Ástin á götunni
298 299 300 301 302 303 304 305 306 … 334 ›
Maldini skoraði tvö fyrir AC Milan Sjálfur varnarmaðurinn og fyrirliðinn Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Reggina. Með sigrinum lyfti liðið sér í 2. sæti Serie A í fótbolta á Ítalíu og er með 13 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik inni gegn Inter Milan í kvöld. Sport 23.10.2005 15:01
Real Madrid í 3. sætið Real Madrid færðist upp í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með stórsigri á Mallorca, 4-0. Mörk Real voru albrasilísk í kvöld, Brasilíumaðurinn Roberto Carlos skoraði tvö af mörkum Real og landar hans Ronaldo og nýliðinn Julio Baptista eitt hvor. David Beckham átti stórleik og lagði þrjú af mörkunum. Sport 23.10.2005 15:01
Cisse yfirheyrður Djibril Cisse, leikmaður Liverpool hefur verið kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í London en hann er sakaður um að hafa lagt hendur á 15 ára gamlan unglingspilt. Meint atvik á að hafa átt sér stað á föstudagskvöld þegar Cisse var í auglýsingatökum en þar var settur á svið ímyndaður landsleikur milli Englendinga og Frakka. Sport 23.10.2005 15:01
Chelsea að afgreiða Liverpool Joe Cole hefur komið Chelsea í 3-1 yfir gegn Liverpool í stórleik liðanna í ensku úrvalsdeildinni en seinni hálfleikur stendur nú yfir. Enn og aftur var það Didier Drogba sem skapaði mark fyrir gestina og lagði upp fyrir Cole á 63. mínútu. Sport 23.10.2005 15:01
Chelsea komið yfir gegn Liverpool Frank Lampard hefur komið Chelsea 1-0 yfir á 27. mínútu gegn Liverpool á Anfield í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lampard skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var á Djimi Traore en hann braut á Didier Drogba í vítateignum. Lampard fékk gult spjald fyrir fagnaðarlæti sín. Sport 23.10.2005 15:01
Eiður ekki með gegn Liverpool Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea sem mætir Liverpool nú kl. 15 í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu. Eiður hefur verið að ná sér eftir meiðsli en hann handarbrotnaði nýlega. Leikur liðanna fer fram á Anfield og eru liðin þannig skipuð; Sport 23.10.2005 15:01
Naumur sigur Arsenal Arsenal vann 1-0 sigur á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu og var það Robin van Persie sem skoraði eina mark leiksins á 81. mínútu. Skot Persie hafði reyndar viðkomu í Stephen Clemence og breytti um stefnu, þaðan í Taylor markvörð og yfir línuna. Birmingham lék einum manni færri frá 24. mínútu. Sport 23.10.2005 15:01
Ruud vill leika á Spáni Umboðsmaður Ruud van Nistelrooy hjá Man Utd segir leikmanninn vilja leika á Spáni áður en ferli hans lýkur. Hann gefur til kynna að það gæti orðið svo snemma sem næsta sumar en Nistelrooy hefur áður verið orðaður við Real Madrid. Sport 23.10.2005 15:01
Veigar með tvö fyrir Stabæk í dag Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Stabæk í 4-1 heimasigri á Kongsvinger í norsku 1. deildinni í dag. Sigurinn færði Stabæk skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni að ári en liðið er nú efst með 58 stig, átta stigum ofar en Hønefoss sem er í 3. sæti deildarinnar og aðeins fjórar umferðir eru eftir. Sport 23.10.2005 15:01
Chelsea valtaði yfir Liverpool Chelsea heldur áfram óstöðvandi sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 4-1 sigri á Liverpool á Anfield í dag. Frank Lampard, Damien Duff, Joe Cole og Geremi skoruðu mörk Chelsea en Steven Gerrard mark Liverpool þegar hann jafnaði metin í 1-1. Sport 23.10.2005 15:01
Enn tapar Everton Þrumfleygur Danny Mills af 25 metra færi á 71. mínútu og mark á lokasekúndum leiksins frá Darius Vassell tryggði Manchester City 2-0 sigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta nú í hádeginu. Hvorki gengur né rekur hjá Everton sem er í neðsta sæti deildarinnar með 3 stig. Man City er hins vegar í talsvert betri málum í 6. sæti með 14 stig. Sport 23.10.2005 15:01
Gerrard jafnar fyrir Liverpool Steven Gerrard hefur jafnað metin fyrir Liverpool gegn Chelsea, 1-1, í leik liðanna á Anfield. Markið kom eftir hornspyrnu John Arne Riise á 36. mínútu og náði Jamie Carragher að skalla boltann út í teiginn þar sem fyrirliðinn Gerrard hamraði boltann í hornið fjær úr mjög þröngu færi. Sport 23.10.2005 15:01
Grétar fékk 6 mínútur með Alkmar Grétar Rafn Steinsson lék síðustu 6 mínúturnar í liði AZ Alkmar sem tyllti sér á topp hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 3-2 sigri á NEC Nijmegen. Feyenoord sem er í 2. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Alkmar tapaði í dag fyrir Utrecht 3-1. Sport 23.10.2005 15:01
Mörkunum rignir á Anfield Damien Duff hefur komið Chelsea aftur yfir gegn Liverpool þar sem staðan er orðin 1-2 og flautað hefur verið til hálfleiks. Duff skoraði eftir frábæran undirbúning Didier Drogba sem losaði sig skemmtilega við Sami Hyypia og kom boltanum á Duff. Markið kom á 42. mínútu. Sport 23.10.2005 15:01
Getur yfirstigið allar hindranir Línur eru teknar að skýrast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er greinilegt að Chelsea ætlar sér ekki að láta meistaratitilinn af hendi baráttulaust. Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki leikið mikið með liðinu það sem af er vegna veikinda og meiðsla en hann er nú farinn að láta að sér kveða á nýjan leik Sport 23.10.2005 15:01
Brynjar var hetja Reading Brynjar Björn Gunnarsson var hetja Reading og skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Sheffield Utd í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði Brynjar á 89. mínútu. Hannes Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Stoke sem tapaði fyrir Bjarna Guðjónssyni og félögum í Plymouth. Sport 23.10.2005 15:01
West Ham í 6. sæti eftir jafntefli Sunderland og West Ham skildu jöfn, 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu í dag en þetta var síðasta leikur dagsins í deildinni. Nýliðar West Ham eru nú í 6. sæti deildarinnar með 12 stig en Sunderland fikrar sig ofar eftir skelfilega byrjun í deildinni og er nú í 17. sæti með 5 stig. Sport 23.10.2005 15:01
Naumur sigur Man Utd Manchester United vann mikilvægan 2-3 útisigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heiðar Helguson lék síðustu 20 mínúturnar í liði Fulham eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Tottenham vann ævintýralegan sigur á Charlton 2-3 eftir að hafa lent 2-0 undir og Newcastle gerði markalaust jafntefli við Portsmouth á útivelli. Þá vann Blackburn 2-0 sigur á W.B.A. Sport 23.10.2005 15:01
Heiðar kemur inn á gegn Man Utd Heiðar Helguson er kominn inn á sem varamaður í lið Fulham sem er 2-3 undir á heimavelli gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heiðar kom inn á fyrir Brian Mc Bride á 71. mínútu og var dæmdur rangstæður innan við mínútu síðar og 2 mínútum eftir það straujaði hann Mikael Silvestre niður í baráttunni um boltann. Sport 23.10.2005 15:01
Notts County án sigurs í 6 leikjum Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar gerði markalaust jafntefli á útivelli við Macclesfield í ensku D-deildinni í fótbolta í dag, eða 2. deild. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 12 umferðir og hefur ekki unnið sigur í síðustu 6 leikjum. Sport 23.10.2005 15:01
Sheffield jafnar í toppslagnum Sheffield Utd hefur jafnað metin gegn Reading í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta en Brynjar kom Reading yfir strax á 2. mínútu leiksins. Ívari Ingimarsson er einnig í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn sem hófst kl. 14, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir. Sport 23.10.2005 15:01
Brynjar Björn búinn að skora Brynjar Björn Gunnarsson er búinn að koma Reading yfir gegn Sheffield United í toppslagnum í ensku 1. deildinni. Brynjar skoraði markið strax á 2. mínútu leiksins en hann er ásamt Ívari Ingimarssyni í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir. Sport 23.10.2005 15:01
Pressan er öll á Liverpool Liverpool og Chelsea mætast öðru sinni á innan við viku þegar liðin mætast á Anfield í dag en leikur liðanna í Meistaradeild Evrópu endaði með markalausu jafntefli. Úrslitin komu fáum á óvart enda hafa varnir liðanna verið afar sterkar það sem af er tímabilinu. Nú eru þrjú stig í boði í deildinni og það er ljóst að pressan er öll á Liverpool þar sem liðið er fjórtan stigum á eftir Chelsea, en reyndar á liðið tvo leiki til góða. Sport 23.10.2005 15:01
Táningarnir fá tækifæri Eyjólfur Gjafar Sverrisson, landsliðsþjálfari ungmennaliðs Íslands í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hefur ákveðið að gefa þremur unglingum tækifæri í landsleik gegn Svíum í undankeppni Evrópukeppninnar árið 2006 þann 11. október nk. Sport 23.10.2005 15:01
Mikil meiðsli hjá Birmingham Steve Bruce, stjóri Birmingham í ensku úrvalsdeildinni, á í stökustu erfiðleikum með að ná í fullskipað lið fyrir leikinn gegn Arsenal á sunnudaginn vegna meiðsla sem hrjá leikmenn liðsins. Sport 23.10.2005 15:01
Marel á leið heim Marel Jóhann Baldvinsson, knattspyrnumaður Lokeren í Belgíu, er á heimleið eftir rúm fimm ár í atvinnumennsku. Marel hefur átt við erfið meiðsli á hné að stríða undanfarin ár og sækist nú eftir starfslokasamningi hjá belgíska liðinu. Sport 23.10.2005 15:01
Skagamenn ræða við Þórð Skagamenn eiga í viðræðum við Þórð Guðjónsson um að hann gangi á ný til liðs við félagið. Þórður hefur fengið þau skilaboð frá Johan Boskamp, knattspyrnustjóra Stoke City, að hann muni ekki fá tækifæri í liðinu í vetur. Sport 23.10.2005 15:01
Stack sýknaður Markvörður Arsenal, Graham Stack, sem er í láni hjá liði Reading, var í dag sýknaður af nauðgunarákæru sem hann fékk á sig fyrir ári síðan. Hann hafði verið sakaður um að hafa nauðgað 22 ára gömlum laganema í London þann 1. september í fyrra. Sport 23.10.2005 15:01
Þórður á heimleið frá Stoke Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Þórður Guðjónsson, segir í samtali við <em>Morgunblaðið</em> í dag að hann hafi tekið þá ákvörðun að snúa heim til Íslands þegar samningur hans við enska 1. deildarliðið Stoke City rennur út næsta vor. Þórður sem orðinn er 32 ára hefur ekkert leikið með Stoke á þessri leiktíð og ekki er gert ráð fyrir því í áætlunum knattspyrnustjóra liðsins, Johans Boskamp. Sport 23.10.2005 15:01
Keane ekki forgangsatriði Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, segir að samningaviðræður við fyrirliðann Roy Keane hafi ekki forgang í augnablikinu, heldur séu menn í herbúðum liðsins fyrst og fremst að einbeita sér að leiknum við Fulham í deildinni á sunnudaginn. Sport 23.10.2005 15:01