsamins dvalartíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur eftir áramót. Innlent 18.12.2023 14:53
Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði? Innlent 18.12.2023 07:51
Mikilvægt samkomulag ríkis og sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks Mikilvæg niðurstaða er komin í kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, en fulltrúar stjórnvalda skrifuðu undir samning þess efnis fyrir helgi. Umfangsmikil greiningarvinna hefur farið fram á tilurð kostnaðarauka sveitarfélaga á undanförnum árum sem liggur að baki þessari niðurstöðu. Skoðun 18.12.2023 07:00
„Við munum að sjálfsögðu krefjast þess að sitja í þessum hópi“ Formaður ÖBÍ segir nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða í gær fagnaðarefni. Samkomulagið eigi að tryggja fötluðum lögbundna þjónustu frá sveitarfélögum sem hingað til hafi reynst erfitt. Innlent 16.12.2023 12:27
Sex milljarða hækkun í málum fatlaðra Ríkið og sveitarfélögin skrifuðu undir samkomulag í dag um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða. Samkomulagið felur í sér flutning sex milljarða króna frá ríkinu fyrir málaflokkinn. Innlent 15.12.2023 17:35
Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar var sagt upp í morgun. Alls störfuðu 46 hjá stofnuninni. Forstjóri stofnunarinnar, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, segir þetta ekki hafa komið starfsmönnum á óvart. Meiri stuðningur við skólasamfélagið verði í nýrri stofnun. Innlent 15.12.2023 13:29
Samkeppniseftirlitið segir aðhaldskröfur ekki standast neina skoðun Samkeppniseftirlitið er harðort í viðbótarumsögn sinni um nýtt fjárlagafrumvarp og segir eftirlit með samkeppni á Íslandi í grafalvarlegri stöðu. Framlög til eftirlitsins séu lækkuð á sama tíma og umsvif í efnahagslífinu aukist. Innlent 12.12.2023 11:22
Eru ungir bændur í SÉR-flokki? Uppáhalds amma mín og ein merkilegasta og kærleiksríkasta kona sem ég hef umgengist um ævina var mikill Framsóknarmaður. Hún var fædd á Sléttu í Fljótum í Skagafirði, dóttir hreppstjórans í sveitinni og amma Óla Jó kenndi henni að lesa. Skoðun 8.12.2023 08:31
Ríki og sveitarfélög næra verðbólguna Hagsmunavarsla verkalýðshreyfingarinnar fyrir umbjóðendur sína nær til fleiri þátta en kjarasamninga og réttinda launafólks í landinu. Sem sterkasta afl breytinga og umbóta þarf verkalýðshreyfingin ekki síður að standa vörð um hagsmuni almennings gagnvart ríki og sveitarfélögum; „hinu opinbera”. Skoðun 7.12.2023 14:31
Forstjóri „í stríðshug“ sagður ætla að stýra stofnuninni einn Forstjóri HSS var borinn þungum sökum í dómssal í máli sem hann höfðaði sjálfur gegn heilbrigðisráðherra. Forstjórinn er sagður hafa slitið öllu sambandi við framkvæmdastjórnina, afboðað alla fundi og ætli sér að stjórna stofnuninni einn. Margt hafi gengið á í stjórnartíð hans en nú þegar styttist í starfslok virðist hann í stríðshug. Innlent 6.12.2023 17:22
Segir óvissu vegna rafbílasölu á nýju ári of mikla Brynjar Elefsen Óskarsson, framkvæmdastjóri B&L segist hafa áhyggjur af stöðu rafbílasölu í landinu og segir óljósar upplýsingar liggja fyrir frá stjórnvöldum um hvaða aðgerðir taki gildi um áramót. Skattspor rafbíla sé að aukast of hratt. Viðskipti innlent 6.12.2023 09:47