Innlent
Öxnadalsheiði fær á ný Innlent 14.11.2006 14:24 « ‹ 156 157 158 159 160 161 162 163 164 … 334 ›
Kostnaður við snjóflóðavarnir 750 milljónir Áætlað er að snjóflóðavarnir við Bolungarvík kosti um 750 milljónir króna og taka muni tvö til þrjú ár að reisa þær. Innlent 14.11.2006 21:46
Skaðræðiströppur á brúnni Göngubrúin frá Sogavegi yfir í Skeifuna er ófær eða illa fær fötluðum á rafskutlum, fólki í hjólastólum og fólki með barnavagna og kerrur. Þegar komið er upp á brúna þurfa vegfarendur að komast upp snarbrattar tröppur. Innlent 14.11.2006 21:45
Auglýsingaaðferðum breytt Starfsmenn vantar í tæplega sjötíu af átján hundruð stöðugildum á leikskólum Reykjavíkur, að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs. Starfsmenn vantaði í áttatíu og fjögur stöðugildi 1. október. Innlent 14.11.2006 21:46
Fleiri styrkja Sjónarhól Fulltrúar bakhjarla Sjónarhóls-ráðgjafamiðstöðvar munu hittast í dag og skrifa undir áframhaldandi samstarf næstu þrjú árin. Innlent 14.11.2006 21:46
520 tjón á síðustu sex árum Flest umferðaróhöpp í Reykjavík urðu á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á síðasta ári, að því er fram kemur í skýrslu Sjóvár Forvarnarhúss. Innlent 14.11.2006 21:45
Undirstaða vörubíls gaf sig Vörubíll valt á hliðina í Lágmúlanum í Reykjavík í gær. Vörubíllinn var að hífa gifsplötur við verslun Bræðranna Ormsson skömmu fyrir hádegi þegar ein af undirstöðum hans gaf sig og hann valt. Hvorki bílstjóra né vegfarendur sakaði, að því er fram kom á Vísi. Innlent 14.11.2006 21:46
Mögulega gripið til ráðstafana Í kjölfar fundar Fjármálaeftirlitsins (FME) með eftirlitsskyldum aðilum á tryggingamarkaði sem haldinn var í gær verður tekin ákvörðun um hvort grípa þurfi til sérstakra ráðstafanna, að sögn Rúnars Guðmundssonar, sviðstjóra vátryggingasviðs FME. Innlent 14.11.2006 21:45
Tildrög slyssins rannsökuð Lögreglan í Hafnarfirði vinnur að rannsókn á tildrögum banaslyss sem varð á Reykjanesbraut er bifreið var ekið á steyptan klossa. Innlent 14.11.2006 21:46
Nágrannavarsla við sex götur Þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar hefur efnt til tilraunaverkefnis í nágrannavörslu í samvinnu við lögregluna. Borgarbúar taka að sér að gæta húsa nágranna sinna og stuðla þannig að öryggi eigna sinna og sporna gegn innbrotum og eignatjóni. Innlent 14.11.2006 21:45
Græna fánanum fagnað Í gær fékk Foldaskóli afhentan Grænfánann sem er alþjóðleg viðurkenning og staðfesting á virku umhverfisstarfi. Innlent 14.11.2006 21:46
Leit að strokufanga stendur enn yfir Lögreglan í Reykjavík leitar enn að strokufanganum Ívari Smára Guðmundssyni. Ívar er refsifangi af Litla Hrauni og er að afplána 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála. Hann strauk frá fangaflutningsmönnum, sem starfa á Litla-Hrauni, við Héraðsdóm Reykjavíkur um kl. 15:00 í dag. Telur lögregla ástæðu til að ætla að hann geti verið varasamur. Innlent 14.11.2006 23:21
Bílaumboð eiga ekki að hvetja til utanvegaaksturs Bílaumboð eiga að sjá sóma sinn í því að taka auglýsingar sínar, sem hvetja til utanvegaaksturs, úr umferð. Þetta segir framkvæmdastjóri Landverndar. Innlent 14.11.2006 22:13
Lögreglumanni á Akureyri hótað lífláti "Ég ætla að drepa þig og fjölskyldu þína". Þannig hljóðaði morðhótun sem lögreglumaður á Akureyri fékk í dag. "Hvítu fíkniefnin" svokölluðu ógna öryggi lögreglumanna sem aldrei fyrr. Innlent 14.11.2006 21:57
Sendiherra segir árás hafa verið mistök Utanríkisráðherra afhenti í morgun sendiherranum bréf til utanríkisráðherra Ísraels, þar sem morðum á óbreyttum borgurum á Gaza í síðustu viku var harðlega mótmælt. Það sama gerði formaður Samfylkingarinnar á snubbóttum fundi með sendiherranum á Alþingi í dag. Innlent 14.11.2006 21:11
Jólin kosta þjóðina átta milljarða króna Jólin kosta þjóðina átta milljarða króna, fyrir utan virðisaukaskatt, ef spá Rannsóknarseturs verslunarinnar gengur eftir. Átta milljarðar samsvara því að hvert mannsbarn eyði um þrjátíu þúsund krónum, með virðisaukaskatti, í jólin á þessu ári. Innlent 14.11.2006 20:08
Stjórnvöld verða að taka á málefnum innflytjenda segja Vinstri grænir og Samfylkingin Farsæl aðlögun og barátta gegn fordómum hefst ekki án atbeina stjórnvalda en þetta kemur fram í framkvæmdaáætlun um málefni innflytenda sem borgarstjórnarflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar kynntu í dag. Innlent 14.11.2006 20:02
Stjórn Samtaka iðnaðarins sendir frá sér tilkynningu vegna kaupa Íslandspósts hf. á Samskiptum ehf. Stjórn Samtaka iðnaðarins sendi í dag frá sér tilkynningu vegna kaupa Íslandspósts hf. á Samskiptum ehf. Segir í tilkynningunni að stjórnin ítreki þá stefnu sína að ríkið eigi að draga sig af markaði þar sem rekstur er allt eins vel eða betur kominn í höndum einkaaðila. Innlent 14.11.2006 17:30
Krónan veikist Gengi íslensku krónunnar veiktist um 2,3% í dag. Krónan hefur veikst um þrjú prósent á síðustu tveimur dögum og styrking síðustu sex vikna hefur því gengið til baka á aðeins þessum tveimur dögum. Í Hálf fimm fréttum greiningadeildar KB-banka segir að svo virðist sem að 4-5 mánaða nær samfelld styrking krónunnar sé nú rofin. Innlent 14.11.2006 17:16
Ríkisstjórnin eflir íslenska kvikmyndagerð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra undirrituðu í dag ásamt fulltrúum samtaka kvikmyndagerðarmanna samkomulag til næstu fjögurra ára um eflingu íslenskrar kvikmyndagerðar. Innlent 14.11.2006 17:06
Hægt að banna ungum ökumönnum að aka á tilteknum tímum Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp til breytinga á umferðarlögum. Frumvarpið felur það í sér að hægt verður að gera ökutæki upptæk ef ökumaður gerist sekur um gróf og endurtekin brot á umferðarlögum. Í frumvarpinu er lagt til að settar verði reglur um stigskipt ökuskírteini. Heimilt verður þannig að banna yngri ökumönnum að aka á bifreið á tilteknum tíma sólarhrings, takmarka farþegafjölda þeirra og takmarka vélarafl ökutækjanna sem þeir stýra. Innlent 14.11.2006 16:51
Lögreglan lýsir eftir strokufanga Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Ívari Smára Guðmundssyni. Lögregla telur ástæðu til að ætla að Ívar Smári geti verið varasamur og er fólk hvatt til að vera á varðbergi. Ívar er refsifangi af Litla Hrauni og er að afplána 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála. Hann strauk frá fangaflutningsmönnum við Héraðsdóm Reykjavíkur um kl. 15:00 í dag. Hann var klæddur í svartan stuttermabol og græna hettupeysu þegar hann hljóp frá fangaflutningsmönnum. Ívar er 26 ára gamall. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ívars eru vinsamlega beðnir um hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1000. Innlent 14.11.2006 16:51
Gekk ítrekað í skrokk á barnsmóður sinni Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárásir á fyrrum sambýliskonu sína og barnsmóður. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir húsbrot, brot á nálgunarbanni og fíkniefnalagabrot. Hann var sýknaður af vopnalagabroti. Innlent 14.11.2006 16:30
Taka á upp svartlista Evrópusambandsins á flugrekstraraðilum Innleiða á reglur um svartlista Evrópusambandsins á flugrekstraraðilum. Svartlistarnir fela í sér bann við flugi einstakra flugrekenda eða bann á öllu flugi frá einstökum ríkjum. Innlent 14.11.2006 16:18
Lækjargata lokuð til norðurs vegna framkvæmda Lækjargata verður lokuð til norðurs við Hverfisgötu næstu tíu dagana vegna framkvæmda. Lokað verður í fyrramáli klukkan tíu. Innlent 14.11.2006 15:52
365 mótmæla frumvarpi um Ríkisútvarpið Fjölmiðlafyrirtækið 365 mótmælir frumvarpi um Ríkisútvarpið sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. 365 rekur meðal annars NFS. Í formlegri umsögn um frumvarp til laga um Ríkisútvarpið sem 365 hefur sent Alþingi segir meðal annars að með lögfestingu frumvarpsins telji 365 að enn frekar verði aukið á forskot RÚV á íslenskum markaði ljósvakamiðla og um leið vegið að starfsemi einkarekinna fjölmiðla. Að mati 365 er sú stefna í "hróplegu ósamræmi við þjóðfélagsstrauma í íslensku samfélagi og þau sjónarmið um jafnræði sem sífellt hafa fengið meira vægi, m.a. í löggjöf og samningum sem Ísland á aðild að." Innlent 14.11.2006 15:35
Sendiherrar fara oft út bakdyramegin Algengt er að sendiherrar erlendra ríkja fari bakdyramegin út úr utanríkisráðuneytinu, að sögn siðameistara þar. Innlent 14.11.2006 15:16
Akureyrarbær styrkir Flugsafn Íslands Akureyrarbær og Flugsafn Íslands hafa skrifað undir samning um framlag bæjarins til byggingar safnahúss undir starfsemi safnsins. Innlent 14.11.2006 15:04
Þyrlur Gæslunnar að fara frá Höfn Þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-Líf og nýja leiguþyrla Gæslunnar, eru nú að leggja af stað frá Höfn í Hornafirði. Þyrlurnar hafa verið þar í viðbragðsstöðu vegna erlends flutningaskips, sem lenti í háska rúmar hundrað sjómílur suðaustur af landinu, þegar aðalvél þess bilaði í nótt. Skipið siglir á ný fyrir eigin vélarafli áleiðis til Reyðarfjarðar þangað sem skipið er væntanlegt klukkan sex í kvöld. Innlent 14.11.2006 14:47
Rætt um stóriðju á Suðurlandi Iðnaðarráðherra var sakaður um tvískinnung á Alþingi í dag þegar hann segði enga stóriðjustefnu hér á landi heldur væri það á valdi sveitarfélaganna sjálfra að taka ákvörðun um orkufrekan iðnað. álversáform í Þorlákshöfn voru gagnrýnd í utandagskrárumræðu, sem Álfheiður Ingadóttir, VG. hóf. Innlent 14.11.2006 14:31