Líftækni

Fréttamynd

Væntir þess að vera fyrst á markað með hlið­stæðu við sjö milljarða dala lyf

Hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp eftir að félagið greindi frá því að FDA hefði tekið til umsagnar umsókn þess um markaðsleyfi fyrir væntanlega hliðstæðu við lyfið Entyvio. Félagið telur sig vera í sterkri stöðu til að verða fyrst á markað með slíka hliðstæðu bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, en frumlyfið selst í dag fyrir meira en sjö milljarða dala á ári.

Innherji
Fréttamynd

Sér mikil tæki­færi með hlið­stæðu við Simponi vegna tak­markaðrar sam­keppni

Alvotech gerir ráð fyrir því að vera komið með þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður á Bandaríkjamarkað í árslok og horfir þar einkum til tækifæra með hliðstæðuna við Simponi, að sögn stofnanda og aðaleigenda félagsins, þar sem samkeppnin er „mjög takmörkuð.“ Hann segir Alvotech vera á ákveðnum „vendipunkti“ og að breytingar á regluverki FDA séu til þess fallnar að styrkja samkeppnisstöðu félagsins enda talsverðar aðgangshindranir fyrir nýja leikendur að koma inn á markaðinn.

Innherji
Fréttamynd

Grein­endur „hissa“ með niður­stöðuna hjá Ocu­lis en mæla enn með kaupum

Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.

Innherji
Fréttamynd

Ís­lenskir fjár­festar verða fyrir tug­milljarða höggi við gengis­hrun Ocu­lis

Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll í kjölfarið um helming á Bandaríkjamarkaði en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni.

Innherji
Fréttamynd

Af­koma Al­vot­ech nokkuð undir væntingum og „sjóðs­staða þrengist“

Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum.

Innherji
Fréttamynd

Kláraði 25 milljarða sam­starfs­samning við systur­félagið Al­vogen í lok árs

Nýr samstarfssamningur sem Alvotech gerði við systurfélag sitt, Alvogen, rétt undir lok síðasta árs sem nær til markaðssetningar í Bandaríkjunum á þremur líftæknilyfjahliðstæðum í þróun getur skilað íslenska félaginu yfir 200 milljónum dala í leyfis- og áfangatekjur. Hluti þeirra tekna var bókfærður á fjórða ársfjórðungi en hlutabréfaverð Alvotech hefur rétt aðeins úr kútnum að undanförnu.

Innherji
Fréttamynd

Hvað segja grein­endur er­lendra banka um stöðu og horfur Al­vot­ech?

Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.

Innherji
Fréttamynd

„Þetta módel gengur bara ekki upp“

Róbert Guð­finns­son, stofnandi og stjórnar­for­maður nýsköpunar­fyrir­tækisins Genís á Siglu­firði, segir framtíð fyrir­tækisins ráðast á næstu vikum. Ís­lenskir fjár­festar séu of áhættu­fælnir og hugsi til skamms tíma sem geri fyrir­tækjum erfitt fyrir. Ís­lendingar hafi ítrekað selt væn­leg og verðmæt nýsköpunar­fyrir­tæki úr landi og nú leiti Genís á náðir er­lendra fjár­magns­eig­enda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Al­vot­ech ætlar að færa hluta fram­leiðslunnar til Banda­ríkjanna

Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum.

Innherji
Fréttamynd

Af­koma Al­vot­ech um­fram spár en sölu­tekjurnar skreppa mikið saman

Bæði tekjur og aðlagaður rekstrarhagnaður hjá Alvotech á fjórða ársfjórðungi var yfir meðalspá greinenda en afkomuspá félagsins fyrir árið 2026, sem gerir ráð fyrir nánast engum tekjum í Bandaríkjunum af lyfjum sem bíða samþykkis FDA, helst óbreytt. Sölutekjur Alvotech skruppu mikið saman á seinni árshelmingi þegar félagið þurfti að ráðast í endurbætur á framleiðsluaðstöðunni.

Innherjamolar
Fréttamynd

Líf­eyris­sjóðir biðu af sér dýfuna þegar gengi Al­vot­ech féll um sex­tíu pró­sent

Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent.

Innherji
Fréttamynd

Hækka enn verðmöt sín og segja yfir­standandi ár vera „lykilár“ fyrir Oculis

Greinendur erlendra fjármálastofnana halda uppteknum hætti og hafa hækkað verðmöt sín á Oculis eftir uppgjör fjórða fjórðungs, sumir um meira en fimmtíu prósent. Yfirstandandandi ár er sagt vera „lykilár“ þegar kemur að niðurstöðum rannsókna á tveimur lyfjum og verði þær jákvæðar gæti það skilað sér í „verulegri“ hækkun á hlutabréfaverðinu.

Innherji
Fréttamynd

Oaktree seldi meira en helminginn af stöðu sjóðsins í Al­vot­ech í lok ársins

Vogunarsjóðurinn Oaktree Capital, sem eignaðist stóran hlut í Alvotech í aðdraganda skráningar á markað fyrir fjórum árum, var umsvifamestur á söluhliðinni með bréf félagsins á síðustu mánuðum ársins 2025 þegar hann losaði um meginþorra af eftirstandandi eignarhlutar. Eftir að hafa rétt aðeins úr kútnum á fyrstu vikum ársins hefur hlutabréfaverð Alvotech fallið um fjórðung á skömmum tíma.

Innherjamolar
Fréttamynd

Er­lendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Ocu­lis

Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.

Innherji
Fréttamynd

Fram­tíð ís­lenskrar líf­tækni

Undanfarin ár hefur líftækni orðið ein af burðarstoðum íslensks efnahagslífs. Útflutningur lyfja og líftæknitengdra vara hefur vaxið hratt og er í dag einn stærsti einstaki útflutningsflokkur landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Líf­eyris­sjóðir og einka­fjár­festar leggja Epi­Endo til níu milljónir evra

Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals hefur lokið útgáfu á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð níu milljónir evra, einkum með þátttöku einkafjárfesta og lífeyrissjóða, en fjármögnuninni er ætlað að gera félaginu kleift að halda áfram þróun á frumlyfi sínu. Það hefur möguleika á að verða fyrsta bólgueyðandi lyfið í töfluformi sem hægt er að nota meðal annars til langtímameðferðar við langvinnri lungnaþembu.

Innherji