
Banaslys á Óshlíðarvegi 1973

Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á banaslysi í Óshlíð fyrir rúmlega fimmtíu árum síðan. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson er talinn hafa látist þegar leigubifreið sem hann var í hafnaði utan vegar á Óshlíðarvegi árið 1973. Málið var tekið upp að nýju í maí 2022, en rannsaka átti hvort að andlát hans hafi mögulega borið að með öðrum hætti.

Vildu að öðru lögregluembætti yrði falin rannsókn Óshlíðarmálsins
Ríkissaksóknari hefur gert lögreglunni á Vestfjörðum að taka ný gögn, sem komið hafa fram um dauða ungs manns í Óshlíð árið 1973, til skoðunar. Rannsókn málsins var látin niður falla í október en fjölskylda mannsins sem lést kærði ákvörðun lögreglunnar til saksóknara og vildi að öðru embættið yrði falin rannsókn málsins.

Fjölskylda Kristins ætlar að kæra ákvörðun lögreglu að fella niður rannsókn
Fjölskylda Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í bílslysi í Óshlíð árið 1973, hefur ákveðið að kæra niðurstöðu lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn.

Brutu ekki siðareglur með umfjöllun um Óshlíðarmálið
Blaðamenn DV og Stundarinnar brutu ekki siðareglur Blaðamannafélags Íslands (BÍ) með umfjöllun sinni um Óshlíðarmálið. Kærandi var ökumaður bifreiðarinnar sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 en einn lést í slysinu.

Hætta rannsókn Óshlíðarmálsins
Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að hætta rannsókn á mannsláti í Óshlíð árið 1973. Niðurstaða rannsóknar réttarlæknis var sú að ekkert benti til annars en að farþegi í bíl sem hafnaði utan vegar hafi látist af afleiðingum umferðarslyss.

Telst ekki eðlilegt í dag að beðið var í margar vikur með skýrslutökur í Óshlíðarmálinu
Réttarlæknir hefur skilað skýrslu um niðurstöður krufningar á líki manns sem fórst í bílveltu í Óshlíð árið 1973. Jarðneskar leifar hans voru grafnar upp af lögreglu í maímánuði eftir að ósk um endurupptöku barst frá fjölskyldu hans.

Engin svör fást um rannsókn Óshlíðarmálsins frá 1973
Lögreglan á Vestfjörðum segir ekki tímabært að svara einstökum spurningum eða bæta við upplýsingum umfram þær sem fram komu í lok maí um rannsókn embættisins á bílslysi sem varð á Óshlíðarvegi í september 1973.

Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls
Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum.

Grófu upp líkamsleifar til að skoða fimmtíu ára mál
Líkamsleifar sem Lögreglan á Vestfjörðum gróf upp fyrir helgi eru af manni sem mun hafa farist í bílslysi á Óshlíðarvegi árið 1973. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson fannst látinn við bíl sem átti að hafa oltið niður af veginum en verið er að rannsaka hvort Kristinn hafi mögulega dáið með öðrum hætti.