Ástin á götunni
323 324 325 326 327 328 329 330 331 … 334 ›
Djurgarden sigraði Ölme Djurgarden, lið Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen sigraði 2. deildar lið Ölme í sænsku bikarkeppninni í gær. Djurgarden sem er efst í sænsku deildinni átti ekki í erfiðleikum með 2 deildar liðið og vann öruggan 6-0 sigur. Kári Árnason fiskaði víti og skoraði fjórða mark Djurgarden í gær og átti skínandi leik. Sölvi Geir Ottesen kom inná á 65 mínútu. Sport 13.10.2005 19:34
Naumur sigur Blika á botnliðinu Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í 1. deild karla í knattspyrnu í dag eftir nauman sigur á botnliði Völsungs, 3-2 á Kópavogvelli. Gunnar Örn Jónsson, Kári Ársælsson og Hjalti Kristjánsson skoruðu mörk Blika sem leiddu 3-0 í hálfleik. Á Siglufjarðarvelli gerðu KS og Víkingur Ólafsvík jafntefli, 1-1. Sport 13.10.2005 19:34
Inter aflýsir vegna hryðjuverka Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan aflýsti í dag fyrirhugaðri æfingaferð sinni til Englands af öryggisástæðum í ljósi hryðjuverkanna í London. Liðið átti að leika við Portsmouth, Leicester, Norwich og Crystal Palace á Englandi á komandi vikum. Ákvörðun félagsins hefur valdið miklum vonbrigðum og reiði meðal félaganna fyrrnefndu. Sport 13.10.2005 19:34
Stúlknalandsliðið tapaði Íslenska landsliðið skipað stúlkum 21 árs og yngri tapaði í gær fyrir Þjóðverjum 4-1 á opna Norðurlandamótinu sem fer fram í Svíþjóð. Þýsku stúlkurnar skoruðu fyrsta markið en Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val jafnaði metin 1-1. Sport 13.10.2005 19:34
Newcastle áfram í Intertoto Newcastle er komið í 4. umferð Intertotokeppninnar í knattpspyrnu eftir 2-0 sigur á áhugamannaliðinu ZTS Dubnica frá Slóvakíu í dag og samanlagt 5-1. Newcastle mætir Deportivo La Coruña í næstu umferð á miðvikudag. Keppt er um þrjú laus sæti í Evrópukeppni félagsliða í Intertoto keppninni og koma þau lið inn í keppnina 9. ágúst. Sport 13.10.2005 19:34
Newcastle býður í Anelka Newcastle United hefur boðið í franska framherjann Nicolas Anelka og portúgalska landsliðsmanninn Luis Boa Morte. Sport 13.10.2005 19:33
FH mætir Fram í undanúrslitum Dregið var í undanúrslit í Visa-bikarkeppni karla í hádeginu í dag en báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvellinum. Þar munu mæta annars vegar Valur og Fylkir og hins vegar FH og Fram. Sport 13.10.2005 19:33
Valur-Breiðablik í undanúrslitum Breiðablik fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn í stórslag í undanúrslitum Visa-bikarkeppni kvenna. Í hinum leiknum fær KR Fjölni í heimsókn. Sport 13.10.2005 19:33
Stoke kaupir Hoefkens Enska knattspyrnufélagið Stoke City keypti í morgun belgíska miðvörðinn, Carl Hoefkens frá Germinal Berschot og borgaði fyrir hann 350 þúsund pund eða um 40 milljónir íslenskra króna. Sport 13.10.2005 19:33
Gæti orðið einn sá besti hjá Dönum <font face="Helv">M</font>ads Thunø Laudrup, sonur knattspyrnumannsins Michael Laudrup sem nú þjálfar Brøndby, er staddur hér á landi að spila með FC København á Rey Cup- mótinu í knattspyrnu. Mads er einn af efnilegustu leikmönnum Danmerkur og er einn þriggja leikmanna FC København sem leika með U-17 ára landsliði Danmerkur. Sport 13.10.2005 19:33
Carlton Cole ætlar að standa sig Carlton Cole, sem verið hefur í láni hjá Charlton Athletic og Aston Villa síðustu tvö tímabil í ensku knattspyrnunni, er viss um að geta staðið sig vel hjá Chelsea, en hann verður í leikmannahópi félagsins á næstu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:33
Fyrsta deild í dag föstudag Tveir leikir eru í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Í Víkinni eigast við heimamenn Víkingur og Norðanmenn í Þór. Og norðan heiða etja KA og Fjölnir kappi. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20. Sport 13.10.2005 19:33
Joey Barton sendur heim Joey Barton, leikmaður Manchester City, hefur verið sendur heim frá Tælandi vegna slagsmála, en þar var Manchester City í keppnisferð. Sport 13.10.2005 19:33
Guðjón Þórðarson réð ekki Staunton Steve Staunton, sem spilað hefur meðal annars með Liverpool, Aston Villa og Coventry á ferli sínum, vildi komast að hjá Notts County sem þjálfari og leikmaður, en Guðjón Þórðarson ákvað að ráða hann ekki til starfa. Sport 13.10.2005 19:33
Panama - Bandaríkin í úrslit Bandaríkin og Panama mætast í úrslitaleik á meistaramóti Mið og Norður Ameríkuríkja í knattspyrnu. Bandaríkin lögðu Hondúras að velli 2-1 og Panama lagði Kolombíu 3-2. Sport 13.10.2005 19:33
Benitez ekki hættur að versla Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er alls ekki hættur að kaupa leikmenn ef marka má erlenda fjölmiðla. Í morgun var brasilíski varnarmaðurinn Daniel Alves hjá Sevilla orðaður við liðið. Sport 13.10.2005 19:33
Rautt spjald í Frostaskjóli Sölvi Sturluson fékk rautt spjald á 40. mínútu leiks KR og Vals fyrir að toga niður Matthías Guðmundsson, sóknarmann Vals, er hann var kominn einn gegn markverði KR. Valsmenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað sem reyndar ekkert verður úr en KR-ingar leika einum færri það sem eftir er. Sport 13.10.2005 19:33
Robinho í læknisskoðun hjá Real Brasilíski framherjinn Robinho fór í gærmorgun í læknisskoðun hjá lækni Real Madrid, Alfonso del Corrall. Robinho vonast til þess að geta gengið til liðs við Real Madrid sem allra fyrst, en forráðamenn brasilíska félagsins Santos, sem Robinho hefur leikið með síðastliðin ár, hefur staðið í vegi fyrir för hans til spænska liðsins. Sport 13.10.2005 19:33
Framlengt í Laugardalnum Eyjamenn eru búnir að jafna gegn Fram á Laugardalsvellinum þegar tæp mínúta er komin fram yfir venjulega leiktíma. Andrew Sam gerði markið. Framlenging fer að hefjast. Sport 13.10.2005 19:33
Westerveld til Portsmouth Hollendingurinn Sander Westerveld, fyrrum markvörður Liverpool, gengur til liðs við Portsmouth á morgun samkvæmt heimildum breska ríkisútvarpsins. Westerveld er þrítugur og lék með Real Mallorca á Spáni á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:33
Essien leiður á óvissunni Mikael Essien vill ólmur komast til Chelsea frá Lyon í Frakklandi, en tveimur tilboðum ensku meistarana hefur þegar verið hafnað í leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:33
Robinho til Real Brasilíski snillingurinn Robinho er genginn til liðs við Real Madrid frá Santos í Brasilíu.Real borgar 16,6 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 21 árs gamall sóknarmaður. Fyrr í dag fór Robinho í læknisskoðun sem hann stóðst með prýði. Fyrir hjá Real hittir hann félaga sína þá Ronaldo og Roberto Carlos. Sport 13.10.2005 19:33
1-0 fyrir Val í hálfleik Flautað hefur verið til hálfleiks í leik KR og Vals þar sem staðan er 1-0, gestunum í vil. Sigurbjörn Hreiðarsson skoraði mark leiksins á 25. mínútu en á 40. mínútu fækkaði í liði heimamanna er Sölva Sturlusyni, varnarmanni KR, var vikið af velli fyrir brot. Sport 13.10.2005 19:33
Stangarskot í Laugardalnum Þegar 30 mínútur eru liðnar í leik Fram og ÍBV í 8 liða úrslitum Vísa bikarkeppni karla er staðan enn markalaus en bæði lið hafa hins vegar átt skot í stöng. Sport 13.10.2005 19:33
Táningur hjá Leicester fótbrotnaði Craig Levin, knattspyrnustjóri Leicester á Englandi, er æfur út í Bobo Balde, varnarmann Celtic, en hann átti einhverja ljótustu tæklingu síðastu ára í æfingaleik liðanna í gær sem varð til þess að táningurinn James Wesolowski fótbrotnaði mjög illa. Sport 13.10.2005 19:33
Ferdinand ekki á förum Rio Ferdinand hefur ekki fengið blíðar viðtökur frá stuðningsmönnum Manchester United í æfingaleikjum að undanförnu, en hann hefur ekki enn skrifað undir samning við félagið. Sport 13.10.2005 19:33
Sætur sigur Valsmanna á KR Bæði lið mættu til leiks vel meðvituð um mikilvægi hans. Valsmenn eiga að vísu bestu möguleika annarra liða en FH í Landsbankadeildinni en annars er Visa-bikarinn eini raunhæfi möguleikinn á titli fyrir önnur lið. Sport 13.10.2005 19:33
Fram lagði ÍBV í framlengingu Framarar unnu góðan sigur á Eyjamönnum í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, en æsispennandi engu að síður og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu. Sport 13.10.2005 19:33
Framarar yfir í hálfleik Framarar eru yfir í hálfleik gegn ÍBV 1-0. Andri Fannar Ottóson gerði markið á 36. mínútu. Sport 13.10.2005 19:33
Fyrsti sigur lúxemborgsks liðs F91 Dudelange varð í gær fyrsta knattspyrnuliðið frá Lúxemborg til þess að vinna leik í Evrópukeppni meistaraliða í 42 ár. Dudelange sigraði Bosníumeistarana í Mostar, 4-0, eftir að Mostar hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli l-0. Sport 13.10.2005 19:33