

Ungi maðurinn, sem framdi rán í tveimur söluturnum í Vesturborginni með skömmu millibili í fyrrakvöld og var handtekinn með þýfið á sér, fór í vímuefnameðferð á Vog að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Hann hafði einmitt útskrifað sig sjálfur þaðan í fyrrakvöld, skömmu áður en hann framdi ránin.
Lögreglan í Keflavík telur sig vera búna að finna manninn sem ók niður konu í Sandgerði fyrir tæpri viku og stakk af. Konan var á leið heim til sín að loknum vinnudegi þegar ekið var á hana á Strandgötu. Hún slasaðist talsvert, var rænulítil þegar að var komið og var hún flutt á slysadeild Landspítalans og síðan lögð inn á spítalann.
Tvítugur maður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að stinga mann fjórum sinnum fyrir framan Broadway í Ármúla í september í fyrra. Tólf mánuðir af dómnum eru skilorðsbundnir.
Kona á fertugsaldri ók tvívegis á lögreglubíl á fullri ferð og stakk síðan af síðastliðið mánudagskvöld. Lögreglumennirnir kenndu eymsla í hálsi og var lögreglubíllinn óökufær, hann var nokkuð klesstur auk þess sem fram- og hliðarlíknarbelgir í bílnum blésu út.
Hæstiréttur mun taka ákvörðun fyrir jól um hvort gefið verði leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness þar sem refsingu manns var frestað en hann beitti eiginkonu sína ofbeldi. Í málum þar sem refsingu er frestað verður ekki áfrýjað nema með leyfi Hæstaréttar.
Rannsókn lögreglunnar á Blönduósi á því hver kveikti í atvinnuhúsnæðinu Votmúla aðfaranótt þriðjudagsins 28. september hefur enn engu skilað. Kristján Þorbjörnsson yfirlögregluþjónn segir að enginn sé grunaður þó ummerki bendi til þess að kveikt hafi verið í húsinu.
Tvítugur karlmaður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tólf mánuðir eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Málsatvik eru þau að árásarmaðurinn stakk annan mann fjórum sinnum með hnífi, í áflogum utan við skemmtistaðinn Broadway, svo af hlutust fjögur 2-8 sentímetra djúp sár.
Ekki hefur verið staðfest hvað olli bruna í einbýlishúsi að Bárugötu á Sauðárkróki. Allt brann sem sem brunnið gat í austurhluta stofunnar, þar sem eldurinn kom upp, segir Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki. Sýni hafa verið send suður til frekari rannsóknar.
Saksóknari í Mexíkó hefur krafist þess að dómari gefi út handtökuskipun á Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra og dóttur hans Snæfríði. Þau eru sökuð um barnsrán með því að hafa numið dóttur Snæfríðar á brott án samþykkis fyrrverandi eiginmanns hennar, Marcos Brancaccia. Feðginin verða ekki framseld frá Íslandi.
Bifreið valt út af Grindavíkurvegi rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Enginn slasaðist en bifreiðin skemmdist töluvert og var fjarlægð með kranabíl að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar í Keflavík. Talið er að hálka hafi valdið slysinu.
Líf þriggja ungmenna hékk á bláþræði í eldsvoðanum á Bárustíg á Sauðárkróki. Piltur sem fannst meðvitundarlaus inni í húsinu fékk að fara af sjúkrahúsi í gær. Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn segir að þakka megi fyrir að slökkviliðsmennirnir hafi fyrst farið inn um þvottahúsið því annars hefði líklega ekki náðst til piltsins í tæka tíð.
Þrír innbrotsþjófar, sem jafnframt gerðust bílþjófar í nótt, enduðu ránsför sína á ljósastaur í Breiðholti. Grunur leikur á að þeir hafi brotist inn í fyrirtæki í Hafnarfirði, stolið þaðan ýmsum munum og bíl í eigu fyrirtækisins. Ferðalag þremenninganna, sem jafnframt eru taldir hafa verið ölvaðir, gekk ekki betur en svo að þeir óku bílnum stolna á ljósastaur.
Enn á eftir að ræða við nokkra menn sem veitt geta upplýsingar um húsbrotið í Logalandi í Fossvogi aðfaranótt laugardags að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík.
Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir það ganga kraftaverki næst að ekki skyldu fleiri farast í húsbrunanum á Sauðárkróki í gærmorgun. Helgistund verður í Sauðárkrókskirkju í dag vegna slyssins en þar lést 21 árs gamall piltur. Grunur manna beinist að því að eldsupptök megi rekja til þess að sígarettuglóð hafi komist í sófa.
Tilkynnt var um innbrot í iðnaðarhúsnæði í Súðarvogi snemma á sunnudagsmorguninn. Fljótlega kom í ljós að þjófarnir voru hinir sömu og handteknir voru í Breiðholti aðfaranótt sunnudags, vegna innbrots í Hafnarfirði. Þjófarnir unnu skemmdir og skitu í ruslafötur.
Mikil mildi þykir að ekki skyldu fleiri hafa farist í brunanum á Sauðárkróki í gærmorgun. 21 árs gamall piltur fórst en þrjú ungmenni, tveir piltar og ein stúlka, björguðust naumlega. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að slökkviliðsmenn og nágrannar hafi unnið þrekvirki við bjarga þeim út.
Lögreglan í Reykjavík handtók þrjá menn um tvítugt á aðfaranótt sunnudags. Mennirnir eru grunaðir um að hafa stolið bifreiðinni sem þeir voru á, auk ýmissa muna úr fyrirtæki í Hafnarfirði.
Enginn hefur verið handtekinn vegna árásar hóps manna inn í íbúð í Fossvogi í fyrrinótt. Lögreglan í Reykjavík hefur yfirheyrt nokkra menn sem grunaðir eru um að hafa misþyrmt ungum manni í íbúðinni. Talið er að árásarmennirnir hafi verið sjö til átta talsins en þeir voru vopnaðir haglabyssu og bareflum.
Yfirlögregluþjónninn á Sauðárkróki segir að aðeins hafi munað sekúndum að fjögur ungmenni færust öll í húsbrunanum þar í gærmorgun. Bænastund var haldin í Sauðárkrókskirkju nú síðdegis vegna slyssins en 21 árs gamall piltur lét lífið í eldsvoðanum.
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Borgarfjarðarbraut við Grímsá laust fyrir hádegi á sunnudag.
Harður árekstur varð á brú í Önundafirði um sexleytið í gærkvöldi. Tveir bílar, jeppi og fólksbíll, rákust þar saman og er fólksbílinn óökufær. Engin slys urðu á fólki. Áreksturinn varð á brúnni yfir Vaðal en hún er einbreið. Á þessari sömu brú varð dauðaslys fyrir nokkrum árum.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús, þar af einn með sjúkraflugi til Reykjavíkur, eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsi á Sauðárkróki í morgun. Lögreglu og slökkviliði var tilkynnt um eldinn laust fyrir klukkan ellefu og þegar að var komið lagði mikinn reyk frá húsinu og eldtungur stóðu út um glugga á efri hæð en húsið er tvílyft einbýlishús.
Tveir menn um tvítugt voru, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdir í þriggja og fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og fíkniefnabrot.
Piltur um tvítugt fórst í bruna í einbýlishúsi við Bárustíg á Sauðárkróki í gær. Annar piltur fannst meðvitundarlaus í húsinu og var hann fluttur á sjúkrahús Sauðárkróks og þaðan til Reykjavíkur á gjörgæsludeild. Stúlka og piltur sem einnig voru í húsinu sluppu ómeidd en þau stukku út af annarri hæð hússins.
Banaslys varð í eldsvoðanum á Sauðárkróki í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sauðárkróki var tilkynnt um eldinn laust fyrir klukkan ellefu í morgun. Lögregla og slökkvilið héldu þegar á vettvang. Eldtungur stóðu þá út um glugga og lagði mikinn reyk frá húsinu.
Sjö eða átta menn réðust, vopnaðir haglabyssu, inn í íbúð í Fossvogi um klukkan tvö í fyrrinótt. Þeir skutu upp hurð til að komast inn í íbúðina með tveimur skotum úr haglabyssunni og gengu í skrokk á húsráðanda. Ungt par var í íbúðinni, konan náði að forða sér út en mennirnir handleggsbrutu manninn og veittu honum skurð á enni.
Lögreglan í Reykjavík hefur nú haft hendur í hári hluta þess hóps sem grunaður eru um að hafa misþyrmt ungum manni í íbúð í Logalandi í Fossvogi í Reykjavík í nótt. Talið er að árásarmennirnir hafi verið sjö til átta talsins en þeir voru vopnaðir haglabyssu og bareflum.
Byggingafyrirtæki var gert að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar þrjár milljónir króna í bætur samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Starfsmaðurinn slasaðist er hann fell niður þrjár hæðir eða 5,4 metra þar sem hann var við málningarvinnu í nýbyggingu.
Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um útafakstur á Hellisheiði um níuleytið í gærmorgun. Ökumaður var einn í bílnum og er grunaður um að hafa verið undir áhrifum lyfja við aksturinn.
Skemmdarverk voru unnin á Akureyri aðfaranótt laugardags.