Ástin á götunni

Cole áfram hjá Arsenal
Vinstri bakvörðurinn, Ashey Cole hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Arsenal, eftir að framtíð hans hjá félaginu hékk á bláþræði um tíma vegna ólöglegra viðræðna hans við Chelsea. Cole verður því áfram hjá Lundúnaliðinu til ársins 2008 og segist feginn að vera búinn að tryggja framtíð sína.
Hargreaves hafnar Boro
Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem leikið hefur með Bayern Munchen síðustu ár, hefur hafnað samningstilboði frá enska úrvaldsdeildarliðinu Middlesbrough og segist ætla að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarliði Bayern.

Gilardino til A.C. Milan
Markahrókurinn Alberto Gilardino er genginn til liðs við A.C. Milan frá Parma fyrir 17.2 milljónir punda. Gilardino, 23 ára, gerði 23 mörk á nýafstöðnu tímabili fyrir Parma og hélt nánast Parma í A deild eins síns liðs.
James aðvarar Wright-Phillips
Markvörðurinn David James, fyrrum félagi Shaun Wright-Phillips hjá Manchester City, segist óttast að framtíð leikmannsins hjá Chelsea ætti eftir að verða honum erfið vegna samkeppninnar um hverja stöðu.

Real vann í fyrsta leiknum
Real Madríd vann mexíkóska liðið Chivas Guadalajara, 3-1, í fyrsta æfingaleik liðsins af sex í keppnisferð um Asíu og Bandaríkin. Francesco Palencia kom Chivas yfir á 73. mínútu en Madrídarmenn jöfnuðu metin þegar Alvaro Meija skallaði inn aukaspyrnu frá David Beckham.
Benayoun til West Ham
Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun gekk í gær til liðs við West Ham United. Lundúnaliðið borgar spænska liðinu Racing Santander 2,5 milljónir punda fyrir Benayoun.

Henry næsti fyrirliði Arsenal
Thierry Henry verður næsti fyrirliði Arsenal. Arsenal vann 3. deildarliðið Barnet, 4-1, í æfingaleik í gær. Hvít-Rússinn Alexander Hleb skoraði fyrsta markið en síðan skoruðu þeir Henry, Dennis Bergkamp og Justin Hoyte áður en Barnett minkaði muninn.

Eiður Smári á bekknum gegn Benfica
Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekknum hjá Chelsea í kvöld en liðið spilar þá sinn annan leik á undirbúningstímabilinu gegn portúgalska liðinu Benfica. Chelsea og Benfica spila um Samsung-bikarinn og það verður vítaspyrnukeppni sem ræður úrslitum standi leikar jafnir eftir venjulegan leiktíma.

Gengið frá kaupunum á Foster
Manchester United gengur á næstu dögum frá kaupunum á markverðinum Ben Foster frá Stoke. Eins og greint hefur verið frá þá fær Stoke eina milljón punda við undirskrift en alls gæti Stoke fengið 2,5 milljónir punda nái Foster að spila úrvalsdeildarleik, meistaradeildarleik og landsleik sem leikmaður United.
Shearer skoraði í sigri Newcastle
Newcastle sigraði slóvaska liðið ZTS Dubnica 3-1 á útivelli í fyrri leik liðanna í Intertoto keppninni í knattspyrnu, Mörk Newcastle gerðu Michael Chopra, James Milner og gamla kempan Alan Shearer. Seinni leikur liðanna fer fram á St.James´Park í Newcastle á laugardaginn kemur.

Samið um verð á Wright-Phillips
Manchester City og Chelsea hafa komist að samkomulagi um verð á Shaun Wright-Phillips, framherja City. Sky-fréttastofan greindi frá þessu fyrir stundu. Upphæðin hefur þó ekki verið gefin upp.

Mbesuma vill spila fyrir United
Zambíu maðurinn Collins Mbesuma sem skrifaði undir samning hjá enska úrvaldseildarliðinu Portsmouth er kanski ekki sá vinsælasti á meðal stuðningsmanna félagsins. Á blaðamannafundi í gær þar sem Mbesuma var kynntur fyrir stuðningsmönnuum, áformaði hann framtíðar áætlanir sínar.
Wright-Phillips til Chelsea
Það er nánast frágegnið að sóknar-miðjumaður Manchester City, Shaun Wright-Phillips gangi til liðs við Englandsmeistara Chelsea. Félögin hafa samið um kaupverð sem talið er nema 21 milljón punda og nú á leikmaðurinn eingöngu eftir að semja um kaup og kjör. Wright-Phillips er 23 ára gamall og hefur leikið allan sinn atvinnumannaferil með Man.City.

Úrslitin í leik Benfica -Chelsea
Leikur Benfica og Chelsea sem nú er sýndur á sjónvarpstöðinni Sýn er lokið. Veldu meira til að sjá úrslit leiksins.

FH hefur ekki slegið út ÍA í 25 ár
FH hefur ekki náð að slá út ÍA í bikarkeppninni í 25 ár eða síðan að liðið vann 3-1 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar 1980. Skagamenn hafa unnið þrjár síðsutu bikarviðureignir liðanna og í tvö síðustu skiptin hafa þeir unnið bikarmeistaratitilinn eftir að hafa slegið út FH. Liðin mætast í Kaplakrika klukkan 16.00 í dag.
Framlengt í Kaplakrika
Leikur FH og ÍA í Kaplakrika fer í framlengingu eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 1-1. Leikurinn hefur verið hin besta skemmtun og nú er ljóst að úrslit leiksins ráðast ekki fyrr en í framlengingu.
Skagamenn í stórsókn
Skagamenn hafa gert harða hríð að marki FH í upphafi síðari hálfleiks og áttu nú fyrir stundu þrjú bylmingsskot að marki heimamanna, en náðu ekki að koma knettinum yfir marklínuna. Staðan er því óbreytt í Kaplakrika, gestirnir hafa yfir 1-0.

Heimir ekki með FH-ingum
Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, er ekki í leikmannahópi liðsins sem mætir Skagamönnum í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla. Baldur Bett tekur stöðu fyrirliðans á miðjunni en markvörðurinn Daði Lárusson ber fyrirliðabandið í leiknum.

Skagamenn yfir í hálfleik
Skagamenn eru 0-1 yfir í hálfleik gegn FH í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli. Markið skoraði hinn 19 ára gamli Andri Júlíusson strax á 3. mínútu leiksins með skalla af markteig eftir sendingu frá Igor Pesic. Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA, hefur varið oft mjög vel í markinu þar á meðal vítaspyrnu frá Tryggva Guðmundssyni á lokamínútu fyrri hálfleiks.

FH-ingar í undanúrslit bikarsins
FH-ingar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum VISA-bikars karla í dag með 5-1 sigri á ÍA í framlengdum leik liðanna í Kaplakrika. Skagamenn skoruðu strax á 3 mínútu en FH-ingar tryggðu sér framlengingu 17 mínútum fyrir leikslok og unnu hana síðan örugglega 4-0. Allir varamenn Íslandsmeistaranna skoruðu í leiknum.

Niðurlægðir í framlengingu
FHingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu með 5-1 sigri á ÍA á heimavelli sínum í Kaplakrika í gær. FH-ingar voru heppnir að koma leiknum í framlengingu en eftir að í hana var komnið var aldrei spurning um hvernig leikar myndu fara.
Allan að gulltryggja sigurinn
Allan Borgvardt er nánast búinn að gulltryggja sigur FH og sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla eftir að hann kom FH í 3-1 á 108. mínútu með skalla úr markteig eftir frábæran undirbúning Guðmundar Sævarssonar.
Tvöföld skipting hjá FH og ÍA
FHingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Inná eru komnir Jónas Grani Garðarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson og greinlegt að Ólafur Jóhannesson þjálfari ætlar sér að blása til sóknar til að freista þess að jafna leikinn, en það hafa verið Skagamenn sem hafa átt hvert dauðafærið á fætur öðru á síðustu mínútum.
Kominn hálfleikur í framlenginu
FH-ingar hafa ágæt tök á leiknum gegn Skagamönnum eftir að Jón Þorgrímur Stefánsson kom þeim í 2-1 eftir aðeins 5 mínútna leik í framlenginunni. Það stefnir því í það að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn á heimavelli sínum í dag og séu komnir inn í undanúrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu en gestirnir ofan af Skaga hafa 15 mínútur til að breyta því.

Jon Dahl Tomasson til Stuttgart
Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni.
Atli Viðar kemur FH í 5-1
Atli Viðar Björnsson er búinn að skora fjórða mark FH í framlengingunni og koma FH í 5-1 á 114. mínútu. Markið skoraði Atli Viðar eftir skyndisókn og sendingu Jónasar Grana Garðarssonar en þrír varamenn FH-liðsins eru búnir að skora í leiknum. Það er grátlegt að sjá Skagaliðið hrynja saman eftir frábæra frammistöðu í 90 mínútur.

Andri Júlíusson kemur ÍA yfir
Andri Júlíusson er búinn að skora fyrir Skagamann eftir aðeins þrjár mínútur með skalla af markteig eftir skallasendingu Igors Pesic. Þetta var fyrsta marktilraun leiksins.
Skagamenn með stangarskot
Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti rétt í þessu skot sem hafnaði í stönginni á marki FH-inga, en hann hefur verið mjög sprækur á vinstri vængnum í liði ÍA í dag. Staðan eftir rúmlega hálftíma leik er því enn 1-0, Skagamönnum í vil.

Landsliðið upp um sjö sæti
Íslenska landsliðið í knattspyrnu er hástökkvari mánaðarins á nýjum styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Ísland er komið í 90.sæti eftir að hafa verið í 97. sæti en það var versta staða liðsins frá því styrkleikalisti alþjóða knattspyrnusambandsins var tekinn upp, í ágúst 1993.
Jónas Grani skorar fjórða mark FH
Jónas Grani Garðarsson er búinn að skora þriðja mark FH í framlengingunni og koma liðinu í 4-1 með skalla á 110. mínútu leiksins. Jónas Grani kom inn á sem varamaður og var réttur maður á réttum stað á fjærstöng eftir hornspyrnu Davíðs Þórs Viðarssonar.