Ástin á götunni

Fréttamynd

Mourinho er ósáttur

Franski landsliðsmaðurinn Claude Makelele hjá Chelsea segir að Jose Mourinho sé ósáttur við leik liðsins í úrvalsdeildinni til þessa og segir liðið eiga langt í land með að ná því formi sem það var í undir lok síðustu leiktíðar.

Sport
Fréttamynd

Cole treystir á Rooney

Ashley Cole hefur mikla trú á að enska landsliðið geti gert góða hluti á HM í Þýskalandi næsta sumar og telur Wayne Rooney vera lykilmann liðsins í þeim efnum.

Sport
Fréttamynd

King að ná heilsu

Enski landsliðsmaðurinn Ledley King er óðum að ná sér af nárameiðslum sínum og stefnir á að vera með liði sínu Tottenham þegar það tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn,

Sport
Fréttamynd

Jónas æfur vegna slakrar dómgæslu

Jónas Sigursteinsson, þjálfari Þór/KA/KS í knattspyrnu kvenna, var afar ósáttur með Marínó Þorsteinsson, dómara í úrslitaleiknum við Fylki í 1.deild kvenna, en honum lauk með 3-2 sigri Fylkis og vann Árbæjarliðið sér með því sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.

Sport
Fréttamynd

Hagnaður hjá Arsenal

Hagnaður á rekstri Arsenal á síðasta ári jókst um tæpar níu milljónir punda, en þetta kemur fram í ársskýrslu félagsins sem lögð var fram í morgun. Hagnaður félagsins jókst úr 10,6 milljónum punda í 19,3 milljónir á tímabilinu sem lauk í maí í vor.

Sport
Fréttamynd

Þorlákur Árnason í Stjörnuna

Þorlákur Árnason, sem sagði af sér sem þjálfari Fylkis á dögunum, hefur verið ráðinn til að taka við yngriflokkastarfi Stjörnunnar í Garðabæ og mun verða skólastjóri knattspyrnuskóla félagsins.

Sport
Fréttamynd

Campbell nálgast fyrra form

Varnarmaðurinn Sol Campell hjá Arsenal er nú í óðaönn að ná fyrra formi eftir erfið meiðsli og í kvöld spilar hann annan leikinn í röð með varaliði félagsins. Talið er að Arsene Wenger muni freistast til að velja hann í aðalliðið í framhaldinu, ef vel tekst til.

Sport
Fréttamynd

Kerr og Keane rifust ekki

Brian Kerr, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu, hefur þvertekið fyrir að hafa lent í rifrildi við Roy Keane eða nokkurn annan af leikmönnum írska liðsins, en í gær spurðist út að ólga væri innan írska hópsins.

Sport
Fréttamynd

Owen aftur í hópinn

Sven-Göran Eriksson segir líklegt að Michael Owen muni taka sæti sitt í byrjunarliði enska landsliðsins þegar hann snýr aftur í hópinn gegn Norður-Írum, en hann var sem kunnugt er í leikbanni gegn Wales um helgina.

Sport
Fréttamynd

Línur að skýrast fyrir HM2006

Ný styttist í HM í fótbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári og eru línur aðeins farnar að skýrast með hvaða þjóðir munu mætast á stærsta sviði knattspyrnunnar í heiminum. Gestgjfarnir eru sjálfkrafa með í keppninni og eru 13 aðrar þjóðir úr Evrópu sem komast í lokakeppnina þar sem alls 32 landslið komast að.

Sport
Fréttamynd

Guðjón fagnar 8 daga hvíld

Guðjón Þórðarson þjálfari Notts County segir í viðtali við BBC í dag að hann fagni mjög svo hvíldinni sem leikmenn hans fái í kringum landsleikjakrinuna. Notts County fær 8 daga hvíld eftir talsverða keyrslu í fyrstu umferðunum í ensku 2.deildinni þar sem liðið er efst.

Sport
Fréttamynd

Margt jákvætt í okkar leik

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, var vitanlega svekktur yfir úrslitum leiks Íslands og Króatíu á Laugardalsvellinum í gær, þar sem gestirnir höfðu sigur, 3-1, eftir að Eiður Smári hafði skorað fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Ísland-Króatía BEINT

Boltavakt Vísis er stödd á Laugardalsvelli þar sem Ísland mætir Króatíu í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Lesendur Vísis geta fylgst með beinni lýsingu frá leiknum á <a href="/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000204&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank">BOLTAVAKTINNI.</a>

Sport
Fréttamynd

Líklegt byrjunarlið Íslands

Byrjunarlið Íslands gegn Króatíu verður tilkynnt kl. 16:00 en leikurinn hefst kl. 18:05. Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði Íslands segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að hann sætti sig ekki við jafntefli gegn Króötum í dag og setji markið hátt. Vísir.is hefur teiknað upp líklegt byrjunarlið Íslands.

Sport
Fréttamynd

Tap fyrir Hollendingum

Ungmennalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði fyrir Hollendingum 1-0 í vináttulandsleik í Hollandi í gær.

Sport
Fréttamynd

Tap gegn Króötum

Íslendingar töpuðu fyrir Krótötum, 1-3, á Laugardalsvellinum í leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslendingar höfðu verðskuldaða 1-0 forystu í hálfleik en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og skoruðu þrjú mörk.

Sport
Fréttamynd

Undanúrslit hafin í 3. deild karla

Fyrri viðureignir liðanna í undanúrslitum á Íslandsmótinu í 3. deild karla í fótbolta fóru fram í dag. Sindri Hornafirði og Leiknir Fáskrúðsfirði gerðu markalaust jafntefli á Sindravöllum og Grótta vann Reyni í 9 marka leik á Sandgerðisvelli, 4-5.

Sport
Fréttamynd

Ashley Cole í sögubækurnar?

Ashley Cole, varnarmaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta ætlar að láta reyna á réttmæti knattspyrnulaganna og áfrýja til gerðardóms, dómi sem yfir hann var felldur á dögunum. Cole var fundinn sekur af aganefnd enska knattspyrnusambandsins um að eiga í ólöglegum viðræðum við Chelsea á meðan hann er samningsbundinn Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Brynjar B. aftur í byrjunarliðið

Landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 18:05 í dag í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Nokkrar breytingar eru á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var gegn S.Afríku.

Sport
Fréttamynd

Naumur sigur Englendinga á Wales

Joe Cole leikmaður Chelsea tryggði Englendingum sigur á Wales, 0-1 í undankeppni HM 2006 í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom á 54. mínútu en leikurinn fór fram í Cardiff. Með sigrinum komst England á topp riðilsins með 19 stig, einu stigi ofar en Pólverjar sem eru í 2. sæti þegar bæði liðin eiga þrjá leiki eftir.

Sport
Fréttamynd

Leiknir og Stjarnan í 1. deild

Leiknir og Stjarnan tryggðu sér í gær sæti í 1. deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Leiknir vann Njarðvík 3-2 og trónir á toppnum í 2. deild með 37 stig og hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Stjarnan tryggði einnig sæti sitt í 1. deild með 5-0 sigri á Leiftri/ Dalvík. Stjarnan í öðru sæti deildarinnar með 33 stig.

Sport
Fréttamynd

5000 miðar farnir á Króatíuleikinn

Forsölu aðgöngumiða á viðureign Íslands og Króatíu í undankeppni HM 2006 í fótbolta lauk í gærkvöldi og höfðu þá alls selst um 5.000 miðar á leikinn. Aðeins 7000 miðar eru í boði. Leikur Íslands og Króatíu á Laugardalsvelli í dag hefst kl. 18:05 og er miðasala nú opin við Laugardalsvöll. Byrjunarlið Íslands verður kynnt innan skamms

Sport
Fréttamynd

UEFA vill semja frið við Mourinho

Knattspyrnusamband Evrópu hefur lofað að Jose Mourinho og Chelsea fái að hefja nýtt tímabil í Evrópukeppninni með hreinan skjöld en grunnt var á því góða milli þessara aðila í fyrra. Mourinho var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gagnrýna sænska dómarann Anders Frisk og Frank Rijkaard, knattspyrnustjóra Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Giggs ætlar að taka Beckham í gegn

Fyrrum liðsfélagar hjá Manchester United og vinir til margra ára, David Beckham og Ryan Giggs, verða fyrirliðar sinna landsliða er England mætir Wales á þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Ryan Giggs segir að fyrir tíu árum hefði hvorugum þeirra órað fyrir að sá dagur ætti eftir að koma að þeir mætast á velli sem landsliðsfyrirliðar.

Sport
Fréttamynd

Solskjær meiddist aftur

Norski knattspyrnumaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því í morgun var tilkynnt að hann hefði meiðst á hné. Þetta er talið geta orðið til þess að markaskorarinn mikli neyðist til að ákveða að leggja skóna endanlega á hilluna.

Sport
Fréttamynd

Eiður sætti sig ekki við jafntefli

Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði eru sammála um að króatíska liðið sem mætir því íslenska í dag í undankeppni HM sé það sterkasta sem hefur mætt á Laugardalsvöllinn í langan tíma.

Sport
Fréttamynd

Eitt fótboltalið Breta á ÓL 2012

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur farið fram á það að Bretar sendi eitt fótboltalið til keppni á Ólympíuleikunum árið 2012, sem fara fram í Lundúnum. Eins og kunnugt er hafa knattspyrnusamböndin fjögur innan Bretlands fengið að senda hvert sitt lið til þátttöku á stórmótum í knattspyrnu en svo verður ekki á Ólympíuleikunum.

Sport
Fréttamynd

Luke Young í byrjunarliðinu?

Svo gæti farið að Luke Young, leikmaður Charlton, verði í byrjunarliði Englands í stöðu hægri bakvarðar. Gary Neville, leikmaður Manchester United, er meiddur en hann er venjulega í þeirri stöðu. Búist hafði verið við að bróðir hans Phil myndi jafnvel leysa hann af en ef marka má æfingu enska landsliðsins í gær er Young líklegri í byrjunarliðið.

Sport
Fréttamynd

Stuart Downing frá í þrjá mánuði

Stuart Downing, leikmaður Middlesbrough, verður frá næstu þrjá mánuðina þar sem hann fór nýlega í uppskurð á hné. Downing er 21 árs miðvallarleikmaður sem hafði gert sér vonir um að vinna sér inn sæti í enska landsliðinu fyrir næstu heimsmeistarakeppni.

Sport
Fréttamynd

Blatter myndi fagna boði Englands

Joseph S. Blatter, formaður alþjóðaknattspyrnusambandins, FIFA, segir að hann myndi fagna boði Englands til að halda heimsmeistarakeppnina árið 2018. "Þetta er vagga fótboltans. Ég myndi segja já og þeir ættu að leggja fram boð," sagði Blatter. London var um daginn valin til að vera vettvangur Ólympíuleikanna árið 2012 eins og kunnugt er.

Sport