Morð í Skúlaskeiði 2012
Morð í sömu götu fyrir þremur árum Skúlaskeið í Hafnarfirði var vettvangur morðs fyrir þremur árum. Kona er í haldi lögreglu grunuð um að hafa banað sambýlismanni sínum í sömu götu á laugardaginn. Innlent 16.2.2015 11:51
Í sextán ára fangelsi fyrir morð Hlífar Vatnar Stefánsson var dæmdur í sextán ára fangelsi í morgun fyrir morðið á Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði fyrr á árinu. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað dóminn upp. Hlífar Vatnar var jafnframt dæmdur til að greiða aðstandendum hennar samtals fjórar milljónir í miskabætur. Innlent 6.7.2012 09:58
Stakk fórnarlambið um þrjátíu sinnum Hlífar Vatnar Stefánsson, sem hefur játað að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana, segir að hún hafi verið besti vinur sinn, og að hann hafi ekki ætlað að drepa hana. Sækjandi fer fram á minnst 16 ára fangelsisdóm. Rétt er að vara viðkvæma við lýsingum á atburðum í fréttinni. Innlent 22.6.2012 19:55
Ákærður fyrir hrottalegt morð Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Hlífari Vatnari Stefánssyni, 23 ára Hafnfirðingi sem varð fyrrverandi unnustu sinni að bana í húsi að Skúlaskeiði í Hafnarfirði í byrjun febrúar. Innlent 8.5.2012 08:00
Voru um tíma trúlofuð Maður á þrítugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Hafnarfirði, var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Hann var um tíma trúlofaður konunni sem hann er talinn hafa orðið að bana. Hún lætur eftir sig tæplega tvítugan son. Innlent 7.2.2012 18:30
Farið fram á gæsluvarðhald yfir meintum morðingja Karlmaðurinn sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu í gær, er fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þar sem farið er fram á gæsluvarðhald yfir honum. Dómari hefur ekki úrskurðað manninn í gæsluvarðhald, en maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin þrátt fyrir ungan aldur. Innlent 7.2.2012 11:21
Óreglumaður í haldi grunaður um morð Ungur maður kom í annarlegu ástandi á lögreglustöð í gær og átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Í kjölfarið fannst látin kona á heimili hans og svo virðist sem henni hafi verið ráðinn bani með hníf. Maðurinn er góðkunningi lögreglu. Innlent 7.2.2012 06:15
Íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði: „Þetta er bara harmleikur" „Þetta er bara harmleikur," segir íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði en karlmaður á þrítugsaldri er nú í haldi lögreglu grunaður um að hafa myrt konu á fertugsaldri í húsi við götuna í nótt. Innlent 6.2.2012 19:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent