Kvöldfréttir Stöðvar 2
33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 62 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá foreldrum sem tóku barn sitt úr vistun í Garðabæ vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna, sem hafa verið sökuð um gróft ofbeldi gegn börnum. Foreldrarnir létu Garðabæ vita. Innlent 5.12.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Gert er ráð fyrir að hlaupið í Grímsvötnum nái hámarki á morgun en íshellan hefur sigið um 40 metra. Engin merki er um gosóróa á svæðinu. Við sýnum stórkostlegar myndir sem Ragnar Axelsson, RAX, tók af svæðinu í dag. Innlent 4.12.2021 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarandstaðan gerir miklar athugasemdir við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi og kallar það bráðabirgðafrumvarp. Ekki er víst að þingið nái að ljúka afgreiðslu frumvarpsins fyrir jól. Heimir Már verður í beinni frá Alþingi í fréttatímanum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö á eftir. Innlent 3.12.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að allt að sjö manns hafa greinst með nýjasta afbrigði kórónuveirunnar, omíkron hér á landi. Fólkið tengist og er því enn möguleiki að veiran hafi ekki náð að dreifa sér í samfélaginu eins og víða erlendis. Innlent 2.12.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta fram undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir nú síðdegis yfir óvissuástandi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en brúin er ekki talin í hættu. Mikil spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. Innlent 1.12.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um ný fjárlög og rætt við fulltrúa vinnumarkaðarins og atvinnurekenda í beinni útsendingu. Innlent 30.11.2021 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lyklar og aðgangskort voru afhent níu ráðherrum sem tóku við nýjum ráðuneytum í morgun. Þeir voru allir sáttir með ný hlutverk og ætla sér stóra hluti á komandi kjörtímabili. Í kvöldfréttum fylgjumst við með lyklaskiptunum í morgun og ræðum við þingmenn stjórnarandstöðunnar í beinni útsendingu – sem missa formennsku í þingnefndum á kjörtímabilinu. Innlent 29.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjö ráðherrar höfðu stólaskipti á Bessastöðum í dag. Við fjöllum ítarlega um nýja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, stjórnarsáttmálann og nýja ráðherra í kvöldfréttum stöðvar 2 klukkan hálf sjö. Innlent 28.11.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjálfstæðisflokkur fær flest ráðuneyti og Framsókn fær heilbrigðisráðuneyti, samkvæmt heimildum fréttastofu og Innherja um nýjan stjórnarsáttmála sem kynntur var flokkunum í dag. Við förum yfir skiptingu ráðuneyta eftir flokkum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í beinni útsendingu klukkan hálf sjö. Innlent 27.11.2021 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ferðabönn hafa verið sett á og hlutabréf fallið í verði um allan heim í dag vegna vaxandi áhyggja af útbreiðslu nýs mjög stökkbreytts afbrigðis kórónuveirunnar. Það hefur nú greinst í að minnsta kosti fimm löndum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 26.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ágallar í meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi voru það miklir að annað hvort ber að endurtaka alþingiskosningarnar í heild eða í Norðvesturkjördæmi samkvæmt tillögum fulltrúa í kjörbréfanefnd. Innlent 25.11.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum en dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Innlent 24.11.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forseti Íslands vonar að nýju þingi takist betur til við breytingar á stjórnarskránni en á síðasta kjörtímabili. Meirihluti fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu í Norðvesturkjördæmi verði samþykkt. Innlent 23.11.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bæjarstjórar Akureyrar og Garðabæjar telja rétt að starfshættir hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar verði rannsakaðir. Hjónin ráku dagvistun og leikskóla í Garðabæ í tæp 20 ár. Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið sína kvörtun alvarlega. Innlent 22.11.2021 18:00
Í beinni: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar dvaldi sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Fjallað verður ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og í fréttaauka að loknum íþróttafréttum. Innlent 21.11.2021 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landspítalanum er sífellt stærri vandi á höndum við að manna störf og álagið er enn stigvaxandi vegna faraldursins. Í gær var gripið til nýs ráðs í úthringiveri Covid-göngudeildarinnar, sem bar undraverðan árangur. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30. Innlent 20.11.2021 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ísland er eftirbátur allra hinna Norðurlandanna þegar kemur að framlögum til heilbrigðisþjónustunnar - sérstaklega öldrunarþjónustu. Næstum því fjórum sinni fleiri liggja inni á spítalanum í bið eftir plássi á hjúkrunarheimili heldur en þeir sem liggja þar inni með Covid. Innlent 19.11.2021 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óttast er að bráðadeild Landspítalans verði óstarfhæf þegar uppsagnir hjúkrunarfræðinga taka gildi. Fimm hafa sagt upp. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. Innlent 18.11.2021 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra hugnast ekki aðgerðir sem gætu mismunað bólusettum og óbólusettum. Tuttugu þúsund Íslendingar fengu þriðja skammt í fyrstu viku bólusetningarátaks, færri en vonast var til. Innlent 17.11.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem sagði sögu látinnar vinkonu sinnar varðandi kynferðislega áreitni af hálfu lögmanns um aldamótin krefst réttlætis. Málið hafi hvílt þungt á henni í tuttugu ár. Fyrrverandi vinnuveitandi lögmannsins segir óvíst hvort rétt hafi verið brugðist við málinu á sínum tíma og ætlar að skoða hvort fleiri sambærileg mál hafi komið upp. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.11.2021 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Starfsmaður á leikskólanum Sælukoti, sem hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára barn, starfaði á leikskólanum þrátt fyrir tilkynningu móður um meint brot. Foreldrar og fyrrverandi starfsmenn leikskólans segja verulega vankanta vera á aðbúnaði barna á leikskólanum og krefjast þess að honum verði tafarlaust lokað. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar ásamtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö verður rætt við fólk búsett í hinum ýmsu löndum í Evrópu um hvort og hvernig sóttvarnarreglur eru í þeirra heimalöndum. Fréttir 14.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttatíma okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö í kvöld segjum við frá alvarlegri hnífaárás sem var við Hagkaup í Garðabæ í gær. Lögreglan segir að ofbeldisglæpum sem þessum fari fjölgandi og séu alvarlegri en áður. Innlent 13.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Harðar sóttvarnaaðgerðir til næstu þriggja vikna taka gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra skorar á alla sem fá boðun að þiggja þriðju bólusetninguna en stefnt sé að því að bólusetja um helming fullorðins fólks fyrir áramót. Fjallað verður ítarlega um nýjar reglur í kvöldfréttum. Innlent 12.11.2021 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra segir kórónuveirufaraldurinn vera orðinn nokkuð stjórnlausan. Metfjöldi smitaðra af veirunni kalli á hertar sóttvarnaaðgerðir. Sóttvarnalæknir undirbýr minnisblað til ráðherrans. Innlent 11.11.2021 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einn lést og annar slasaðist alvarlega þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól skullu saman á hjólastíg í Reykjavík í morgun. Lögregla segist lengi hafa óttast að svo alvarlegt slys kynni að verða í ljósi sívaxandi vinsælda rafmagnshlaupahjóla, sem sum fari langt yfir leyfilegan hámarkshraða. Innlent 10.11.2021 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Deildarstjóri Covid-göngudeildar óttast að Landspítalinn hætti að ráða við álagið með áframhaldandi fjölgun smitaðra í samfélaginu og telur að grípa þurfi til mun hertari aðgerða svo staðan verði ekki eins slæm og víða annars staðar í Evrópu. Metfjöldi greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Innlent 9.11.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir níu ára stúlku hefur kært starfsmann Gerðaskóla í Garði til lögreglu fyrir ofbeldi gegn dóttur sinni. Hann hafi snúið stelpuna niður þegar hún klóraði í áttina að honum. Hún segir það viðtekna venju í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi. Rætt verður við móðurina í kvöldfréttum. Innlent 8.11.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í sóttvarnalækni sem óttast að sama neyðarástandið skapist hér og víða í austur Evrópu ef nýjustu sóttvarnaaðgerðirnar skili ekki skjótum árangri. Innlent 7.11.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinir verkefnastjóri farsóttanefndar frá því að Landspítalinn sé kominn að þanmörkum vegna vaxandi útbreiðslu kórónuveirunnar. Fjölgun innlagna vegna Covid-veikinda lami aðra starfsemi spítalans. Innlent 6.11.2021 17:44