Erlendar

Menntaskólastrákur lést eftir leik í amerískum fótbolta
Leikmaður menntaskóla í New York-fylki lést á föstudag eftir leik liða í amerískum fótbolta. Hann varð fyrir alvarlegum höfuðmeiðslum og lést.

NFL á Wembley til 2016
Forráðamenn NFL-deildarinnar eru hæstánægðir með hversu mikla athygli leikirnir í London á síðustu árum hafa fengið. Nú hefur deildin staðfest að spilaður verði deildarleikur á Englandi til ársins 2016 hið minnsta.

Griffin og Solo nakin á myndum í tímariti ESPN
Íþróttafólk úr ýmsum greinum leikur aðalhlutverkið í þriðju útgáfu íþróttatímaritsins ESPN "Body Issue“ sem að venju vekur mikla athygli. Ástæðan er einföld. Íþróttafólkið er nakið á myndunum sem birtar eru í tímaritinu en fyrirsæturnar eru rúmlega 20.

Besta byrjun Lions síðan 1956
Ótrúlegt gengi Detroit Lions í NFL-deildinni hélt áfram í nótt. Liðið vann þá sinn fimmta leik í röð og komst í 5-0 í fyrsta skipti síðan 1956. Lions lagði nágranna sína í Chicago Bears í nótt, 24-13.

Green Bay óstöðvandi - gengur ekkert hjá Eagles
Meistarar Green Bay Packers eru hreinlega óstöðvandi í NFL-deildinni. Liðið vann sinn fimmta leik í röð í nótt og litlu breytti þó liðið hefði lent 14-0 undir. Það vann samt, 25-14.

Sebastian Vettel heimsmeistari
Sebastian Vettel tryggði sér í morgun heimsmeistaratitilinn í Formúlu-1 annað árið í röð. Vettel verður þar með yngsti tvöfaldi heimsmeistari frá upphafi formúlunnar, en hann er aðeins 24 ára og 98 daga gamall. Titilinn tryggði hann sér í nótt á japönsku kappakstursbrautinni í Suzuka. Þar endaði Vettel þriðji, á eftir Jenson Button og Fernando Alonso. Það dugði honum þó til þess að tryggja sér titilinn.Félagi Vettels, Mark Webber, endaði fjórði í morgun. Þeir aka fyrir lið Red Bull, og með stigunum í morgun virðast Red Bull vera að tryggja sér titil bílasmiða annað árið í röð.

Ekkert gengur hjá Wozniacki - datt út í átta manna úrslitum í Peking
Danska tennisdrottning Caroline Wozniacki er ekki að gera alltof góða hluti þessa dagana en hún datt út úr átta manna úrslitunum á opna kínverska mótinu í nótt. Wozniacki tapaði fyrir ítalskri stelpu þrátt fyrir að vinna fyrstu hrinuna og vera 23 sætum ofar á heimslistanum.

Merritt keppir á ÓL í London þrátt fyrir skrautlegt lyfjamál
Bandaríski hlauparinn LaShawn Merritt getur mætt í titilvörnina í 400 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í London á næsta ári þrátt fyrir að hann hafi fallið á lyfjaprófi í apríl 2010. Í kjölfarið fékk hann tveggja ára keppnisbann og átti þar með einnig að fá sjálfkrafa keppnisbann á næstu ólympíuleikum. Meritt og bandaríska ólympíunefndin áfrýjuðu þeirri reglu til gerðardóms sem úrskurðaði Meritt í hag.

Fjórða tap Colts í röð
Fjarvera Payton Manning hefur greinilega mikil áhrif á lið Indianapolis Colts en liðið hefur nú tapað öllum fjórum leikjum sínum í upphafi NFL-leiktíðarinnar. Colts tapaði í gær fyrir Tampa Bay Buccaneers, 24-17, eftir að hafa verið yfir lengst af í leiknum.

Murray bar sigur úr býtum á opna tælenska meistaramótinu
Breski tenniskappinn Andy Murray gjörsigraði Donald Young í úrslitum opna tælenska meistaramótsins sem lauk nú um helgina.

Lögreglustjórinn í Detroit vill stöðva ferðir nektarstrætósins
Einhverjir frumlegir viðskiptamenn í Detroit hafa sett upp nektardansstað í strætisvagni sem þeir mæta síðan með á leiki Detroit Lions í NFL-deildinni.

Vantar 2.500 starfsmenn á Super Bowl
Það er mikið atvinnuleysi í Bandaríkjunum en það er verður ekki mikið atvinnuleysi í Indianapolis í kringum Super Bowl-leikinn. Borgaryfirvöld hafa nefnilega auglýst eftir 2.500 starfsmönnum til starfa á leiknum og í aðdraganda hans.

Gebrselassie vill að maraþonið á ÓL í London byrji fyrr um morguninn
Haile Gebrselassie, enn sigursælasti langhlaupari allra tíma, er að berjast fyrir því að maraþonhlaupið á Ólympíuleikunum í London byrji fyrr um morguninn en áætlað er en þetta verður sögulegt hlaup í íslenskri íþróttasögu.

Wozniacki datt óvænt út í Tókýó og gæti misst toppsæti heimslistans
Danska tennisstjarnan Caroline Wozniacki datt óvænt út á opna japanska mótinu í morgun en mótið fer fram í Tókýó í Japan. Caroline Wozniacki hefur verið í efsta sæti á heimslistanum í 50 vikur en nú gæti orðið breyting á því.

Eiginkona Romo skipaði honum að spila
Þrátt fyrir að vera með brákað rifbein og gat á lunga þá spilaði Tony Romo með Dallas Cowboys gegn Washington Redskins í mánudagsleik NFL-deildarinnar. Eiginkonan hans skipaði honum að spila.

Vick meiddist illa á hendi um helgina
Það á ekki af Michael Vick, leikstjórnanda Philadelphia Eagles, að ganga. Fyrir viku síðan fékk hann heilahristing og um helgina meiddist hann illa á hendi í tapi gegn NY Giants.

Meistarar Green Bay byrja leiktíðina vel
Þriðju umferðinni í NFL-deildinni lýkur í kvöld. Meistarar Green Bay Packers hafa byrjað leiktíðina með stæl og unnið fyrstu þrjá leiki sína í deildinni.

Roger Federer hættir við þátttöku á Shanghai-Masters
Tenniskappinn, Roger Federer, hætt við þátttöku sínu á Shanghai Masters til baka, en mótið fer fram í byrjun næsta mánaðar.

Maður sem var laminn á hafnaboltaleik farinn að tala á ný
Harður stuðningsmaður hafnaboltaliðsins San Francisco Giants er farinn að tala á nýjan leik en hann hefur verið nær meðvitundarlaus eftir að ráðist var á hann á leik í lok mars síðastliðnum.

Vick mætti á æfingu fjórum dögum eftir að hafa fengið heilahristing
Leikstjórnandi Philadelphia Eagles, Michael Vick, var mættur á æfingu í gær. Aðeins fjórum dögum eftir að hann fékk heilahristing í leik.

NFL-leikmaður fékk sent heim kíló af maríjúana
Pakki með rúmu kílói af maríjúana endaði heima hjá leikmanni Cincinnati Bengals í Kentucky. Þar fundust fleiri fíkniefni. Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Jerome Simpson og er útherji.

Paula Radcliffe búin að missa heimsmetið sitt í maraþonhlaupi
Breski langhlauparinn Paula Radcliffe á ekki lengur heimsmetið í maraþoni kvenna og hún skilur eiginlega ekki sjálf af hverju. Radcliffe hljóp London-maraþonið árið 2003 á 2 klukkutímum, 15 mínútumog 25 sekúndum og það hefur engin kona hlaupið maraþonhlaup á betri tíma.

Lék með brákað rifbein og gat á lunga
Tony Romo, leikstjórnandi Dallas Cowboys, er hálfgerð pissudúkka í augum margra. Hann hefur verið mjög upptekinn af því að lifa ljúfa lífinu og vera í fjölmiðlum en minna gert af því að vinna alvöru leiki sem er víst hans aðalstarf.

Stefán og Hafþór báðir í úrslit í keppninni um sterkasta mann heims
Stefán Sölvi Pétursson og Hafþór Júlíus Björnsson tryggðu sér í gær sæti í 10 manna úrslitum í keppninni um sterkasta mann heims sem fram fer í Bandaríkjunum. Þeir enduðu báðir í öðru sæti í sínum riðlii en alls var 30 keppendum boðið að taka þátt. Keppnisgreinarnar eru alls sex en mótið fer fram í Norður-Karólínu.

Fjöllistakona ætlar að reyna við heimsmet í að halda boltum á lofti
Ítalska fjöllistakonan, Selyna Bogino, ætlar sér að slá heimsmetið í að halda á lofti boltum en hún æfir sig af krafti þessa daganna.

Bolt og Blake fóru á kostum
Heimsmeistararnir nýkrýndu - Usain Bolt og Yohan Blake - voru stjörnur kvöldsins á Demantamótaröðinni í kvöld en keppt var í Brussel. Þeir mættust reyndar ekki að þessu sinni. Bolt hljóp 100 metra en Blake 200 þar sem hann náði ótrúlegum tíma.

Lewis fær að bjóða sig fram eftir allt saman
Hinn nífaldi Ólympíumeistari, Carl Lewis, hefur unnið enn einn sigurinn á sínum ferli því hann fær að bjóða sig fram til öldungadeildar New Jersey-fylkis.

Djokovic búinn að vinna sér inn meira en 1,2 milljarða á tímabilinu
Serbinn Novak Djokovic hefur verið í rosalegu formi á þessu tímabili og sigurinn á opna bandaríska meistaramótinu í tennis á mánudaginn var þriðji sigur hans á risamóti á þessu ári. Djokovic hefur líka hagnast gríðarlega á allri þessari velgengni.

Usain Bolt kom í mark á besta tíma ársins
Usain Bolt bar sigur úr býtum á frjálsíþróttamóti í Króatíu í gær þegar hann kom fyrstur í mark í 100 metra spretthlaupi karla.

Nadal: Djokovic er að spila ótrúlega vel
Spánverjinn Rafael Nadal var nokkuð ánægður með frammistöðu sína gegn Novak Djokovic í úrslitaviðureigninni á opna bandaríska meistaramótinu í gær.