Íþróttir
206 207 208 209 210 211 212 213 214 … 334 ›
Larsson sagði nei við Celtic Stjórnarformaður Glasgow Celtic segist hafa reynt að lokka sænska framherjann Henrik Larsson aftur til skoska liðsins á dögunum, en Larsson sagði þvert nei. Hann var ítrekað beðinn að framlengja dvöl sína hjá Evrópumeisturunum, en er harðákveðinn í að snúa aftur heim til Svíþjóðar og spila með gamla liðinu sínu Helsingborg. Sport 25.5.2006 17:25
Góður sigur á Norðmönnum Átján ára karlalandslið íslands í körfubolta heldur uppteknum hætti á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fram fer í Svíðþjóð og í dag vann liðið sannfærandi sigur á Norðmönnum 78-63. Hörður Vilhjálmsson lék vel fyrir íslenska liðið, skoraði 26 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Sextán ára lið tapaði naumlega fyrir Finnum í opnunarleik sínum og mætir Svíum síðar í dag. Sport 25.5.2006 17:19
Fín byrjun hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson var í stuði á fyrsta keppnisdegi opna áskorendamótsins í Marokkó í Afríku í dag og lauk hann fyrsta hringnum á 67 höggum, eða 4 höggum undir pari. Hann er því á meðal efstu manna eftir fyrsta daginn. Sport 25.5.2006 17:15
Heiðar Davíð í góðum málum Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason hélt áfram að leika vel á öðrum degi Kinnaborgmótsins í Svíðþjóð í dag og lauk hann keppni á tveimur höggum undir pari og er því samtals á þremur höggum undir pari. Heiðar var í efsta sæti mótsins þegar hann lauk keppni í dag. Sport 25.5.2006 17:12
Redknapp semur við Portsmouth Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp skrifaði í dag undir þriggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið Portsmouth, en eldri samningur hans við félagið rann út í lok síðustu leiktíðar. Redknapp þótti standa sig vel eftir að hann tók við liðinu í annað sinn á ferlinum og undir hans stjórn slapp liðið við fall í 1. deildina með ótrúlegum hætti. Sport 25.5.2006 17:03
Víkingar í stuði Víkingur hefur yfir 2-0 í hálfleik gegn Breiðablik í fyrsta leik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hér er um að ræða viðureign nýliðanna í deildinni. Heimamenn komust yfir á 18. mínútu þegar Viktor Bjarki Arnarsson skoraði úr vítaspyrnu og hann lagði svo upp annað markið fyrir félaga sinn Hörð Bjarnason með glæsilegum hætti á 31. mínútu. Sport 25.5.2006 16:43
Pires semur við Villarreal Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur gert tveggja ára samning við spænska liðið Villarreal. Pires hefur verið hjá Arsenal í sex ár, en hann var með lausa samninga í sumar og komst ekki að samkomulagi við forráðamenn Arsenal um nýjan samning. Sport 25.5.2006 15:21
Diaw tryggði Phoenix sigurinn í Dallas Franski framherjinn Boris Diaw átti sinn besta ferlinum í nótt þegar Phoenix Suns gerði sér lítið fyrir og lagði Dallas Mavericks 121-118 á útivelli í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar. Diaw skoraði 34 stig fyrir Phoenix og þar á meðal sigurkörfuna í blálokin. Sport 25.5.2006 06:16
Góður árangur hjá unglingaliðunum Góður árangur náðist á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem hófst í Svíþjóð í dag. Átján ára landslið pilta sigraði Svía 86-84, þar sem Hörður Vilhjálmsson skoraði 30 stig fyrir Íslenska liðið. Þá vann átján ára lið Íslands í kvennaflokki einnig sigur á því sænska 71-64 og þar var það hin magnaða Helena Sverrisdóttir sem fór á kostum og skoraði 35 stig. Sport 24.5.2006 20:41
Skýr skilaboð hjá eiganda Cleveland Dan Gilbert, eigandi NBA-liðs Cleveland Cavaliers, hefur sent stuðningsmönnum liðsins skýr skilaboð fyrir framtíðina. Í gær keypti hann auglýsingar fyrir um 25.000 dollara í stærstu blöðunum í Ohio-fylki, þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum liðsins fyrir árið og lét í það skína að nýr samningur við ofurstjörnuna LeBron James væri efst á forgangslista félagsins. Sport 24.5.2006 21:31
Cizmek byrjaður að æfa með KR Króatíski miðjumaðurinn Mario Cizmek mætti í dag á sína fyrstu æfingu með liði KR í dag, en sá er fyrrum u-21 árs landsliðsmaður. Þetta kemur fram á heimasíðu KR í dag. Vonast KR-ingar til þess að hann verði kominn með leikheimild fyrir næsta leik liðsins í Landsbankadeildinni, sem er gegn Keflvíkingum á sunnudag. Sport 24.5.2006 22:03
Jafntefli í Grindavík Grindvíkingar og Keflvíkingar gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í síðari leik kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum á bragðið á 33. mínútu, en Guðmundur Steinarsson jafnaði metin úr víti skömmu síðar. Sport 24.5.2006 21:57
Keane gæti spilað á næstu leiktíð Michael Kennedy, umboðsmaður miðjumannsins Roy Keane hjá Glasgow Celtic, segir ekki loku fyrir það skotið að leikmaðurinn spili með liðinu á næstu leiktíð. Keane fer til sérfræðings þegar hann kemur heim úr sumarleyfi sínu á næstu vikum og þá verður líklega tekin ákvörðun um framhaldið. Talið er að það muni freista Keane að spila með liðinu í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en hann á sem kunnugt er eitt ár eftir af samningi sínum við meistarana. Sport 24.5.2006 20:24
KR lagði Fylki KR lagði Fylki 1-0 á heimavelli sínum í Frostaskjóli í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Tryggvi Bjarnason sem skoraði markið sem skildi liðina að í kvöld, en bæði lið fengu nokkur tækifæri til að bæta við mörkum í kvöld. Leikurinn var í raun lítið fyrir augað í rokinu, en KR-ingar þiggja eflaust stigin þrjú með bros á vör. Sport 24.5.2006 21:14
Jafnt í hálfleik í Grindavík Nú er kominn hálfleikur í leik Grindavíkur og Keflvíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og staðan er jöfn 1-1. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum yfir á 33. mínútu, en hinn sólbrúni Guðmundur Steinarsson jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Grindvíkingar leika með sterkan vindinn í bakið í síðari hálfleiknum, en mjög hvasst er í Grindavík sem og annarsstaðar á suðvesturhorninu í kvöld. Sport 24.5.2006 20:49
Verðum að ræða við konuna hans Shevchenko Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko tilkynnir forráðamönnum AC Milan á morgun hvort hann ætli sér að framlengja samning sinn við félagið eða ganga til liðs við Englandsmeistara Chelsea. Félagi hann Gennaro Gattuso ætlar að gera sitt til að reyna að sannfæra framherjann sterka um að vera áfram í Mílanó. Sport 24.5.2006 20:15
Keflvíkingar fljótir að jafna Það tók Keflvíkinga ekki langan tíma að jafna metin í Grindavík, því aðeins fjórum mínútum eftir að heimamenn komust yfir í leiknum, hefur Guðmundur Steinarsson jafnað fyrir Keflavík úr vítaspyrnu - eftir klaufagang í vörn heimamanna. Sport 24.5.2006 20:37
Jóhann kemur Grindvíkingum yfir Jóhann Þórhallsson hefur komið Grindvíkingum í 1-0 gegn grönnum sínum úr Keflavík í sjónvarpsleiknum á Sýn. Mark Jóhanns kom á 33. mínútu og bætti Jóhann þar með fyrir að hafa klúðrað vítaspyrnu í upphafi hálfleiksins. Þetta er fjórða mark Jóhanns í deildinni Sport 24.5.2006 20:34
KR yfir í hálfleik KR-ingar hafa yfir 1-0 gegn Fylki í leik liðanna á KR-velli. Það var Tryggvi Bjarnason sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu, en eftir fjöruga byrjun, dró heldur úr leikmönnum beggja liða í rokinu í Frostaskjóli. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur er hafinn og er í beinni útsendingu á Sýn. Þar er staðan jöfn 0-0, en Grindvíkingar voru rétt í þessu að misnota vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins. Sport 24.5.2006 20:07
Tryggvi kemur KR yfir Tryggvi Bjarnason var rétt í þessu að koma KR-ingum yfir gegn Fylki í vesturbænum. Gestirnir úr Árbænum höfðu verið heldur sterkari fram að þessu, en Tryggvi náði að koma KR yfir með skalla af stuttu færi eftir klafs í teig Fylkis. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur hefst klukkan 20 og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 24.5.2006 19:46
Stubbs framlengir Miðvörðurinn Alan Stubbs hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Everton um eitt ár, eða út árið 2007. Hann á að baki yfir 150 leiki með Everton og er 34 ára gamall. Stubbs hefur einnig leikið með Celtic í Skotlandi og Sunderland á Englandi. Sport 24.5.2006 18:39
Sommeil til Sheffield United Franski varnarmaðurinn David Sommeil sem látinn var fara frá Manchester City á dögunum, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við nýliða Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Sommeil sagði við undirritun samningsins að það hefði alltaf verið draumur hans að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni, sem hann segir þá sterkustu í Evrópu. Sport 24.5.2006 18:16
Boskamp til Belgíu Hollenski knattspyrnuþjálfarinn Johan Boskamp, sem nýverið lét af störfum sem knattspyrnustjóri Stoke City, var í dag ráðinn knattspyrnustjóri belgíska liðsins Standard Liege. Boskamp er 57 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun í Belgíu og hefur meðal annars stýrt liði Anderlecht þar í landi. Sport 24.5.2006 16:42
Ákveður sig eftir HM Bakvörðurinn magnaði Roberto Carlos hjá Real Madrid segist ekki ætla að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknu heimsmeistaramóti í sumar, en hinn 33 ára gamli Carlos á í samningaviðræðum við Real Madrid um að framlengja samning sinn við félagið. Chelsea hefur þegar gert tilboð í kappann og segir hann fjárhagslegan ávinning ekki spila inn í ákvörðun sína, heldur ætli hann að skoða hve lengi hann vill spila í viðbót. Sport 24.5.2006 16:35
Læknir United rekinn Mike Stone, sem verið yfirlæknir hjá Manchester United síðan árið 1999, var mjög óvænt rekinn frá félaginu í dag. Forráðamenn United segja ákvörðun þessa faglega, en orðrómur er strax kominn á kreik um að læknirinn hafi verið látinn fara vegna afstöðu sinnar í máli Wayne Rooney. Sport 24.5.2006 15:33
Brotist inn á heimili Patrick Vieira Patrick Vieira, leikmaður Juventus og franska landsliðsins, lenti í óskemmtilegri reynslu í gær þegar brotist var inn í hús hans í Frakklandi á meðan fjölskyldan svaf. Nokkru af skartgripum var stolið og óku þjófarnir á burt með þýfið á bílnum hans. Fjölskyldan þurfti að fara í rannsókn eftir uppákomuna, því talið er að þjófarnir hafi sprautað gasi inn í loftræstikerfið í húsinu til að halda fjölskyldunni sofandi á meðan á ráninu stóð. Sport 24.5.2006 14:53
Andy Johnson á leið til Wigan? Stjórnarmaður Crystal Palace hefur staðfest að félagið hafi í dag samþykkt 8,5 milljón punda tilboð úrvalsdeildarfélagsins Wigan í framherjann Andy Johnson. Everton og Bolton hafa einnig verið á höttunum eftir landsliðsmanninum, en þeim hefur nú verið sagt að hækka tilboð sín ella muni hann verða seldur til Wigan. Sport 24.5.2006 14:44
Tilboði Tottenham í Curtis Davies hafnað Bryan Robson, stjóri West Brom, staðfesti í dag að félagið hefði neitað 3,5 milljón punda tilboði Tottenham Hotspur í varnarmanninn Curtis Davies. West Brom ætlar sér ekki að staldra lengi við í 1. deildinni og ætlar að styrkja liðið en ekki veikja það að sögn Robson. Davies er U-21 árs landsliðsmaður Englands og talinn nokkuð efnilegur. Sport 24.5.2006 14:38
B-lið Englands mætir Hvít-Rússum í kvöld Nokkrir af leikmönnum enska landsliðsins sem eru að berjast við að vinna sér sæti í byrjunarliðinu fá tækifæri til að sýna úr hverju þeir eru gerðir í kvöld, þegar B-lið Englands tekur á móti Hvít-Rússum í æfingaleik. Sport 24.5.2006 14:25
Pires líklega á förum Nú þykir allt benda til þess að franski miðvallarleikmaðurinn Robert Pires muni yfirgefa herbúðir Arsenal og ganga til liðs við spænska liðið Villarreal, en spænsk útvarpsstöð á að hafa haft eftir stjórnarformanni félagsins í gær að hann væri búinn að ganga frá málinu. Sport 24.5.2006 03:03