Innlent Ráðherra leyfi litað bensín Forráðamenn Atlantsolíu afhentu í gær Árna Mathiesen fjármálaráðherra áskorun þess efnis að heimilt verði að selja litað bensín á bensínstöðvum. Telja þeir þetta réttlætismál, sem gæti þýtt mikla kjarabót fyrir þá sem nota bensínknúin tæki sem ekki aka á vegakerfi landsins. Innlent 7.8.2006 22:36 Hraðatakmarkandi búnaður skylda Lögbundið er að hafa hraðatakmarkandi búnað í vöruflutningabílum hérlendis sem hindrar það að þeir komist hraðar en á níutíu kílómetra hraða. Þetta segir Jón Magnús Pálsson, formaður Landssambands vörubifreiðastjóra. Innlent 7.8.2006 22:36 Á lítið erindi inn á þing „Mér finnst sjálfsagt að hann reyni ef hann vill þetta á annað borð, en mér persónulega finnst hann eiga lítið erindi inn á þing,“ segir Andrés Jónsson formaður Ungra jafnaðarmanna, en hugsanlegt framboð Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi hefur verið í umræðunni að undanförnu. Innlent 7.8.2006 22:37 Um þrjátíu bílar skemmdir Töluvert var um skemmdarverk á Akureyri í fyrrinótt. Þá voru rúður brotnar í um þrjátíu bílum í bænum aðfaranótt mánudags og rúða í íbúðarhúsi brotinn. Innlent 7.8.2006 22:36 Þriðjungur fólks fær krabbamein á ævinni Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára. Innlent 7.8.2006 22:37 Lögregla lokaði í gær búðum mótmælenda Fjórtán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúkavirkjun í fyrrinótt og tjaldbúðum mótmælenda við Snæfell hefur verið lokað. Íslandsvinir segja mikilvægt að lögregla hagi sér samkvæmt sínum vinnureglum. Innlent 7.8.2006 22:36 Yfir hundrað fíkniefnamál Um 111 fíkniefnamál komu upp á landinu um helgina. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, má búast við að talan hækki næstu daga, þar sem um bráðabirgðatölur er að ræða. Innlent 7.8.2006 22:36 Með fíkniefni í foreldrahúsum Tveir voru teknir fyrir helgi í heimahúsi í Reykjavík með áttatíu grömm af hassi og fjörutíu af hvítu efni, væntanlega amfetamíni. Einnig fundust peningar sem lögregluna grunar að hafi fengist með dópsölu. Annar mannanna er nítján og hinn 25 ára. Innlent 7.8.2006 22:36 Bílprófið ellefu daga gamalt Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt. Innlent 7.8.2006 22:37 Slegin í andlitið og rænd Þrír tæplega tvítugir menn réðust á konu neðarlega á Laugaveginum aðfaranótt mánudags, slógu hana í andlitið og hrifsuðu af henni veski. Innlent 7.8.2006 22:36 Áhyggjur vegna þurrka Orkuverð í Noregi mun að öllum líkinum rjúka upp í haust þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilega mikið vatn til að knýja rafala sökum mikilla þurrka undanfarið í Evrópu, að því er fram kemur í dagblaðinu Aftenposten. Innlent 7.8.2006 22:37 Vitar á Norðausturlandi Innlent 7.8.2006 22:36
294 295 296 297 298 299 300 301 302 … 334 ›
Ráðherra leyfi litað bensín Forráðamenn Atlantsolíu afhentu í gær Árna Mathiesen fjármálaráðherra áskorun þess efnis að heimilt verði að selja litað bensín á bensínstöðvum. Telja þeir þetta réttlætismál, sem gæti þýtt mikla kjarabót fyrir þá sem nota bensínknúin tæki sem ekki aka á vegakerfi landsins. Innlent 7.8.2006 22:36
Hraðatakmarkandi búnaður skylda Lögbundið er að hafa hraðatakmarkandi búnað í vöruflutningabílum hérlendis sem hindrar það að þeir komist hraðar en á níutíu kílómetra hraða. Þetta segir Jón Magnús Pálsson, formaður Landssambands vörubifreiðastjóra. Innlent 7.8.2006 22:36
Á lítið erindi inn á þing „Mér finnst sjálfsagt að hann reyni ef hann vill þetta á annað borð, en mér persónulega finnst hann eiga lítið erindi inn á þing,“ segir Andrés Jónsson formaður Ungra jafnaðarmanna, en hugsanlegt framboð Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi hefur verið í umræðunni að undanförnu. Innlent 7.8.2006 22:37
Um þrjátíu bílar skemmdir Töluvert var um skemmdarverk á Akureyri í fyrrinótt. Þá voru rúður brotnar í um þrjátíu bílum í bænum aðfaranótt mánudags og rúða í íbúðarhúsi brotinn. Innlent 7.8.2006 22:36
Þriðjungur fólks fær krabbamein á ævinni Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára. Innlent 7.8.2006 22:37
Lögregla lokaði í gær búðum mótmælenda Fjórtán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúkavirkjun í fyrrinótt og tjaldbúðum mótmælenda við Snæfell hefur verið lokað. Íslandsvinir segja mikilvægt að lögregla hagi sér samkvæmt sínum vinnureglum. Innlent 7.8.2006 22:36
Yfir hundrað fíkniefnamál Um 111 fíkniefnamál komu upp á landinu um helgina. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, má búast við að talan hækki næstu daga, þar sem um bráðabirgðatölur er að ræða. Innlent 7.8.2006 22:36
Með fíkniefni í foreldrahúsum Tveir voru teknir fyrir helgi í heimahúsi í Reykjavík með áttatíu grömm af hassi og fjörutíu af hvítu efni, væntanlega amfetamíni. Einnig fundust peningar sem lögregluna grunar að hafi fengist með dópsölu. Annar mannanna er nítján og hinn 25 ára. Innlent 7.8.2006 22:36
Bílprófið ellefu daga gamalt Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt. Innlent 7.8.2006 22:37
Slegin í andlitið og rænd Þrír tæplega tvítugir menn réðust á konu neðarlega á Laugaveginum aðfaranótt mánudags, slógu hana í andlitið og hrifsuðu af henni veski. Innlent 7.8.2006 22:36
Áhyggjur vegna þurrka Orkuverð í Noregi mun að öllum líkinum rjúka upp í haust þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilega mikið vatn til að knýja rafala sökum mikilla þurrka undanfarið í Evrópu, að því er fram kemur í dagblaðinu Aftenposten. Innlent 7.8.2006 22:37
Mesta umferðin að norðan Samdóma álit lögreglumanna víðs vegar um landið er að umferðin hafi gengið vel í gær. Lögreglan í Reykjavík segir mikla umferð hafa legið til borgarinnar allan daginn, sem hafi tekið að þyngjast upp úr hádeginu. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi, segir að góða veðrið fyrir norðan hafi augljóslega trekkt fólk að og veðrið í gær á Norðurlandi hafi orðið til þess að fólk var seinna á ferðinni. Lögreglan á Blönduósi stöðvaði um fimmtíu ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur, en sá bíræfnasti ók á 149 kílómetra hraða. Innlent 7.8.2006 22:36
Björgunarsamstarf aukist Hlýnun jarðar, nýjar siglingaleiðir og breytingar á þjóðréttarsamningum voru meðal umræðuefna á þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem fram fór í Kiruna í Svíþjóð dagana 2.-4. ágúst. Íslensku þingmennirnir lögðu mikla áherslu á aukið samstarf á sviði leitar- og björgunarmála, vegna brotthvarfs varnarliðsins frá Íslandi og aukinna flutninga á olíu og gasi við Íslandsstrendur. Innlent 7.8.2006 22:36
Fór af tjaldsvæði um nóttina Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita í gær við leit að 45 ára gömlum karlmanni í Skaftafelli. Innlent 7.8.2006 22:37
Óþarfa afskipti af ferðafólki Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna harðlega aðgerðir lögreglu gagnvart mótmælendum og öðru ferðafólki á Kárahnjúkum. Samtökin segja að í lýðræðisþjóðfélagi hafi fólk rétt á því að mótmæla með friðsamlegum hætti og eigi yfirvöld að sýna mótmælendum fulla virðingu. Lögreglan hefur ítrekað stöðvað ferðir fólks á svæðinu og leitað í bílum þess. Innlent 7.8.2006 22:37
Fimm teknir með fíkniefni Um fimm þúsund manns gistu í Ásbyrgi aðfaranótt laugardags eftir tónleika Sigur Rósar. Talsverður erill var hjá lögreglunni á Húsavík vegna þessa. Innlent 7.8.2006 22:36
Sendi inn erindi um litað bensín Ólafur Tryggvason skemmtibátaeigandi sendi í maí erindi til umboðsmanns Alþingis, þar sem hann fór þess á leit að skoðað yrði af hverju sala á lituðu bensíni er ekki leyfð. Hann taldi ekki viðunandi að tveir eigendur báta, annar með bensínvél, en hinn með dísilvél, stæðu ekki jafnfætis hvað varðar eldsneytisgjöld. Innlent 7.8.2006 22:36
Eldri borgarar fá frítt í strætó Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur lýst sig reiðubúna til að taka við málefnum 67 ára og eldri frá ríkisvaldinu. Innlent 7.8.2006 22:37
Fer í fangelsi vegna kveikjara Sigurður Elísson þarf að sitja tvo daga í fangelsi borgi hann ekki 5.000 króna sekt fyrir að koma með gaskveikjara frá Aserbaídsjan til landsins. Hann hyggst ekki borga sektina. Innlent 7.8.2006 22:36
Fauk út af og velti bílnum Bíll valt á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu um tvöleytið í fyrradag þegar hjólhýsi sem hann dró tókst á loft í miklu hvassviðri og splundraðist. Innlent 7.8.2006 22:36
Tjón upp á einn og hálfan milljarð Tjón á húsnæði vegna eldsvoða var metið á 1.640 milljónir króna á síðasta ári. Það er heldur yfir meðaltali síðustu ára á undan. Þetta kemur fram í ársskýrslu Brunamálastofnunar. Þar kemur jafnframt fram að einn týndi lífi í eldsvoða og er það nokkuð minna en í meðalári. 49 hafa látist í eldsvoðum frá árinu 1979, þrefalt fleiri karlar en konur. Flestir hafa látist í eldsvoðum á laugardegi, tólf talsins, en fæstir á þriðjudögum, eða tveir. Innlent 7.8.2006 19:14
Leitað að manni í Skaftafelli Lögregla og fjöldi björgunarsveitarmanna leita nú að karlmanni á fimmtugsaldri í Skaftafelli, sem ekkert hefur spurst til síðan um klukkan hálf þrjú í nótt. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent um 80 björgunarsveitarmenn á staðinn og er að senda leitarhunda. Þá hefur fjöldi fólks af svæðinu tekið þátt í leitinni í dag. Þegar ljóst var að maðurinn væri ekki í eða við tjaldsvæðið í Skaftafelli var ákveðið að efla leitina. Innlent 7.8.2006 19:12
Meira en tíu þúsund manns á þremur stöðum Þrjár útihátíðir náðu líklega því marki að fá tíu þúsund gesti. Flestir voru á Akureyri en mikið fjölmenni var einnig í Vestmannaeyjum og á Unglingalandsmóti UMFÍ að Laugum. Innlent 7.8.2006 18:53
Náttúrusamtök Íslands gangrýna framgöngu lögreglu Lektor við Háskólann í Reykjavík segir að lögregla megi hafa afskipti af mótmælendum, hindra ferðir þeirra eða leita í vistarverum þeirra ef hún telur að af þeim geti stafað einhver ógn eða hætta. Náttúruverndarsamtök Íslands eru þessu ósammála. Innlent 7.8.2006 18:50
Tjaldstæðið við Lindur rýmt Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur fjarlægt allt fólk af tjaldsvæðinu við Lindur að ósk Landsvirkjunar. Til átaka kom á svæðinu í nótt þegar lögregla handtók fjórtán mótmælendur. Sumir þeirra höfðu hlekkjað sig við stangir. Innlent 7.8.2006 18:42
Björgunarsveitarmenn grennslast fyrir um mann Lögreglan á Höfn í Hornafirði og um 20 björgunarsveitarmenn eru nú staddir í Skaftafelli þar sem þeir grennslast nú fyrir um mann sem ekkert hefur spurst til síðan um klukkan eitt í nótt. Enn sem komið er ekki um skipulagða leit að ræða Innlent 7.8.2006 16:10
Ætlar að fjarlægja mótmælendur af svæðinu Lögreglan ætlar að fjarlægja mótmælendur af Kárahnjúkasvæðinu. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði segir að framkvæmdaaðilar við Kárahnjúka hafi farið fram á þetta og hann hafi ákveðið að fara að þeirri ósk.Sýslumaður telur sig hafa lagaheimild til þessa á grundvelli lögreglulaga frá 1996. Innlent 7.8.2006 16:07
Marel kaupir danskan keppinaut Marel hf. hefur keypt alla hluti í danska matvælavélaframleiðandanum Scanvægt International. Kaupverðið nemur 109,2 milljónum evra eða tæplega tíu milljörðum íslenskra króna. Innlent 7.8.2006 14:16
Vel heppnaður Innipúki Innipúkahátíðinni lauk í gærkvöldi með stórkostlegri tónleikaröð. Mugison kom, sá og sigraði og var mál manna að tónleikar hans hefðu verið það besta á innipúkanum í ár. Innlent 7.8.2006 12:23