Neytendur
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 71 ›
Skoða að sækja bætur fyrir neytendur vegna samráðsins Neytendasamtökin skoða leiðir til að sækja bætur vegna tjóns af völdum meints samráðs Eimskipa og Samskipa. Frummat á samfélagslegu tjóni samráðsins er metið á 62 milljarða. Neytendur 22.2.2024 19:13
„Þetta eru náttúrulega svakalegar tölur“ Tjón vegna meints samráðs skipafélaganna Eimskips og Samskipa er metið á 62 milljarða króna. Formaður Félags atvinnurekenda segir frummatið unnið til þess að búa til grundvöll fyrir þá sem íhuga skaðabótamál á hendur skipafélögunum. Viðskipti innlent 22.2.2024 12:30
Samráðið hafi kostað samfélagið 62 milljarða króna Samkvæmt frummati sem unnið var fyrir Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR kostaði meint ólögmætt samráð stóru skipafélaganna Eimskips og Samskipa íslenskt samfélag tæplega 62 milljarða króna á árunum 2008 til 2013. Viðskipti innlent 22.2.2024 10:56
Heyrnartæki óheyrilega dýr á Íslandi Kristján E. Guðmundsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari, hefur gert samanburði á verði heyrnartækja á Norðurlöndum og svo á Íslandi. Munurinn er sláandi. Hvað veldur er svo rannsóknarefni út af fyrir sig. Innlent 19.2.2024 10:46
Verðbólga haldi áfram að hjaðna Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga hjaðni úr 6,7 prósent í 6,1 prósent í febrúar. Þrátt fyrir það hækki vísitala neysluverðs um 0,89 prósent en veruleg hækkun febrúar á síðasta ári, 1,4 prósent, veldur því að ársverðbólgan lækkar. Neytendur 15.2.2024 11:35
Mikill meirihluti áhrifavalda merkir auglýsingar sjaldan Einungis einn af hverjum fimm áhrifavöldum merkir reglulega auglýsingar á samfélagsmiðlum sínum sem slíkar. 26 íslenskir áhrifavaldar voru til skoðunar. Viðskipti innlent 15.2.2024 11:00
Taka höndum saman gegn ólöglegri dreifingu sjónvarpsefnis Sýn og Síminn hafa skrifað undir samstarfssamning við samtökin NCP (Nordic Content Protection) um stafræna réttindavernd. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:09
Hætt við að hætta með kartöflusalatið eftir tugi kvartana Rekstraraðilar N1 bensínstöðva hafa hætt við að hætta að bjóða viðskiptavinum upp á pylsu með kartöflusalati eftir að tugir kvartana bárust starfsmönnum. Rekstrarstjóri segir að kartöflusalatið hafi átt að víkja fyrir franskri pylsu, en nú verði bæði í boði. Neytendur 14.2.2024 19:17
Mega ekki banna skil á óinnsigluðum unaðsvörum Neytendastofa hefur gefið tveimur unaðsvöruverslunum fyrirmæli um að gera úrbætur á skilmálum sínum um rétt neytenda til að skila vöru sem keypt er í fjarsölu. Aðeins megi meina neytendum að skila vöru ef hún er innsigluð og skilmálar þess efnis skýrir. Neytendur 12.2.2024 15:56
Höfðu strax samband við birgjana þegar ostafréttirnar bárust Mjólkursamsalan hafði strax samband við birgja sína þegar fréttir bárust af því í vikunni að mygluostarnir camembert og brie væru í útrýmingarhættu. Vöruþróunarstjóri telur ostaunnendur ekki þurfa að hafa áhyggjur, ostarnir séu ekki á útleið í bráð - þó að útlit þeirra gæti breyst þegar fram líða stundir. Innlent 7.2.2024 20:00
Endurgreiða konu 8.500 krónur vegna mistaka við strípur og litun Hárgreiðslustofu hefur verið gert að endurgreiða konu 8.500 krónur vegna mistaka við litun á hári hennar. Konan fór í litun þann 31. júlí á síðasta ári og greiddi fyrir það 19 þúsund krónur. Sama dag kvartað hún undan lituninni og fór í lagfæringu daginn eftir. Viðskipti innlent 7.2.2024 07:00
Komst ekki í ferð og fær 185 þúsund krónur endurgreiddar Ferðamaður sem komst ekki í íshellaferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis vegna veðurs fær ferðina endurgreidda að fullu. Hann fór einnig fram á bætur vegna andlegs álags en kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst ekki á það. Neytendur 6.2.2024 12:26
Pössuðu ekki nógu vel upp á farangurinn og þurfa að greiða bætur Ónefnt hótel á Íslandi þarf að greiða hjónum sem greiddu þar fyrir gistingu um 170 þúsund krónur í bætur eftir að farangri hjónanna var stolið af hótelinu. Neytendur 6.2.2024 07:54
Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með appi án aukagjalda Verna hefur opnað appið sitt fyrir öll, hvort sem bíllinn er tryggður hjá Verna eður ei. Meðal nýjunga í appinu er sá möguleiki að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Í notkun á appinu felst engin skuldbinding, bara ávinningur þar sem notendur geta nýtt sér ýmis sértilboð og fríðindi. Notendur sem ná í appið fyrir 1. mars nk. geta unnið 100 þúsund króna gjafabréf frá Play. Samstarf 1.2.2024 08:55
Lækka og festa vöruverð til ársloka IKEA á Íslandi hefur ákveðið að lækka vöruverð á rúmlega sex þúsund vörum frá og með deginum í dag og festir sömuleiðis vöruverð til ársloka 2024. Er þetta meðal annars gert til að greiða fyrir því að SA og verkalýðshreyfingin landi „skynsamlegum“ kjarasamningum sem fyrst. Neytendur 1.2.2024 08:13
Kristín og Kristján Helgi til Kjör- og Krambúðanna Kristín Gunnarsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa tekið við nýjum stöðum hjá Krambúð og Kjörbúðinni á verslunar- og mannauðssviði. Kristján Helgi hefur tekið við stöðu sölustjóra Krambúða og Kjörbúða og Kristín sem rekstrarstjóri Krambúða og Kjörbúða. Viðskipti innlent 24.1.2024 10:06
Hjón segja pakkaferð hafa verið svindl og fá 60 þúsund endurgreitt Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert ferðaskrifstofu að endurgreiða hjónum 60 þúsund krónur vegna pakkaferðar sem þau fóru í síðasta sumar. Þau greiddu samtals 272 þúsund krónur fyrir ferðina, sem var auglýst sem pakkaferð á fjögurra stjörnu hóteli þar sem allt væri innifalið fyrir 130 þúsund krónur á mann. Neytendur 24.1.2024 08:55
„Mitt hlutverk að gera fyrirtækin mannréttindasinnaðri“ Róbert Spanó, lögmaður og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, segir ábyrgð fyrirtækja á einkamarkaði hafa breyst mikið síðastliðin ár. Kröfur neytenda séu meiri og háværari um til dæmis sjálfbærni. Hugtakið um sjálfbærni hafi svo einnig víkkað og taki nú einnig til mannréttinda. Viðskipti innlent 24.1.2024 07:41
Bein útsending: Ánægjuvogin afhent Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar í dag. Þetta er í tuttugasta og fimmta skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir fjórtán atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri. Viðskipti innlent 19.1.2024 07:31
HSÍ sendir Ölver viðvörun Handknattleikssamband Íslands hefur sent bréf til eigenda skemmtistaðarins Ölver þar sem þeim er stranglega bannað að birta myndir af landsliðsmönnum í handbolta í auglýsingum sínum. Gömul mynd af Sigga Sveins með Þrótti er í staðinn dregin fram. Innlent 18.1.2024 12:57
Nespresso ekki fyrir óbreytta starfsmenn Lyfjastofnun vill koma á framfæri athugasemd en stofnunin greiðir ekki fyrir kaffineyslu starfsmanna. Þá hefur borist athugasemd frá starfsfólki LSH og er sagt að spítalinn fjármagni sannarlega ekki lúxuskaffidrykkju klínískra starfsmanna. Innlent 12.1.2024 13:55
Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar. Innlent 12.1.2024 11:32
Segir söluhrun á degi einhleypra eiga sér eðlilegar skýringar Brynja Dan, forsprakki dags einhleypra á Íslandi og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir söluhrun á þessum afsláttadegi á síðasta ári eiga sér eðlilegar skýringar. Sé litið til sölu yfir dagana þrjá í kringum 11. nóvember sé ljóst að salan sé enn gríðarlega mikil. Viðskipti innlent 12.1.2024 07:47
Fær geymsluna á bílnum og þrifin endurgreidd að fullu Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur komist að því að fyrirtæki sem sér um geymslu og þrif bifreiða á meðan fólk ferðast þarf að endurgreiða manni 38.900 krónur og greiða 35 þúsund krónur í málskostnaðargjald. Neytendur 11.1.2024 08:00
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. Viðskipti innlent 10.1.2024 11:02
Tónninn gjörbreyttist þegar „eiginkonan“ hafði samband Smiður sem tók að sér að smíða fallegan skáp fyrir um hálfa milljón króna tilkynnti kaupanda að vegna heilsufarsbrests gæti hann ekki lokið við verkið eins og samið var um. Þegar kaupandi hafði samband í nafni eiginkonu sinnar og ætlaði að kaupa annað verk tók smiðurinn vel í það erindi. Neytendur 10.1.2024 10:31
Sala á Degi einhleypra hrynur Neytendur horfðu lítið sem ekkert til Dags einhleypra (e. Singles Day) þegar þeir versluðu jólagjafir þetta árið. Viðskipti innlent 9.1.2024 15:54
„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs „Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu. Neytendur 3.1.2024 14:00
Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi „Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“ Neytendur 3.1.2024 10:16
Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu. Viðskipti innlent 29.12.2023 15:56