Viðskipti
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 223 ›
Vodafone skrifar undir á Indlandi Forsvarsmenn breska farsímarisans Vodafone undirrituðu í gær formlegan samning um kaup á 67 prósenta hlut í indverska fjarskiptafélaginu Hutchison Essar. Félagið er fjórða stærsta fjarskiptafélag Indlands og þykir hafa opnað Vodafone dyrnar á einn af mest vaxandi farsímamörkuðum í heimi. Viðskipti erlent 15.3.2007 21:31
Fitch staðfestir lánshæfismat Landsbankans Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest óbreyttar lánshæfismatseinkunnir Landsbankans sem A / F1 ( B/C með stöðugum horfum. Staðfestingin kemur í kjölfar lækkunar á lánshæfi íslenska ríkisins, að því er segir í tilkynningu frá Kauphöll Íslands. Viðskipti innlent 15.3.2007 16:13
Fitch lækkar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði í dag lánshæfiseinkunni ríkissjóðs í erlendri og innlendri mynt úr AA- og AAA í A+ og AA+. Horfur eru stöðugar fyrir báðar einkunnir. Gengi hlutabréfa tók að lækka hratt í Kauphöll Íslands í kjölfar birtingar matsins. Viðskipti innlent 15.3.2007 15:40
Refresco kaupir í Bretlandi Drykkjarvörufyrirtækið Refresco, sem er í meirihlutaeigu FL Group, Vífilfells og Kaupþings og með starfsemi á 13 stöðum í Evrópu, hefur fest kaup á breska drykkjarvöruframleiðandanum Histogram. Þetta eru fyrstu kaup Refresco í Bretlandi. Viðskipti innlent 15.3.2007 14:22
Stjórn Existu með heimild til hlutafjárútgáfu í evrum Samþykkt var á aðalfundi Existu í gær að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út hlutafé í evrum í stað íslenskra króna telji stjórnin slíkt fýsilegt. Viðskipti innlent 15.3.2007 10:13
Markaðir jafna sig eftir dýfu Helstu fjármálamarkaðir á Vesturlöndum og í Asíu hafa verið á uppleið eftir dýfu síðastliðna tvo daga. Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á mörkuðum í Bandaríkjunum í gær og í Japan í dag. Íslenski markaðurinn fór ekki varhluta af lækkanaferlinu en Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,13 prósent í gær. Viðskipti erlent 15.3.2007 10:01
Tekjuafgangur hins opinbera 60,1 milljarður í fyrra Tekjuafgangur hins opinbera nam 20 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Þetta er 1,4 milljörðum krónum betri afkoma en ári fyrr. Tekjuafgangur alls síðasta árs nam 60,7 milljörðum króna samanborið við 53,6 milljarða krónur árið á undan, að því er fram kemur í Hagtíðindum Hagstofunnar í dag. Viðskipti innlent 15.3.2007 09:37
Lítil breyting á bandarískum mörkuðum Gengi hlutabréfa var svo til óbreytt við opnun markaða í Bandaríkjunum fyrir stundu. Þá hækkaði heimsmarkaðsverð á hráolíu en búist er við að Orkumálaráðneyti Bandaríkjanna greini frá því í vikulegri skýrslu sinni í dag að olíubirgðir hafi minnkað saman fimmtu vikuna í röð. Viðskipti erlent 14.3.2007 14:31
Methagnaður hjá Lehman Brothers Bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Borthers, fjórði stærsti fjárfestabanki vestanhafs, skilaði hagnaði upp á 1,13 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 76,83 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi 2006. Þetta er metafkoma í sögu bankans. Viðskipti erlent 14.3.2007 13:27
Viðsnúningur hjá General Motors Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors skilaði 950 milljóna dala, eða 64,6 milljarða króna, hagnaði í fjórða ársfjórðungi í fyrra samanborið við 6,6 milljarða dala, jafnvirði 448,7 milljarða króna, tap á sama tíma ári fyrr. Ljóst þykir að viðamikil endurskipulagning í rekstri fyrirtækisins og snörp beiting niðurskurðarhnífsins hafi skilað árangri á síðasta ári. Viðskipti erlent 14.3.2007 12:38
Hlutabréf lækka í Evrópu Gengi hlutabréfa á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu lækkuðu nokkuð í dag. Mesta lækkunin var á gengi bréfa í stórum fjármálafyrirtækjum á borð við Credit Suisse og Deutsche Bank. Lækkanirnar eru tengdar lækkunum á Wall Street í Bandaríkjunum í gær en íbúðalánamarkaðurinn vestanhafs dró helstu vísitölur niður í gær. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,92 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Viðskipti erlent 14.3.2007 11:36
Slæm staða á bandaríska íbúðalánamarkaðnum Vanskil á fasteignalánamarkaði og eignaupptaka vegna ógreiddra lána hafa ekki veri með verra móti í Bandaríkjunum í 37 ár, samkvæmt upplýsingum frá samtökum banka á íbúðalánamarkaði þar í landi. Samtökin segja ástandið sérstaklega slæmt enda hefur þetta haft áhrif á fjármálastofnanir á Wall Street í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 14.3.2007 09:34
Landsframleiðsla jókst um 2,5 prósent Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 2,5 prósent að raungildi á síðasta ársfjórðungi 2006 frá sama fjórðungi árið áður. Þjóðarútgjöld jukust hins vegar meira, eða um 3,2 prósent með tilheyrandi halla á viðskiptum við útlönd. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýjustu Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 14.3.2007 09:20
Neyslan fjármögnuð með kreditkortum Kortavelta í febrúar nam 53,6 milljörðum króna. Þar af nemur velta debertkosta 31,6 milljörðum króna en velta kreditkorta 22,1 milljarði. Kreditkortavelta jókst um 12 prósent frá sama tíma fyrir ári en greiningardeild Kaupþings segir það benda til að neysla heimila sé í auknum mæli fjármögnuð með kreditkortum. Viðskipti innlent 13.3.2007 16:53
Launakostnaður jókst um allt að 9,4 prósent Launakostnaður atvinnurekenda fyrir hverja vinnustund jókst um 2,2 til 9,4 prósent frá fjórða ársfjórðungi 2005 til sama tíma fyrir. Mest var hækkunin í iðnaði og minnst í verslun og þjónustu, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 13.3.2007 16:48
Minni hagnaður hjá Félagsbústöðum Talsvert minni hagnaður var af rekstri Félagsbústaða í fyrra en árið á undan. Hagnaðurinn í fyrra nam 836 milljónum króna samanborið við rúma 4,6 milljarða krónum árið á undan. Félagsbústaðir eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og á og rekur félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Viðskipti innlent 13.3.2007 16:32
Methagnaður hjá Goldman Sachs Bandaríska fjármálafyrirtækið Goldman Sachs skilaði 3,2 milljarða dala hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem lauk í enda febrúar. Hagnaðurinn jafngildir 215,9 milljörðum íslenskra króna og er methagnaður í sögu fyrirtækisins. Þetta er hins vegar þvert á spár greinenda sem gerðu ráð fyrir því að tekjur Goldman Sachs myndi dragast lítið eitt saman. Viðskipti erlent 13.3.2007 14:59
Viacom ætlar í mál við Google Bandaríska fjölmiðlasamsteypan Viacom Media hefur tilkynnt að það ætli að höfða mál á hendur netfyrirtækisins Google vegna brota á höfundarrétti. Google keypti YouTube á síðasta ári og segir Viacom að netveitan hafi sýnt þar sjónvarpsefni sem verndað er með höfundarréttarlögum.Samsteypan krefst eins milljarða dala, jafnvirði 67,5 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Viðskipti erlent 13.3.2007 14:43
Hagnaður Aer Lingus minnkaði lítillega á milli ára Hagnaður írska flugfélagsins Aer Lingus nam 90,4 milljónum evra, jafnvirði rétt rúmra 8 milljarða íslenskra króna, fyrir skatta á síðasta ári. Þetta er samdráttur upp á 1,3 prósent á milli ára og skrifast aðallega á hækkun á olíuverði. Barátta Aer Lingus við að verjast yfirtöku írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair hefur kostað félagið 16 milljónir evra, rúma 1,4 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 13.3.2007 09:19
Sjálfkjörið í stjórn Existu Sjálfkjörið er í næstu stjórn Existu, sem tekur til starfa eftir aðalfund félagsins sem haldinn verður á morgun. Ágúst Guðmundsson, Bogi Óskar Pálsson, Guðmundur Hauksson, Lýður Guðmundsson, Robert Tchenguiz og Sigurjón Rúnar Rafnsson hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu. Viðskipti innlent 13.3.2007 09:15
Telja fasteignaverð á uppleið Greiningardeild Kaupþings segir svo virðast sem líf sé að færast í fasteignamarkaðinn og bendir á að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi tekið kipp um janúar og hækkað um 2,3 prósent á milli mánaða. Bendi allt til áframhaldandi hækkunar á fasteignaverði í febrúar, einkum á fjölbýli, að sögn deildarinnar. Viðskipti innlent 12.3.2007 16:41
Verðbólgan meiri en spáð var Verðbólga mældist 5,9 prósent í síðasta mánuði. Þetta er meiri verðbólga en greinendur gerðu ráð fyrir og að minnsta kosti þriðja verðbólgumælingin í röð þar sem verðbólga er yfir spám. Margt bendir til að fjárfestar telji líkur á að stýrivextir haldist háir lengur en gert hafði verið ráð fyrir. Viðskipti innlent 12.3.2007 13:29
Penninn kaupir Tamore í Finnlandi Penninn hefur keypt allt hlutafé í finnska fyrirtækinu Tamore, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á skrifstofuvörum. Viðskipti innlent 12.3.2007 11:16
Samruni Fjárfestingarfélags sparisjóðanna og VBS fjárfestingarbanka Lagt hefur verið til af stjórnum Fjárfestingarfélags sparisjóðanna FSP hf og VSB fjárfestingarbanka hf að félögin verði sameinuð. Fáist til þess samþykki Fjármálaeftirlitsins munu félögin sameinast undir nafni og kennitölu VBS. Með samrunanum yrði til öflugur fjárfestingarbanki með tæplega 17 milljarða króna eignir og sex milljarða í eigið fé. Viðskipti innlent 12.3.2007 11:11
Hagvöxtur í Japan umfram spár Hagvöxtur mældist 1,3 prósent á fjórða ársfjórðungi í Japan í fyrra samanborið við 1,2 prósenta hagvöxt á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt útreikningum japönsku hagstofunnar. Þetta er ívið meira en greinendur höfðu gert ráð fyrir. Hagvöxtur mældist 5,5 prósent á ársgrundvelli í fyrra og hefur hann ekki verið meiri í þrjú ár. Viðskipti erlent 12.3.2007 09:32
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs 4,4 milljarðar króna Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 4,4 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru 960 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán sjóðsins námu 3,5 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána námu 9,2 milljónum króna, að því er segir í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Íbúðalánasjóður segir brunabótamat fasteigna á höfuðborgarsvæðinu og víðar enn langt undir markaðsvirði. Viðskipti innlent 12.3.2007 09:57
Kínverjar framleiða farþegaþotur Kínverjar ætla að hefja smíði á stórum farþegaflugvélum sem keppa muni við flugvélarisana á markaðnum, Airbus og Boeing. Flugvélarnar eiga að koma á markað árið 2020. Kínverjar eru þegar byrjaðir á framleiðslu á flugvélum af millistærð fyrir innanlandsflug en fyrsta flugvélin kemur á markað á næsta ári. Viðskipti erlent 12.3.2007 09:18
Lækkun virðisauka á matvöru skilar sér að hluta Vísitala neysluverð lækkaði um 0,34 prósent á milli mánaða og jafngildir það að verðbólga sé 5,9 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þetta er mun minni lækkun en gert var ráð fyrir. Lækkun virðisaukaskatts á matvöru hefur þó skilað sér því á tímabilinu lækkaði verð á mat og drykk um rúm sjö prósent. Verð á veitingum lækkaði þó aðeins um 3,2 prósent. Viðskipti innlent 12.3.2007 09:10
Íbúðalánasjoður hækkar útlánsvexti Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákvaðið að hækka útlánsvexti sjóðsins úr 4,7 prósentum í 4,75 prósent. Um er að ræða útlán sem einungis má greiða upp gegn greiðslu uppgreiðsluálags. Sambærileg kjör hjá bönkunum liggja á bilinu 4,95-5 prósent. Viðskipti innlent 9.3.2007 16:18
Fyrsta tapár hjá Airbus Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus skilaði tapi upp á 572 milljónir evra, jafnvirði 50,7 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta var fyrsta taprekstrarárið í sögu félagsins. Erfitt ár er að baki hjá Airbus, sem í tvígang greindi frá töfum á afhendingu A380 risaþotum frá félaginu. Viðskipti erlent 9.3.2007 15:30