

Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni í gær var nokkuð stíft leikinn og mikið var um hörð návígi. Frank Lampard, miðjumaður Chelsea og lykilmaður í enska landsliðinu, gaf sér þó tíma til að hrósa landa sínum leggjalanga, Peter Crouch, og telur að hann ætti að eiga fast sæti í landsliði Englendinga.
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Chelsea-liðið sé líklega hrætt við Liverpool og segir að dómarinn hafi sleppt þremur augljósum vítaspyrnum í leik liðanna í Meistaradeildinni á Anfield í gærkvöldi.
Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð.
Norska liðið Tromsö gerði sér lítið fyrir og sló tyrkneska liðið Galatasaray út í Evrópukeppni félagsliða nú í kvöld. Norska liðið vann fyrri leikinn í Tromsö 1-0, og náði svo jafntefli í Tyrklandi í kvöld 1-1.
Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfirgefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út.
Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir lið sitt Halmstad í Svíþjóð, þegar það gerði sér lítið fyrir og sló Sporting frá Lissabon út úr Evrópukeppni félagsliða í Portúgal í kvöld.
Grétar Rafn Steinsson og félagar í hollenska liðinu AZ Alkmaar unnu góðan sigur á rússneska liðinu Krylya Sovietiov í Evrópukeppni félagsliða nú áðan 3-1, eftir að hafa tapað fyrri leiknum 5-3 og eru því komnir áfram í keppninni. Grétar Rafn fékk að spila síðustu mínúturnar í leiknum eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Enska knattspyrnusambandið segir að það hafi fengið staðfestingu á því frá verktökum um að bygging hins nýja þjóðarleikvangs verði tilbúin á tilsettum tíma fyrir bikarúrslitaleikinn í ensku knattspyrnunni þann 13. maí á næsta ári.
Fjölmargir leikir fara fram í Evrópukeppni félagsliða í dag og í kvöld, en tveimur þeirra er þegar lokið. Stuttgart tryggði sig áfram í riðlakeppnina nú áðan, þrátt fyrir tapi gegn NK Domzale 1-0, en þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0. Landar þeirra í Leverkusen voru ekki jafn heppnir og féllu úr keppni fyrir CSKA Sofia, samanlagt 2-0.
Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Enn er markalaust á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Chelsea í stórleik kvöldsins.
Argentínska ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona átti stórleik fyrir lið sitt í gærkvöldi, þegar spænska liðið vann auðveldan 4-1 sigur á Udinese frá Ítalíu. Þó svo að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi skoraði þrennu í leiknum og verið í fyrirsögnum blaða á Spáni, var það frammistaða unglingsins sem var á allra vörum í gær.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, lenti í gær í alvarlegum árekstri við 17 tonna malarflutningabíl fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Bíll Loga er líklega ónýtur en betur fór en á horfðist því hann slapp með minniháttar meiðsli.
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa valið íslenska landsliðshópinn sem mætir Pólverjum og Svíum í byrjun næsta mánaðar. Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson eru ekki í hópnum vegna leikbanns, en Sölvi Geir Ottesen hjá Djurgarden er eini nýliðinn í hópnum.>
Rafael Benitez telur að Liverpool sé með betra lið nú en í fyrra og segir að það muni ráða úrslitum í annars jafnri viðureign liðsins við Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld, rétt eins og í slag liðanna í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fengið sekt frá Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir fjölda gulra spjalda sem liðið fékk í leikjunum tveimur gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni HM í byrjun mánaðarins.
Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool, er nú byrjaður að æfa með liðinu í fyrsta sinn síðan í úrslitaleiknum gegn AC Milan í Meistaradeildinni í vor, en hann hefur þurft að gangast undir tvær aðgerðir tengdar kviðsliti.
Það verður vel fylgst með leikmönnum ungmennalandsliðs Íslands í knattspyrnu þegar það mætir Svíum, en leikurinn fer fram hinn 11. október í Svíþjóð. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns nokkurra leikmanna liðsins, má búast við því að forráðamenn flestra félaganna í Svíþjóð muni fylgjast með leiknum.
Leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu í kvöld er nú lokið. Liverpool og Chelsea gerðu markalaust jafntefli á Anfield eins raunar margir reiknuðu með. Leikurinn var mjög harður, en hvorugt lið gaf nokkurt færi á sér eða tók áhættu í sóknarleiknum.
Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu er nú að hefjast og verður hann sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári er á varamannabekknum hjá Chelsea, sem vilja eflaust hefna ófaranna frá í fyrra, þegar þeir duttu út úr meistaradeildinni á Anfield.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur nú enn vakið athygli á þeirri ósk sinni að tekinn verði upp búnaður til að ákvarða hvort boltinn fer inn fyrir línuna í leikjum á Englandi og í Meistaradeildinni, eftir að lið hans féll úr Meistaradeildinni í fyrra á vafasömu marki á Anfield.
Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Svíum 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingardeildina daginn eftir Svíaleikinn.
Kongómaðurinn Lomana LuaLua hjá Portsmouth hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna veikinda, sem talið er að sé malaría, og gæti orðið frá keppni í allt að sex vikur.
Það verður mikið um dýrðir í Meistaradeild Evrópu í kvöld og áskrifendur Sýnar fá að sjá leiki Ajax og Arsenal í beinni útsendingu klukkan 18:30, og síðar í kvöld verður sýndur leikur Manchester United og Benfica, en sá leikur er raunar í beinni útsendingu á Sýn Extra.
Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn skipa sænska landsliðshópinn sem mætir Króötum og Íslendingum í undankeppni HM dagana 8. og 12. október næstkomandi.
Pólverjar mæta Íslendingum í vináttulandsleik í knattspyrnu 7. október og Englendingum í undankeppni HM fimm dögum síðar. Landsliðsþjálfari Pólverja er búinn að velja 23 leikmenn fyrir þessa leiki. Leikmennirnir spila í 11 löndum. Leikur Pólverja og Íslendinga 7. október verður sýndur beint á Sýn.
Ítalska fótboltaliðið Lecce rak í morgun knattspyrnustjórann sinn, Angelo Grugucci. Gregucci var ráðinn til félagsins í sumar þegar hann tók við af Tékkanum Zdenek Zeman. Undir stjórn Gregucci lék Lecce fimm leiki og tapaði fjórum þeirra.
Íslenska U19 ára stúlknalandsliðið burstaði Georgíu 7-0 í undankeppni HM sem fram fer í Bosníu-Hersegóvínu. Katrín Ómarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir skoruðu tvö mörk hvor og María Kristjánsdóttir, Elísa Pálsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir sitt markið hver. Ísland mætir gestgjöfunum, Bosníu-Hersegóvínu, á morgun sem töpuðu fyrir Rússum í fyrsta leik, 6-0.
Íslendingarnir í enska boltanum riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í enska boltanum í kvöld, en leikið nokkrir leikir voru á dagskrá í fyrstu deildinni og þá töpuðu Guðjón Þórðarson og félagar í Notts County nokkuð illa í kvöld.
Hlynur Birgisson, sem leikið hefur knattspyrnu með Þór á Akureyri undanfarin ár, er hættur að leika knattspyrnu eftir langan feril. Hlynur var um tíma atvinnumaður hjá Örebro í Svíþjóð og spilaði tólf landsleiki fyrir Íslands hönd, auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin.
Manchester United tryggði sér nauman sigur á Benfica á elleftu stundu í Meistaradeildinni nú áðan. Það var Ryan Giggs sem kom heimamönnum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en gestirnir jöfnuðu metin á 59. mínútu. Það var svo markahrókurinn Ruud van Nistelrooy sem tryggði liði United sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok, en sigur enska liðsins var ekki mjög sannfærandi.