Lög og regla
Ölvun á unglingadansleik Innlent 12.11.2005 09:37 Sýslumaður hafnar kröfu um bann á sýningu Skuggabarna Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði fyrir örfáum mínútum kröfu um lögbann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason, sem fjallar um nokkur ungmenni í undirheimum Reykjavíkur. Innlent 11.11.2005 16:09 Enn fundað um lögbann á sýningu á mynd Fundur stendur enn yfir hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem tekin er fyrir krafa um bann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason sem fjallar um nokkur ungmenni í undirheimum Reykjavíkur. Innlent 11.11.2005 15:30 Fundað um Skuggabörn hjá sýslumanni Fundur stendur nú yfir hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem tekin er fyrir krafa um bann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason. Krafan er grundvölluð á því að við sögu í myndinni komi ungur piltur, sem var myrtur eftir að tökum lauk. Að óbreyttu átti að forsýna myndina í kvöld og sýna hana svo í Ríkissjónvarpinu á þriðjudag. Innlent 11.11.2005 11:59 Fundu 200 g af fíkniefnum við húsleit í Kópavogi Kópavogslögreglan lagði hald í tæp tvö hundruð grömm af fíkniefnum við húsleit í íbúð í Lindarhverfi í gærkvöldi. Sex manneskjur, sem voru í íbúðinni voru handteknar og færðar til yfirheyrslu. Fjórum var fljótlega sleppt, en í nótt játuðu tveir að hafa átt efnin og að hafa ætlað þau til sölu. Innlent 11.11.2005 08:59 Tekur fyrir lögbann á sýningu myndar Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur í dag fyrir kröfu um bann á sýningu heimildarmyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason. Krafan er grundvöllluð á því að við sögu í myndinni komi ungur piltur, sem var myrtur eftir að töku myndarinnar lauk. Að óbreyttu átti að forsýna hana í kvöld og svo í Ríkissjónvarpinu á þriðjudag. Innlent 11.11.2005 08:55 Ekki ákært í 309 kærðum nauðgunum 370 nauðganir voru kærðar til lögreglu á árunum 1995 til 2004. Ákært var í 61 máli en 309 kærur leiddu ekki til ákæru fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur þingmanns. Innlent 11.11.2005 07:14 Kona sem ógnaði leigubílstjóra enn í haldi Rúmlega þrítug kona er enn í haldi lögreglu, eftir að hún var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi þegar hún ógnaði leigubílstjóra með eftirlíkingu af skambyssu. Hún hafði boðið bílstjóranum blíðu sína en þegar hann þáði ekki boðið dró hún upp byssuna. Innlent 10.11.2005 12:13 Lögbannskrafa Jónínu tekin fyrir í morgun Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum tengdum Baugsmálinu var tekin fyrir í Héraðsdómi í morgun. Ákveðið var að aðalmeðferð í málinu verði 29. nóvember næstkomandi. Innlent 10.11.2005 10:17 Tvær rúður á bílaleigu sprengdar Tvær rúður í afgreiðsluhúsi Bílaleigu Flugleiða við Akureyrarflugvöll voru sprengdar með heimatilbúnum sprengjum í nótt. Sprengjurnar virðast hafa verið límdar á rúðurnar og síðan sprengdar. Ekkert bendir til þess að sprengjuvargarnir hafi stolið neinu og eru þeir ófundnir. Innlent 10.11.2005 07:34 « ‹ 20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 120 ›
Grunaður um að hafa hjólað ölvaður Til kasta lögreglu kom í heldur óvenjulegu máli í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Þar rákust saman maður á reiðhjóli og bíll við Hverfisgötuna án þess þó að alvarleg slys yrðu á fólki en bíll og hjól skemmdust eitthvað. Innlent 19.11.2005 10:35
Lét ófriðlega fyrir utan partí í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík var kölluð að húsi í Grafavogi á miðnætti í gær en þar fór fram unglingapartí. Foreldrar veisluhaldarans voru ekki heima og fór partíið úr böndunum þegar maður vopnaður felgulykli og hnífi fór að berja á húsinu þar sem honum var vörnuð innganga í partíið. Innlent 19.11.2005 10:31
Skorinn illa á háls á skemmtistað Ráðist var á mann og hann skorinn illa á háls á skemmtistað við Smiðjustíg í miðborginni í nótt. Árásarmaðurinn hafði brotið glas og lagði til mannsins en hann fékk stóran skurð á háls auk nokkurra áverka annars staðar á líkamanum þar sem hann reyndi að verja sig. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og voru saumuð tuttugu spor í hálsinn á honum en hann mun þó ekki vera í lífshættu. Innlent 19.11.2005 10:30
Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot Hæstiréttur hefur dæmt lögmann, sem fundinn var sekur um auðgunarbrot, til sex mánaðar fangelsisvistar. Lögmaðurinn gerði fjárnám í fasteign konu á grundvelli tryggingarvíxils að fjárhæð fimm milljónir króna, þótt krafan væri mun lægri. Hann hagræddi dagsetningum á ýmsum plöggum, svo það liti út fyrir að kröfurnar væru frá fyrri tíma og gerðist þar með sekur um að aðstoða konuna við svikin. Innlent 18.11.2005 22:14
Brotist inn í grunnskóla og leikskóla Brotist var inn í grunnskóla og leikskóla á Kjalarnesi síðustu nótt. Einn var handtekinn eftir að hafa brotist inn í Klébergsskóla. Hann hafði kastað stórum steini í gegnum rúðu til að komast inn og fært muni úr skólanum í bíl sinn. Lagt var hald á bílinn og þýfi. Innlent 18.11.2005 18:25
Dæmdur fyrir vopnað rán Hilmar Ragnarsson, sem ásamt öðrum manni framdi vopnað rán í SPRON í Hátúni fyrir tæpum tveimur árum, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. Vitorðsmaður hans er ófundinn. Innlent 18.11.2005 00:09
Þrjú ár fyrir nauðgun Karlmaður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir að nauðga fyrrum sambýliskonu sinni á heimili hennar auk umferðarlaga- og fíkniefnabrota. Innlent 17.11.2005 18:03
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um morð í Grikklandi. Innlent 17.11.2005 17:10
Fékk einn mánuð fyrir fíkniefnasölu Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi mann á þrítugsaldri í eins mánaðar fangelsi fyrir vörslu fíkniefna af ýmsu tagi. Hafði hann innanklæða E- pillur, amfetamín og kókaín. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa selt tveimur aðilum E-pillur. Ákærði játaði sök og var dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelisisvistar. Litið var til þess í dómnum að hann hafði ekki gerst brotlegur áður. Innlent 17.11.2005 16:10
Deilt um hæfi Björns Sérskipaður ríkissaksóknari í Baugsmálinu, Sigurður Tómas Magnússon, sagði í dómsal í dag að þótt ekki mætti lesa sérstaka velvild úr skrifum dómsmálaráðherra í garð Baugs, þá efaðist hann ekki um hæfi ráðherra til að hafa afskipti af málinu. Verjendur héldu hins vegar fram vanhæfi dómsmálaráðherra til að skipa Sigurð Tómas til að fara með málið í heild. Innlent 16.11.2005 21:03
Alþjóðleg herferð gegn ólöglegu niðurhali Alþjóðleg samtök flytjenda og framleiðenda tónlistra hófu viðamikla herferð gegn ólöglegu niðurhali tónlistar af netinu, í gær. Fjöldi slíkra mála er rekinn fyrir dómstólum víða um heim og slík mál eru til rannsóknar á Íslandi. Innlent 16.11.2005 16:53
Skilar mun fleiri sératkvæðum en aðrir dómarar Á því ári sem Jón Steinar Gunnlaugsson hefur starfað sem hæstaréttardómari hefur hann skilað mun fleiri sératkvæðum en aðrir hæstaréttardómarar. Innlent 15.11.2005 18:37
Lenti undir bíl í Hveragerði Heldur fór illa fyrir konu í Hveragerði í gær þegar hún steig út úr bíl sínum. Svo virðist sem hún hafi gleymt að setja bílinn í gír eða handbremsu og því fór bíllinn að renna. Konan reyndi þá að stöðva hann en það vildi ekki betur til en svo að hún lenti undir bílnum og rann hann að hluta til yfir hana. Innlent 14.11.2005 23:03
Brotist inn í íbúð í austurborginni Brotist var inn í íbúð í austurborginni í um sexleytið í kvöld. Innbrotsþjófurinn eða -þjófarnir spenntu upp glugga og höfðu á brott með sér tölvu og heimilissíma. Ekki er vitað hver þar að verki en lögregla leitar þjófanna. Innlent 14.11.2005 22:49
Vilja láta úrskurða um hæfi ráðherra til að skipa saksóknara Verjendur sakborninga í Baugsmálinu krefjast þess að héraðsdómur úrskurði um hæfi dómsmálaráðherra til að skipa sérstakan saksóknara í málinu. Þeir eru sannfærðir um að orðið verði við kröfum þeirra. Innlent 14.11.2005 18:26
Tveir stútar lentu í árekstri Erilsamt var hjá lögreglunni í Reykjavík. Lögregluþjónar þurftu að hafa afskipti af fimm minniháttar líkamsárásum og sex voru teknir vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra höfðu endað ferð sína á því að lenda í árekstri. Þar fór þó betur en svo að nokkur meiddist. Innlent 13.11.2005 08:59
Tvær bílveltur fyrir norðan Lögreglan á Akureyri var kölluð af stað vegna tveggja bílveltna síðustu nótt. Bíll valt á Öxnadalsheiði um þrjúleytið í nótt og annar í Fnjóskadal um sexleytið í morgun. Enginn slasaðist í bílveltunum tveimur en bílarnir skemmdust eitthvað. Innlent 13.11.2005 09:00
Þrír gistu fangaklefa Þrír gistu fangaklefa lögreglunnar í Reykjanesbæ, tveir vegna slagsmála en einn vegna ölvunar. Lögreglan var tvívegis kölluð að sama skemmtistaðnum vegna áfloga og handtók einn mann en honum var sleppt skömmu síðar. Innlent 13.11.2005 08:57
Réðist á lögreglumenn með skóflu Tveir fengu að gista fangaklefa lögreglunnar á Ísafirði eftir dansleik á Bolungarvík, báðir vegna slagsmála. Annar var ekki reiðubúinn að hlýða þegar lögregla ætlaði að stöðva hann heldur réðist hann að lögreglumönnum vopnaður skóflu. Innlent 13.11.2005 08:54
Sex teknir vegna fíkniefnasölu Sex voru handteknir í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna gruns um sölu, vörslu og neyslu fíkniefna. Þeir sem voru handteknir eru allir á aldrinum fimmtán til 24 ára. Innlent 12.11.2005 09:39
Sýslumaður hafnar kröfu um bann á sýningu Skuggabarna Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði fyrir örfáum mínútum kröfu um lögbann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason, sem fjallar um nokkur ungmenni í undirheimum Reykjavíkur. Innlent 11.11.2005 16:09
Enn fundað um lögbann á sýningu á mynd Fundur stendur enn yfir hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem tekin er fyrir krafa um bann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason sem fjallar um nokkur ungmenni í undirheimum Reykjavíkur. Innlent 11.11.2005 15:30
Fundað um Skuggabörn hjá sýslumanni Fundur stendur nú yfir hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem tekin er fyrir krafa um bann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason. Krafan er grundvölluð á því að við sögu í myndinni komi ungur piltur, sem var myrtur eftir að tökum lauk. Að óbreyttu átti að forsýna myndina í kvöld og sýna hana svo í Ríkissjónvarpinu á þriðjudag. Innlent 11.11.2005 11:59
Fundu 200 g af fíkniefnum við húsleit í Kópavogi Kópavogslögreglan lagði hald í tæp tvö hundruð grömm af fíkniefnum við húsleit í íbúð í Lindarhverfi í gærkvöldi. Sex manneskjur, sem voru í íbúðinni voru handteknar og færðar til yfirheyrslu. Fjórum var fljótlega sleppt, en í nótt játuðu tveir að hafa átt efnin og að hafa ætlað þau til sölu. Innlent 11.11.2005 08:59
Tekur fyrir lögbann á sýningu myndar Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur í dag fyrir kröfu um bann á sýningu heimildarmyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason. Krafan er grundvöllluð á því að við sögu í myndinni komi ungur piltur, sem var myrtur eftir að töku myndarinnar lauk. Að óbreyttu átti að forsýna hana í kvöld og svo í Ríkissjónvarpinu á þriðjudag. Innlent 11.11.2005 08:55
Ekki ákært í 309 kærðum nauðgunum 370 nauðganir voru kærðar til lögreglu á árunum 1995 til 2004. Ákært var í 61 máli en 309 kærur leiddu ekki til ákæru fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur þingmanns. Innlent 11.11.2005 07:14
Kona sem ógnaði leigubílstjóra enn í haldi Rúmlega þrítug kona er enn í haldi lögreglu, eftir að hún var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi þegar hún ógnaði leigubílstjóra með eftirlíkingu af skambyssu. Hún hafði boðið bílstjóranum blíðu sína en þegar hann þáði ekki boðið dró hún upp byssuna. Innlent 10.11.2005 12:13
Lögbannskrafa Jónínu tekin fyrir í morgun Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum tengdum Baugsmálinu var tekin fyrir í Héraðsdómi í morgun. Ákveðið var að aðalmeðferð í málinu verði 29. nóvember næstkomandi. Innlent 10.11.2005 10:17
Tvær rúður á bílaleigu sprengdar Tvær rúður í afgreiðsluhúsi Bílaleigu Flugleiða við Akureyrarflugvöll voru sprengdar með heimatilbúnum sprengjum í nótt. Sprengjurnar virðast hafa verið límdar á rúðurnar og síðan sprengdar. Ekkert bendir til þess að sprengjuvargarnir hafi stolið neinu og eru þeir ófundnir. Innlent 10.11.2005 07:34
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent